Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

sunnudagur, október 31, 2004

Choose a job you love, and you will never have to work a day in your life.

Confucius (551?479 B.C.), Chinese philosopher.

ég er búin að vera að velta fyrir mér í þónokkurn tíma núna hvernig tónlist ég vil semja og syngja. ég er búin að komast að því að ég vil að tónlistin hafi boðskap...ekki bara orð og tónar settir saman sem hafa enga merkingu. ég vil hafa áhrif á hugarástand fólks...helst til hins bjartsýna og friðsæla. make love not war...peace and love for every man...get down and boogie...eitthvað á þá leið. reyndar held ég að ofurrómantískir textar myndu slæðast inn á milli. ekki er það nú verra.
það að semja texta finnst mér svakalega persónulegt. ég er hálffeimin við það enn sem komið er en þetta er allt að koma. stefnan er að vera búin að semja allavega eitt lag áður en ég kem heim um jólin. er það ekki ágætisplan?

frelsi, jafnrétti og bræðralag!

stína friðarsinni

laugardagur, október 30, 2004

ég held að ameríska þjóðin ætli að láta bin laden plata sig út í kjósa bush aftur svo hann geti haldið áfram í stríði við bandaríkin. "reversed psychology" anyone?

er að læra. gengur bara svona lala...dáldið hægt en þetta er skemmtileg lesning. svo þarf ég að geta þekkt einhver tuttugu verk held ég svo lesturinn er brotinn upp með hlustun á milli. ætti að vera þannig í öllum fögum.

er einhver með óskajólalag sem hann/hún vill að ég og tommi tökum upp fyrir jólin?

föstudagur, október 29, 2004

október að verða búinn og miðannaprófin hálfnuð hjá mér. ég fer í tónlistarsögupróf á mánudaginn og tónheyrn/hljómborðskunnátta á fimmtudaginn. í gær voru svo seinni tónleikarnir hjá con chord sönghópnum og gengu þeir bara þrusuvel. ég var í roknastuði og dansaði fullt við hann cedric (sem var dansfélagi minn í tveimur laganna). ég fílaði mig sérlega vel í laginu "shining star", varla annað hægt með tónlist eftir "earth wind and fire."

tommi gunn er í kaliforníu að gúglast. hann sýndi mér myndir af nammi- og kaffibar sem er þarna hjá google, ómægod. ég yrði bara feit af því að vinna þarna! og svo tók hann upp á vídeó mynd af hrikalega kúl hlut...það er hnöttur sem er sýndur í þrívídd á stórum skjá og sýnt í rauntíma hvar á hnettinum er verið að leita í google...það birtast svona litlir ljóspunktar sem fljóta svo upp í geiminn...eiginlega dáldið erfitt að lýsa þessu en þetta er alveg eins og í bíómyndunum! svo sagði tommi mér að klósettin hjá þeim væru einhver powerklósett með svaka fídusum...allt er nú til.

ég er bara ein heima á föstudagskvöldi...ekki er mér boðið í neitt hrekkjarvökupartý (reyndar eru nokkur haldin í deildinni minni í skólanum, en ég fékk ekki boðskort persónulega og prívat.) ég held ég fari bara bráðum í háttinn, eða horfi á eitthvað sniðugt í sjónvarpinu...ekki að það skipti máli fyrir þig sem ert að lesa þetta.

miðvikudagur, október 27, 2004

ómægod. það er ekkert skemmtilegra en að standa á sviði í pæjufötum að syngja skemmtilega tónlist. sjæse hvað ég vildi að tónleikarnir í kvöld hefðu verið lengri...alltof stutt að standa í hálftíma á sviðinu! æ kúd dú ðis evrí dei.
ég fékk meira að segja hrós og allt... :-) kannski tók fólk bara eftir því hvað ég skemmti mér vel. veit það ekki.

dagskráin hjá okkur er svona:
shining star - earth wind and fire
all i ever really wanted - gospel lag
big band bash - swing lög eins og caravan, it don't mean a thing...svona syrpa
well allright, okay, you win - swing lag sem við dönsum við

alveg hrikalegt stuð bara. fólk dansaði í sætunum og stóð upp í lokin. jess!

mánudagur, október 25, 2004

það er skrýtið að hugsa til þess að bandaríkjamenn eru líklega minna öruggir í dag en fyrir tíma bush. það er bókstaflega hættulegt að vera bandaríkjamaður í mörgum löndum núna og heimurinn allur er að missa allt álit á þessari þjóð. ég tek undir með jimmy carter þar sem hann segir: "...hann hafi eyðilaggt áratuga viðleitni til þess að ná fram friði í heiminum...Það sé synd og skömm að maðurinn sem hafi tekið hræðilegar ákvarðanir í utanríkismálum skuli hamra á því að hann sé best allra til þess fallinn að verja öryggi Bandaríkjamanna." ætli bandaríkjamenn hafi nokkurn tímann verið jafnóvinsælir í heiminum og þeir eru nú?

ég hafði ekki áttað mig á einni mjög svo áhugaverðri staðreynd fyrr en kennarinn minn hann charles ellison benti á það í tíma, "we're all improvising when we speak." að leika af fingrum fram í tónlist er nákvæmlega eins og að tala, maður þarf bara að læra tungumálið. ef maður hlustar á vel spilað sóló í djass heyrir maður að hljóðfæraleikarinn er að segja eitthvað, hann er að nota "röddina" en tungumálið er tónlist. ef hljóðfæraleikarinn á í vandræðum með tækni þá getur hann ekki komið frá sér því sem hann ætlar að segja og ef hann er ekki einlægur verður tónlistin ekki trúverðug. ég er farin að skilja betur nafnið á kúrsinum..."the language of jazz"

sunnudagur, október 24, 2004

nú er ég ein heima. buhuhuuuu....
tommi er að gúgglast í kaliforníu. hann gistir í þriggja herbergja lúxusíbúð með vinnufélögunum...í sólinni í kaliforníu. ég sá myndir. ekki slæm aðstaða.

ég er byrjuð í miðannaprófum. er nú ekkert voðalega dugleg að læra en tek skorpur. það er minn læristíll. þegar ég sest loksins niður og læri geri ég það af mikilli athygli.
í gær fór ég í ritgerðarpróf. það gekk bara alveg ágætlega. ég skrifaði um börn og leikskóla.

æi þessi síða er svo ljót. verð eiginlega að fara að gera eitthvað í þessu...bara nenni því engan veginn. só sorrí.

á morgun er ég svo að fara að hringja í einhvern lagasmið/manager/eitthvað... fyrrverandi þjálfarinn minn lét hann hafa geisladisk með einhverjum lögum sem ég syng (allthatjazz og eitthvað fleira) og manninum leist bara ágætlega á og vill að ég hringi í sig á mánudaginn...sjáum til hvað gerist!

föstudagur, október 22, 2004

Vil koma þessu að:
-----------------------
October 27 and 28 // 8:00 p.m.
Concordia University Department of Music presents
SONGS FOR A NEW WORLD
From the Jeri Brown Jazz Vocal Music Studio comes two performances of 1940's Big Band favourites performed by the Con Chord Singers. Music and lyrics by the award-winning Jason Robert Brown.
Tickets at the door only, $5 general admission, free for students with ID.
-----------------------

þetta er sumsé djasskórinn (con chord...ehhh...skólinn heitir concordia) sem ég er í ásamt einhverjum fleirum atriðum... ef einhver búsettur í montreal les þessa síðu þá ætti sá hinn sami að drífa sig á tónleikana.

ég hef ekki svo mikið að segja. lífið gengur sinn vanagang, ég fer í skólann og læri á milli þess sem ég horfi á sjónvarpið, les slúðurblöð og vindósjoppa. hehehe.
haustið er komið fyrir löngu og borgin skartar sínu fegursta...maple leaf country. með haustinu koma hausverkir útaf sífellt breytilegu veðri. ég er samt fegin að það sé farið að kólna, var orðin dáldið þreytt á hitasvitanum undir lok sumars. jafnvel þó að ég hafi eytt stórum hluta þess annars staðar. hmmm...

skólinn gengur vel. ég held ég hafi barasta ekki farið niður fyrir 9 hingað til...smá mont. :-)

niður með bússj!

laugardagur, október 16, 2004

jei! ég fékk googlebol. og núna eigum við líka googlepenna, googlegoo, googlevasaljós, googlelyklakyppuharðandisk og googlepoka...hehehe...hey, var ég búin að segja google?

föstudagur, október 15, 2004

nýjustu fréttir!

tommi gunn er byrjaður að vinna hjá google. hann, ásamt sigga og jóa samstarfsmönnum sínum eru á leiðinni heim frá kaliforníu þar sem þeir sögðu bless við greenborder og hæ við google. gorbatsjov var víst líka að heilsa upp á google í dag. :-)

ætli þeir séu fyrstu íslendingarnir til að fá vinnu hjá þessu mjög svo svala fyrirtæki? nei, það er víst ekki...tommi veit um tvo aðra...

við höldum samt áfram að búa í montreal. google eru svo góðir að þeir bara bjuggu til útibú hérna fyrir þrjá íslendinga. snilld!

miðvikudagur, október 13, 2004

ég hef aldrei skemmt mér eins vel í prófi og núna áðan!
undirbúningurinn fólst í því að læra utan að lagið "do it the hard way" með chet baker, meira að segja sólóið. prófið var svo þannig að allir sungu lagið í gegn nokkrum sinnum saman og svo var skipt í hópa og sumir sungu melódíuna, aðrir sólóið yfir og enn aðrir bassalínuna...svo var farið út í að syngja trommur líka! allt er nú til. þetta var svakastuð, ekkert skemmtilegra en djamm þar sem allir eru vel undirbúnir og í stuði. :-)

mánudagur, október 11, 2004

Í anda þakkagjörðarhátíðarinnar þá langar mig að tjá þakklæti mitt fyrir:

eiginmanninn minn
mömmu og pabba
systkini mín og þeirra fylgifiska
fjölskylduna mína
tengdafjölskylduna mína
vini mína
vini okkar
góða heilsu
skemmtilegasta sumar í manna minnum
að hafa komist inn í concordia
að hafa fengið að gifta mig eins og ég vildi
brúðkaupsferðina
að hafa ofan í mig og á

og líka fyrir nokkra örlítið minna mikilvæga hluti...

falleg föt - flottu gallabuxurnar mínar, leðurjakkann og cat woman skóna mína
skemmtilega tónlist - bo kaspers, allur jazzinn sem ég er að læra um, soul, funk og allt hitt
góðan mat - ávextir, papadam með mango chutney, kjúlli, nýtt brauð
nammi - sérstaklega íslenskt nammi, lakkrís og piparbrjóstsykur
kók (i know...slæmt en hey ég drekk ekki og reyki ekki, drekk ekki einu sinni kaffi)
hljóðbækur - gott fyrir letingja eins og mig
góða kennara - jeri brown, charles ellisson, karl raudsepp, christine beckett
mbl og visir - nauðsynlegt að fylgjast með gamla, góða íslandi
glimmer - lífið væri bara ekki eins skemmtilegt án þess
skartgripi - giftingahringurinn minn, perlufestin frá tomma
brúðkaupsmyndirnar okkar - skemmtilegustu minningarnar
mini iPodinn minn - tommi sæti
skemmtilegt sjónvarpsefni - simpsons, south park, gilmore girls, the apprentice, american idol

dettur ekkert fleira í hug í augnablikinu en það eru ábyggilega hundrað hlutir í viðbót sem ég gæti nefnt... :-)

sunnudagur, október 10, 2004

eitthvað hafa færslurnar hjá mér undanfarið verið á neikvæðu nótunum. verð ég ekki að bæta úr því?

í gær fórum við tommi í ikea...við fengum okkur hádegismat og skoðuðum sænsk húsgögn okkur til skemmtunar. við komum svo að sjálfsögðu við í búðinni á leiðinni út (búðin er sumsé lítil sjoppa þar sem hægt er að kaupa alls kyns matvæli frá svíþjóð) og keyptum okkur lingonsylt, köttbullar, hallonsoda og ballerinukex. húrra fyrir ikea!

í gærkvöldi fórum við svo að horfa á íslensku hljómsveitina singapore sling spila á le swimming. það var ágætt, fyrir utan allan sígarettureykinn.

þessa helgina er thanksgiving hér í quebec. ég er ekki alveg viss um að það sé líka í restinni af kanada en ég veit að það er langt í að sama hátíð verði í bandaríkjunum. við tommi erum ekki búin að fá okkur kalkún ennþá en kannski förum við á subway bara í dag og skellum okkur á kalkúnabát! kannski við gerumst svo djörf? hver veit? ha? ekki ég.

föstudagur, október 08, 2004

þetta er ótrúlegt! maðurinn er algjörlega út í hött!
ég trúi því ekki að bandaríkjamenn hafi kosið hann sem forseta. hvernig má það vera??? við sitjum hérna gapandi og hlæjum að honum.

ég er hálfpartinn að fylgjast með kappræðum þeirra bush og kerry. það eina sem ég get sagt er: ég þoli ekki núverandi forseta bandaríkjanna!

fimmtudagur, október 07, 2004

mér leiðist!

ég var heima lasin í gær og allt stefnir í það sama í dag. fnus!
algjört óstuð á mínu heimili þessa stundina. bara ég og tómur ísskápurinn að urra í kór.

þriðjudagur, október 05, 2004

mér leiðist að vera með stíflað nef!

mánudagur, október 04, 2004

ég var búin að skrifa alveg svakalega skemmtilega færslu en svo týndist hún bara! uss fuss...blogger að kenna, ekki mér.

ég sumsé varð lasin eftir alla frústreringuna síðast þegar ég skrifaði og svo kom þrumuveður og rigning...við erum svo samstíga, ég og veðrið.

var í prófi í dag í jazz200 og fer í próf á morgun í musi200. stuð. gekk bara fínt í dag. :-)

það kom þrumuveður eftir að ég skrifaði pirringsfærsluna síðustu og ég fékk einhverja flensupest eða eitthvað og er bara slöpp með hor í nös. fnus.
ég er að fara í próf á eftir og á morgun líka...stuð að vera slöpp akkúrat núna. reyndar alveg týpískt.

prófið sem ég fer í á eftir felst í því að hlusta á 10 jasslög og geta þekkt hver söng, hver samdi og hvernig lagið er uppbyggt o.s.frv. sumsé engin dæmi sem þarf að reikna...hahaha...snilld!