við fórum á bridget jones tvö í gær í bíó og skemmtum okkur alveg ágætlega bara. alltaf dáldið gaman að sjá myndir frá london og ég er ekki frá því að skrifstofuatriðin í myndinni hafi verið tekin í regus skrifstofunum sem við unnum í. ég held að þetta hafi verið í sömu skrifstofubyggingaþyrpingunni í chiswick.
jólaprófin byrja í næstu viku og ég er að læra. tónfræði, tónheyrn, nótnalestur, hljómborðskunnátta, jazz, tónlistarsaga og ensk ritgerð. jíha!
stefnan er að fá A í sem flestu. hehe...
hér er byrjað að snjóa og frysta verulega. úti er alveg rosalega jólalegt þessa stundina og ég er bara að komast í almennilegt jólastuð. verst bara hvað það er mikið drasl hjá okkur og ójólalegt...því verður reddað eftir prófin. er maður ekki löglega afsakaður í húsverkunum á meðan maður er í prófum?