Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

sunnudagur, ágúst 29, 2004

ég hef bara mest lítið að segja þessa dagana. nema kannski bara hvað ég er ánægð með lífið og tilveruna. :-)
skólinn byrjar í næstu viku hjá mér og ég er ennþá að græja námsleyfi og annað. það verður stuð að byrja í skólanum (með átján ára krökkum!)...

hey, ég átti afmæli um daginn og ég fékk meira að segja afmælisgjafir...þrátt fyrir að hafa fengið alltof mikið í brúðkaupinu!

það er búið að vera heitt og sveitt hérna síðustu daga. haustið virðist ekkert vera á leiðinni. í gær var 29° hiti en með raka reiknast það (feels like) um 37°!
maður verður ótrúlega slappur í svona mollu, kemur engu í verk og ég hef meira að segja prófað að stinga hausnum inn í frystinn! það er svakalega refreshing. hehh...

fimmtudagur, ágúst 26, 2004

myndir!!!

þá erum við búin að setja inn myndirnar af einnota myndavélunum. ég setti óskýrar myndir ekki með þ.a ef þið finnið ekki allar myndirnar sem voru teknar þá er það af því að þær komu ekki nógu vel út. myndirnar má finna hér...njótið!

við erum komin heim í heiðardalinn. mikið svakalega er gott að lúlla í sínu eigin rúmi...það er bara best!
ferðalagið okkar til sri lanka var alveg frábært. við sáum svo mikið og gerðum svo mikið að maður bara er ekki búinn að melta það alveg ennþá. það var líka alveg æðislegt að koma við í glasgow í einn dag og svo reykjavík í tvo á leiðinni hingað. við erum búin að eiga svo svakalega góðar stundir með fjölskyldunni okkar og vinum og eigum eftir að muna eftir þessum tíma með bros á vör það sem eftir er. :-)

við erum búin að fá myndirnar okkar frá ljósmyndaranum og það er hægt að nálgast þær á netinu. þeir sem vilja sjá verða að senda mér póst til að fá linkinn (ég vil helst ekki pósta hann hér fyrir hvern sem er).

aðrar myndir eru í vinnslu og t.d myndirnar úr einnota myndavélunum eru hér á geisladiskum við hliðina á mér en ég á bara eftir að setja þær á harða diskinn og gera þær aðgengilegar fyrir fólk...kemur allt með tíð og tíma.

ég á besta eiginmann í heimi...hann gaf mér bleikan mini ipod!!! maðurinn er bara snillingur. :-)

ég held ég eigi bara ekkert að blogga meira núna, þá verður þetta of væmið ábyggilega. hehehe...

miðvikudagur, ágúst 18, 2004

haldiði að tommi reddesiggi? hérna er ein mynd af okkur með munaðarlausum fílum :-/

við elskum fíla, alveg eins og pavarotti!!! Elephants Yeah!

þriðjudagur, ágúst 17, 2004

engar myndir enn...frekar slok frammistada...
eg er bara buin ad vera upptekin i brudkaupsferd sidan 10. agust...hehehe...og er enn. einmitt nuna er eg stodd a bentota beach hotel i sri lanka ad njota lifsins med elskulegum eiginmanni minum.
vid verdum her i einn dag til vidbotar og forum svo til colombo og thadan til glasgow med vidkomu i dubai...sidan maetum vid a skerid og stoppum stutt vid adur en vid fljugum heim a leid til montreal.
vid erum buin ad hafa thad alveg svakalega gott og buin ad sja svo mikid og gera svo mikid og borda svo gott og bara puff...varla haegt ad bidja um meira...nema kannski sol i dag...hehehe
segi thetta gott i bili. thad fa allir koss fra mer og knus fra tomma.
hjonin

mánudagur, ágúst 09, 2004

TAKK allir saman!!!
ég á bara engin orð til að lýsa því hve ánægð við tommi erum með lífið og tilveruna í dag. þetta var ólýsanlegt bara!

myndir koma von bráðar...

fimmtudagur, ágúst 05, 2004

eftirvæntingin er gífurleg...

nú eru bara tveir dagar í daginn stóra. mikið svakalega líður tíminn hratt!

brúðguminn er kominn til landsins og var sprellað með hann í gær...vinir hans klæddu hann upp sem konu. ég var flassari en tommi tígulegur kvenmaður...hmmm...er þetta það sem fólki finnst um okkur? æ dónt nó!

við britta föndruðum í gær...föndruðum eins og vindurinn. ætli það verði ekki föndrað eilítið meira í dag og skroppið í búðir að redda þessu síðasta og svona. maður þarf að versla óendanlega af smáhlutum fyrir svona atburð, þetta ætlar engan endi að taka.

það er allt dýrt á íslandi nema vatnið! hefur einhver annar tekið eftir þessu?