Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

laugardagur, nóvember 27, 2004

ég fór að hlusta á the pixies í gær með sigrúnu nokkurri sem býr hérna. ég fór snemma úr enskutíma til að mæta tímanlega en tónleikarnir áttu að byrja klukkan átta. þegar við komum á staðinn var klukkan svona kortér yfir átta og við okkur blasti hin lengsta biðröð sem ég hef séð. við fórum aftast og vorum fegnar að hafa farið í hlýju úlpurnar okkar því það var orðið skítkalt. við biðum ábyggilega í fjörtíu mínútur þarna fyrir utan og fórum svo inn í vel troðna íþróttahöll sem minnti óneitanlega á laugardalshöllina. bandið sem var að hita upp var ekkert spes, ég man ekki hvað það heitir heldur. þegar pixies byrjuðu að spila vorum við komnar vel inn í þvöguna og stóðum nálægt hljóðmanninum. það var svo þröngt þarna að maður gat ekki einu sinni klappað. þrátt fyrir það kveikti fólk sér í sígarettum og reykti eins og það ætti lífið að leysa. hvað er það??? mér myndi líða ferlega asnalega að vera að blása reyk upp í vit næsta manns í svona troðningi.

ég byrjaði að hlusta á pixies þegar ég var sautján og á tímabili lærði ég textana þeirra utan að og pældi æðislega mikið í þeim. þegar ég heyrði þessi lög svo læv í gær fékk ég gæsahúð og svona bekk tú ðe næntís tilfinningu. við sigrún hristum okkur í takt og ég söng með í ófáum lögum eins og flestir þarna í þvögunni.
þegar tónleikarnir voru meira en hálfnaðir var okkur orðið aaðeins of heitt svo við ákváðum að reyna að troða okkur að sjoppunni og fá okkur að drekka. það gekk heldur erfiðlega þar sem þvagan var svo hrikalega þétt. mér tókst að týna sigrúnu svo ég ákvað bara að ljúga að fólki að ég þyrfti nauðsynlega að komast á klósettið og þá var mér ýtt og hjálpað út...hehehe. ég komst heil á höldnu, fékk mér kók og pulsu, keypti mér bol og svo tókum við leigubíl heim eftir allt saman. jeij!
pixies rúla!

miðvikudagur, nóvember 24, 2004

súð og sjö stiga hiti. ekki er nú hægt að kalla það vetur!
spáin fyrir vikuna er svipuð og hingað til hefur ekki snjóað eða fryst að ráði. merkilegt.

í kvöld eru tónleikar hjá nemendum jeri brown og kórinn minn fær að syngja líka. ég byrja svo í einkatímum hjá jeri eftir áramót og þá fæ ég vonandi að syngja smá sóló...hehe...

svakalega finnst mér annars erfitt að vakna á morgnana. mér finnst bara einhvern veginn eins og það sé bannað að vakna fyrir klukkan átta á morgnana. hins vegar langar mig alltaf að leggja mig þegar ég kem heim úr skólanum. ég hef komist að því að ef ég sef í meira en tuttugu mínútur yfir daginn þá er dagurinn ónýtur. ef ég sef minna en tuttugu mínútur vakna ég hins vegar fersk og úthvíld. ég vildi bara að ég væri með svona on/off takka og gæti bara sofið þegar mér hentar.

sunnudagur, nóvember 21, 2004

sjitt hvað tíminn líður hratt!

mér finnst ég alltaf vera að blogga. aldeilis ekki. itts kreisí!

internetástarkveðjur til mormor minnar.

ég er sugaholic. i've got it bad and that ain't good.

klukkan er hálfeitt og ég þarf að fara að sofa!

ég sakna ykkar allra.

mér finnst hrikalega gaman í skólanum.

af hverju er mér alltaf illt í bakinu og af hverju rek ég mig í allt?

mig langar í náttföt (skilyrði að þau séu mjúk og þægileg), stóran kakóbolla, nýjan gsm síma, föt, skó, glingur, spameðferðir, nudd, lakkrís, plötusamning og margt fleira í jólagjöf...reyndar langar mig bara mest í knús frá öllum sem ég þekki. :-)
þar hafiði það!

þriðjudagur, nóvember 16, 2004

til hamingju með afmælið matta! :-)

er á leiðinni í skólann, orðin heldur sein. hvað er ég þá að blogga? dunno. best að hætta því bara.

sunnudagur, nóvember 14, 2004

helgin er að verða búin og ég er að ljúka við heimaverkefni fyrir morgundaginn. verkefnið er greining á laginu "see see rider blues" með louis armstrong og félögum. blúsíblúsíblús.

áðan skelltum við okkur niðrí bæ og náðum okkur í hammara hjá mr. steer og gæddum okkur svo á þeim fyrir framan imbann. kjamms. djúsí hammari með krulluðum frönskum kartöflum.

ég fagnaði helginni með því að fara til duane klippara. hann litaði hárið á mér og pönkaði það aðeins upp með nýjasta nýju frá london og sagði mér frá því að hann sé orðinn háður slúðurtímaritum. surprise!

hér er farið að frysta en þó ekki svo mikið að maður þurfi að vera í dúnúlpu með trefil og húfu. ég vona að slíkt bíði til jóla og verði búið fyrir þrettándan. jeræt!

hómer simpson er að reykja kannabisefni í sjónvarpinu og er alveg óborganlegur. við tommi erum miklir aðdáendur. á virkum dögum eru simpsons klukkan níu og svo south park strax á eftir. good times, good times.

miðvikudagur, nóvember 10, 2004

kúl nafn á lagi: "The Shoes of The Fisherman's Wife are some Jive Ass Slippers" (charles mingus)

er þessa stundina að hlusta á big band tónlist...fer í skyndipróf í því á eftir. kannski ég kippi með mér upptökugræju í tíma og taki upp þegar við spilum how deep is the ocean. ef það verður jafnmikið stuð og í síðasta tíma þá vil ég eiga upptöku!

helgin fór í afslöppun, mánudagurinn í lærdóm, þriðjudagurinn í próf og dagurinn í dag fer líklega í lærdóm.

í gærkvöldi sáum við enga aðra en van halen á tónleikum! ég hef nú ekki hlustað mikið á þessa hljómsveit og yfirleitt staðið í þeirri meiningu að gítarhetjurokktónlist frá níunda áratugnum sé kannski ekki uppáhaldstónlistin mín...eeeeeeeen...þeir rokkuðu alveg í gærkvöldi! þvílíkt stuð! áhorfendahópurinn var dálítið fyndinn. þarna mátti finna rúmlega fertuga menn í hópum sem voru greinilega í einhverju nostalgíukasti og höguðu sér eins og þeir væru komnir aftur í menntaskóla. þarna var slatti af pörum á sama aldri og konan yfirleitt með svona rytjulegt hár, ennþá í eitístískunni og í þröngum gallabuxum. sumir rúmlega fertugu mennirnir voru með synina með sér og ég er ekki frá því að einhverjir þeirra hafi sést taka lúftgítar saman.
tónleikarnir voru í bell íshokkíhöllinni sem er risastór og yfirleitt eru settir stólar á völlinn. við tommi sátum aftarlega á gólfinu, sumsé á vellinum og vorum nálægt miðju. uppi við sviðið voru svo heitustu aðdáendurnir sem hafa ábyggilega borgað alveg helling fyrir að fá að standa alveg hjá sviðinu. margir þeirra voru með hluti með sér sem þeir báðu hljómsveitarmeðlimi um að skrifa á og var það gert á meðan á tónleikunum stóð. einhverjir komu með númeraplötur með sér, aðrir plagöt, boli, vínylplötur, geisladiska...ein gellan fór úr að ofan og sýndi almenningi sílíkonið sitt! það er greinilegt að van halen á mjög tryggan aðdáendahóp. gaman að þessu.
ég gat ekki annað en dansað og fílað mig við lög eins og "jump", "dreams", "when it's love", "right now"...o.s.frv. ég gæti jafnvel skellt þeim inn á playlistann minn í framtíðinni...því hefði ég aldrei trúað...hehehe...

föstudagur, nóvember 05, 2004

tomminn er mættur á svæðið. guði sé lof!
vetur konungur er reyndar eitthvað að trítla hérna um þessa dagana, veit ekki alveg hvort ég er jafnánægð með það.

ég vil annars senda stuðkveðjur til allra sem ég þekki...tjah...og líka þeirra sem ég þekki ekki. much love.

miðvikudagur, nóvember 03, 2004

hafið þið skoðað project for the new american century? tékkið á statement of principles...þessir punktar neðst hljóma illa í mínum íslensku og friðsælu eyrum. og listinn yfir þá sem standa að þessu alveg neðst á síðunni...ómægod segi ég nú bara! world police? anyone?

texti tileinkaður tomma gunn
sungið við livin' on a prayer með bon jovi:

--------------
Once upon a time not so long ago:

Tommy used to work in Montreal, now he's gone away
He's in Mountain View - It's tough, ohh so tough.

Stina goes to school everyday, studying for her man
She brings home her A's for love, ooohhh for love.
o.s.frv.
--------------

er mér nokkuð farið að leiðast einsemdin? nahhh...

playlistinn þessa stundina inniheldur:

joni mitchell - dreamland
leon thomas - einhver special edition best of diskur
chet baker - nokkur vel valin lög

p.s. ég hef ekkert að segja um forsetakosningarnar í bna. bara ekkert. fnus!

þriðjudagur, nóvember 02, 2004

hey, ég var ekki búin að átta mig á því að nú er ég orðin lögleg artífartítýpa! stunda tónlistarnám, drekk grænt te með hunangi og keyri ekki bíl.

það er alveg merkilegt hvað það er mikið af svona stereotýpum í listadeildinni í skólanum mínum. það er líklega þannig alls staðar. þetta eru svona týpur með druslulegt hár, í gömlum fötum, reykja, drekka kaffi allan daginn og tala líka spes tungumál. tala um rithöfunda, aðra listamenn, tala niður til kapítalista og spyrja æðislega fílósófískra spurninga í tímum. svo þegar kemur að því fólk þurfi actually að gera eitthvað þá stendur það alls ekki undir væntingum (ég er reyndar hætt að hafa væntingar til fólks sem talar of mikið). oftar en ekki eru þessar týpur aðeins wannabelistamenn. í tímunum með mér eru flestu artífartítýpurnar í electro acoustics, sem er svona advanced dj prógram...hehehe...okkur sem spilum "unplugged" tónlist finnst það ekki vera alvöru sko (ég með fordóma? ha?).

ætli ég sé annars lögleg artífartítýpa? ég náttúrulega er verkfræðingur í grunninn sem mætti eiginlega kalla antíartífartítýpu. hmm...hvað kallast svoleiðis?

hvað fær konur til að vera með lambakrullupermó í gosbrunnstagli með frotteteygju (skrönsjí)? hér er eitt dæmi...og svona sér maður merkilega oft úti á götu.

mánudagur, nóvember 01, 2004

nokkrir punktar í tónlistarsögupróflestri:

* það drepst alltaf einhver í óperum!

* moldau eftir smetana er ótrúlega flott.

* symphonie fantastique eftir berloiz er fríkuð.

* eitt lagið í fyrsta hlutanum í carmen fjallar um sígarettur og reykingar

* það var til land sem hét bohemia...hluti af tékklandi núna (þýðir bohem þá að vera tékkneskur?)

* tchaikovsky var gay