dagurinn í gær var snilld! ég var gæsin í gær og þetta, ásamt brauði, kökum og kruðeríi beið mín í gærmorgun þegar ég kom heim efir fýluferð í bæinn:
heima biðu mín líka björg, svanhildur, guðrún lára og britta og komu mér svo sannarlega á óvart með heimsókninni. ég var alveg græn, grunaði ekki neitt...sem mér fannst merkilegt af því að ég er nú með eindæmum eftirtektarsöm manneskja. hehe.
síðan sóttu mig davíð, ggg og gunni stef og létu mig sprella smá...hehh...vona að myndirnar af því hafi gufað upp. hehe.
að því loknu skutlaði davíð mér upp í kópavog þar sem beið mín andlitsbað og nudd...ómægod...it was heaven! ég var nudduð og "pampered" í laaaangan tíma og var svo svefndrukkin þegar ég kom út að ég man varla hvað gerðist...þá voru þær vinkonur mættar og við drukkum eplasíder og átum jarðarber í heita pottinum. snilld, bara snilld.
eftir þetta allt saman var svo farið í sturtu og ég dressaði mig upp í föt sem björg og britta höfðu valið af einskærri list úr óreiðukenndri ferðatösku minni og síðan var ferðinni heitið á vegamót þar sem við átum góðan mat og kjöftuðum og hlógum fram á kvöld...
takk allir saman! þetta var alveg frábært! :-)
sérstakar þakkir fær svo hann alvar davíð davíðsson sem samdi og lék í stuttmyndinni "das besuch".



