Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

fimmtudagur, september 30, 2004

ég er frústreruð!
það er fólk með mér í tónfræði sem skilur ekki neitt. það spyr og spyr og spyr en skilur ekkert. það fer óstjórnlega í taugarnar á mér. ég veit að það er kannski skilningsleysi af minni hálfu og skortur á umburðarlyndi en ég bara get ekki þolað þetta lengur. meiri hluti bekkjarins mætir þarna og ætlast til að læra eitthvað en þessir fáu sem skilja ekkert taka allan tímann í að spyrja spurninga um hluti sem fólk átti að kunna áður en það byrjaði í skólanum! á meðan verið er að spyrja þessara fáránlegu spurninga er verið að sóa mínum tíma og peningum, might i add. ég ætla að strunsa upp á skrifstofu og kvarta undan þessu. fuss og svei.

þriðjudagur, september 28, 2004

ohh...það er yndislegt að fá gæsahúð við að heyra fallegan söng.
í dag í djasskórnum lærum við nýtt lag "all i ever really wanted" (hægt að heyra smá sample af þessu lagi hér, neðar á síðunni), sem er gospel lag. ég stóð við hliðina á tveimur svörtum gellum sem hafa þessa tónlist aðeins meira í sér en ég, íslandsmærin, og ég bara fékk gæsahúð um leið og við byrjuðum. alveg hreint yndislegt lag og ég held að ég smitist bara af gellunum við hliðina á mér og verði á endanum sólfúll skandineivían. ég er reyndar að velta fyrir mér að finna gospelkór í nágrenninu og bara mæta á æfingar...það hlýtur að vera sniðugt. ég ætti kannski að drífa mig í nokkra ljósatíma fyrst? :-S

sunnudagur, september 26, 2004

í gær hittum við þau brynju og nonna en þau skötuhjú skelltu sér í helgarferð til montreal. við snæddum brunch saman á eggspectations og svo kvöldmat á biddle's jazz'n'ribs. biddle's svíkur ekki og ég gæddi mér á svínarifjum og naut þess að hlusta á góðan jazz og blús. seinna bandið af tveimur var snilld. í fararbroddi þess var michelle sweeney sem er stór svört gella og syngur eftir því.

seinnipartinn í gær skelltum við tommi okkur til litlu ítalíu og keyptum okkur espressovél. fyrir valinu varð la pavoni vél sem má sjá hér á mynd sem ég tók rétt áðan. þó að ég drekki ekki kaffi fannst mér þetta svakalega sniðugt...hehe...mér finnst lyktin af kaffi svo æðislega góð...kannski ekki alveg næg ástæða til að kaupa kaffivél en hey ég get líka flóað mjólk til að setja í heitt kakó!

föstudagur, september 24, 2004

hef ég einhvern tímann sagt ykkur hvað mér finnst "bo kaspers orkester" skemmtileg hljómsveit? ekki nóg með að þeir séu góðir hljóðfæraleikarar heldur er tónlistin æðisleg og textarnir snilld. kannski hefur þetta sérstaklega mikil áhrif á mig af því að þetta er allt á sænsku og ég sakna alltaf svíþjóðar...ég er jú 1/3 sænsk (eða það vill tommi meina, fræðilega séð er ég 1/4 sænsk). ég held ég kunni jafnvel betur að meta þá eftir að hafa lært meira í tónfræði...

ég er búin að hlusta á "the no. 1 ladies' detective agency", bók eftir Alexander McCall Smith. fín bók og mjög vel lesin.

núna er ég að hlusta á "life of pi" og líkar vel. merkilegt hvað bók um indverskan strák á björgunarbát getur verið spennandi. það er líka ofsalega huggulegt að heyra indverska hreiminn eftir að hafa farið til sri lanka. maður skilur menninguna og fólkið einhvern veginn miklu betur eftir að hafa kynnst þeirra heimi örlítið.

love

fimmtudagur, september 23, 2004

var að horfa á "ðí apprentis". trumparinn sjálfur er farinn að fara óhóflega í taugarnar á mér. hann er svo týpískur amerískur stjórnandadjakkass að það hálfa væri nóg. hann er svo hrikalega klisjukenndur og hvað er með hárið?!?!? það er aaaalltaf verið að tala um hárið á honum en hann heldur áfram að greiða það svona hrikalega asnalega yfir skallann. er þetta kannski bara grín hjá manninum? annars var þetta nú ekki beint spennandi þáttur svosem...úrslitin komu ekkert á óvart. ég skil heldur ekki alveg af hverju það voru ekki valdar nokkrar þybbnar stelpur í þáttinn...allavega venjulegar í holdafari. það hefði örugglega skorað hjá kvenáhorfendum. það er eitthvað svo augljóst að fólk er valið útaf útlitinu og mér finnst það hallærislegt.

það er alveg hrikalega fyndið hvað sumt fólk þarf að spyrja mikið í tímum. reyndar er það farið að verða pirrandi núna eftir þrjár vikur í skólanum. það eru þrír til fjórir einstaklingar sem spyrja liggur við eftir hverja einustu setningu sem kennarinn segir. þetta eru yfirleitt einhverjar miður gáfulegar spurningar sem tefja bara fyrir. ég get bara engan veginn skilið hvað fær fólk til að rétta upp höndina á fimm mínútna fresti. ætli þetta sé leið til að láta sér ekki leiðast og ná að hreyfa sig aðeins í tímanum í leiðinni?

þriðjudagur, september 21, 2004

magnað. í dag í djasskór þurftum við að skatta (e. scat) eitt og eitt og ég náttúrulega varð hrikaleg stressuð enda alrei skattað á almannafæri. þetta gekk bara nokkuð vel miðað við aldur og fyrri störf og ég fékk að stíga inn í hringinn (þeir sem gátu skattað vel fóru inn í miðju) en svo var ég ekki valin áfram í lokin. buhuhuuu...sem er reyndar allt í lagi af því að ég er rétt að byrja. nú er það bara dúbadúbadújablíblasjúba...o.s.frv

mánudagur, september 20, 2004

ég var að lesa í morgunblaðinu að það hefðu verið 51 sjálfsvíg á íslandi árið 2000. ég hafði ekki hugmynd um að þetta væri svona svakalega há tala í þessu litla landi. alveg ferlegt.

helgin var fín. við fórum og keyptum okkur standlampa fyrir brúðkaupsgjafapening og eigum meira að segja afgang. við fundum þennan líka fína lampa í lampabúð á st. laurent götu og erum búin að koma honum fyrir inni í svefnherbergi (það er ekkert loftljós þar). núna sjáum við allt draslið okkar betur!

í gær fór ég í nudd aftur...búin að fara í þrjú skipti núna á þremur vikum og láta murka úr mér líftóruna. ég er búin að komast að því að ég er ekki masókisti. mér fannst þetta hrikalega vont bara en það verður betra eftirá. i hope!

hér er farið að kólna og laufin líkleg til alls þessa dagana. ég hlakka eiginlega bara til að sjá allt verða gult, rautt, fjólublátt og misbrúnt...haustin hérna eru óskaplega falleg, en stutt.

miðvikudagur, september 15, 2004

tíminn í dag í jazz 200 var hriiiiiiiiiiiiiiiiiikalega skemmtilegur. í miðvikudagstímana mæta allir með hljóðfærin sín og raddböndin í stuði og svo er bara djammað og lært af meistaranum (kennarinn er svartur gæi sem spilar á trompet og talar með djasslingói). fólkið í tímanum er komið mislangt í hljóðfæraleik en þarna inni á milli eru mjög færir einstaklingar og manni líður bara eins og maður sé að taka þátt í djasstónleikum! could it be any more fun?
það er líka stuð í djasskórnum...við erum byrjuð að æfa "alright, okay, you win" og förum að æfa lag með "earth wind and fire"...húja!

föstudagur, september 10, 2004

ég mæli með...

brúðkaupum.
það er "totally worth it" að gifta sig og halda veislu.

að læra það sem manni finnst skemmtilegt.
þvílíkur munur að byrja í háskóla og hafa áhuga á efninu. það getur verið virkilega gaman að læra!

sjónvarpi.
ekkert meira afslappandi en að hlamma sér fyrir framan imbann og horfa á eitthvað miður gáfulegt.

hljóðbókum.
gott í metróinu og á röltinu í ipodnum. þá þarf maður ekki heldur að lesa allar þessar bækur...hehehe

glad press 'n seal.
var að uppgötva þessa nýjung. ef þú hefur ekki prófað þetta drífðu þig þá út í búð og keyptu eina rúllu. miklu betra en "cling wrap".

tomma gunn
hann er bara bestur. ekki meira um það að segja.

þriðjudagur, september 07, 2004

gmail er kúl!
ég á nokkur boð í svoleiðis ef einhver vill.

fyrsti skóladagurinn búinn!

mér fannst bara þrælskemmtilegt í skólanum í dag, sérlega þó í jasskórtíma. újé! hún jeri brown er mögnuð og leist bara vel á mig sem sópran. :-)

tónheyrn og tónfræði verða strembnir kúrsar en samt töluvert áhugaverðir bara. merkilegt nokk!

fyrir þá sem ekki vita þá heitir skólinn sem ég er í concordia.

mánudagur, september 06, 2004

ég og teekrur
tommi og teekrur

mér tókst að fá tak í bak og hnakka í brúðkaupsundirbúningnum í byrjun ágúst og hef ekki náð mér síðan. í gær ákvað ég að reyna að gera eitthvað í því og fór í svona "sport massage". ómægod hvað það var vont og ég er ennþá að drepast. nuddarinn sagði að þetta yrði vont til að byrja með en þetta myndi batna smám saman og ég þyrfti að fara í nokkur skipti til viðbótar. sjæse! ég sem var eiginlega búin að sætta mig við að geta ekki snúið hausnum alveg til beggja hliða. hehhh...

hvað er kjánalegt við þessa mynd (sem var tekin í colombo á sri lanka)?

tommi er á leiðinni til kalí núna...verður þar fram á föstudag. fyrirtækið sem hann vinnur hjá, greenborder, er í mountain view í sílíkondal. þar er alltaf gott veður og fólk alltaf í stuttbuxum.

föstudagur, september 03, 2004



erum við ekki sæt? þetta er tekið á bentota ströndinni á sri lanka.
hér eru líka tvær myndir...ég á ströndinni og tommi hjá hótelinu.

ég er orðin ansi dökkhærð...fór í hárgeiðslu í gær og bað hann duane um að gera mig dökkhærða (ég þarf á því að halda...er að byrja í skólanum).

miðvikudagur, september 01, 2004

ég byrja í skólanum í næstu viku. það verður án efa stuð. ég fór og keypti bækur í gær og það er nú aðeins annað upp á tengingnum núna en í verkfræðinni! ég hefði getað keypt mér þessar bækur sjálf bara af einskærum áhuga...það hefði ég hins vegar ekki gert með varmafræðibækurnar eða vélhlutafræðina...hehhh

ég stal skónum hennar brittu. og ég á meira að segja aðra alveg eins! ætli ég verði ekki bara að senda henni nýja í pósti? annað væri ekki fair. :-)
hvernig viltu á litinn britta?

ég er ennþá í skýjunum eftir brúðkaupið...þetta ætlar að verða langlíft ský. jess!

hvaða gallabuxur eru flottastar? james jeans, true religion jeans, paper denim and cloth, 7 for all mankind?