Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

sunnudagur, júní 27, 2004

helgin var snilld! fórum upp í mont tremblant og gistum í flottu húsi með tveimur öðrum pörum sem við þekkjum. maður getur leigt svona condo þarna með eldhúsi og svölum og öllu saman. við grilluðum og fórum í sauna og tzjilluðum í bænum þarna aðeins.

á svæðinu þarna í kring er svo hægt að gera allt milli himins og jarðar. við fórum í langan kanótúr niður á sem liggur þarna...höfum líklega farið um tuttugu kílómetra á kanó niður ána. við stoppuðum eitthvað á leiðinni og fengum okkur nesti og busluðum aðeins í ánni. það má sjá um þetta hér. veðrið var svakalega fallegt alla leiðina niður ána og þegar við vorum rétt búin að draga bátana upp í land þá kom hellidemba. heppilegt.

ég sit svo hér við tölvuna útbitin á innanverðum lærum og rasskinnum eftir moskítóflugur! ég bar flugnafælusprey á mig alla...hélt ég...en hef líklega gleymt þessum stað! mikið svakalega getur þetta verið óþægilegt.

helgin var samt sem áður alveg frábær.

fimmtudagur, júní 24, 2004

hvað er með þessa ritskoðunaráráttu í ameríku? af hverju breyta þeir bíómyndum svona mikið ef það sést í rass eða brjóst? ég get með engu móti skilið þetta. í gær sá ég að verið var að sýna sænsku myndina "fucking åmål"...búið að breyta nafninu náttúrulega, í "show me love"! kommon! alveg ótrúlega hallærislegt. svo sáum við "american pie" sýnda á einni bandarísku stöðinni hérna og þá var náttúrulega búið að taka út atriðið þar sem aðalpersónan er að "make sweet love to the pie"...atriðið sem var sýnt í sýnishorni á íslandi var sumsé tekið út. alveg ótrúlegt. það er nefnilega svo hættulegt að sjá rasskinnarnar á ungum karlmanni. börn geta blindast við það.

í dag er frídagur í quebec. það þýðir samt ekki að tommi sé í fríi...god damn.

mér sýnist vera sól úti. spurning um að fara að ná sér í tan.

annars er ekkert mikið að frétta. lífið gengur sinn vanagang. ég er aðallega bara að spá í brúðkaupið núna. sem er bara fínt! :-)

laugardagur, júní 19, 2004

búin að bóka far til íslands! lendi á klakanum snemma morguns þann 12.júlí og verð fram yfir brúðkaup...
tommi fer ekki fyrr en alveg í lok júlí þannig að ég verð látin sjá um allt brúðkaupsstúss. sem er bara allt í lagi, þá fæ ég að ráða...múhahahahahaha!

hér er hið fínasta veður, næstum of heitt bara. ég er með svakalegan ríg í hnakkanum og efst í bakinu eftir leikfimi í gær, tók á vöðvum sem hafa verið í hvíld ansi lengi og núna er ég sumsé að jafna mig. svakalega óþægilegt eitthvað.

britta systir átti afmæli í gær en ég bloggaði ekkert þá. hér með er henni óskað til hamingju og húúúúúúúúúúúúúúúúúrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrraaaaaaaaaaaaaaaaaaa fyrir því!

tommi fór að hjálpa sigga samstarfsmanni sínum að flytja. ég er bara heima, þarf að taka til og er of slæm í bakinu og hnakkanum til að gera nokkurn skapaðan hlut bara. god damn.

hér er ein mynd úr afmælisveislunni hans tomma. kakan er ennþá til og verður ekki kláruð.

fimmtudagur, júní 17, 2004

hæ, hó, jibbíjei og jibbíhíjeiiii...það er kominn sautjándi júní!
ekki að ég sé eitthvað að fagna sérstaklega, á ekki einu sinni fána. hvað þá blöðru og sleikjó!

langaði bara að segja eitthvað í tilefni dagsins. ég er ennþá í afslöppun eftir húsmóðurstörf síðustu vikna og nenni því ekki að vera að skrifa mikið. hehehe...

sunnudagur, júní 13, 2004

nú er afmælisdagurinn búinn og allir orðnir vel lúnir.

við byrjuðum daginn á því að vekja tomma næstum því (hann vaknaði til að fara í klóið rétt í því sem við vorum að gera okkur tilbúin að syngja afmælissönginn). morgunmaturinn var ekki af verra taginu, heitt kakó og brauð með ýmsu áleggi ásamt bláberjapönnukökum með hlynssýrópi. namminamm.
tommi fékk svo afmælisgjafirnar sínar, golfsett frá mér og pikknikktösku frá krökkunum. mér sýndist hann bara hæstánægður með gjafirnar. :-)

um hádegið sendum við tomma út til að geta búið til handa honum listaverk með fingramálningu og límmiðum alls kyns. málverkin voru svo límd upp á vegg og borðið skreytt og blöðrur hengdar upp. ég var búin að baka þriggja hæða ameríska súkkulaðiköku (a la granaskjól 44 með englakremi) og kaupa ávexti og jarðaberjagos. þegar tommi steig inn um dyrnar sungum við svo aftur fyrir hann og snæddum köku og æfðum okkur svo í golf.

deginum lauk svo á því að við keyrðum vestur og hittum hann sigga sem vinnur með tomma og veiddum með honum körtu og frosk. það fannst krökkunum hið mesta ævintýri og voru þau ansi hissa á því að froskurinn var ekki slímugur viðkomu! svakalegt fjör sumsé. kannski skelli ég inn myndum seinna.

jæja, nú er bara að fara að pakka. þau fara á morgun...við þurfum að keyra til baltimore!!! það eru ekki nema 800km þangað. sjæse!

föstudagur, júní 11, 2004

púff hvað ég er syfjuð. ekki hægt!
ég er reyndar búin að vera eitthvað hálflasin þessa vikuna. hundleiðinlegt bara, skil ekki þetta ónæmiskerfi mitt...ég sem er búin að vera svo dugleg að hreyfa mig og borða hollt og taka vítamín og allt! frat!

tommi á svo afmæli á sunnudaginn og ég er búin að ákveða hvað ég ætla að gefa honum. jess! ég vona bara að hann verði ánægður.

krakkarnir fara svo á mánudaginn og þá tekur við heilsuátak sumar 2004. jíha!

ég hef ekkert að segja annað. ekkert gaman að lesa þessa síðu ég veit. ég skal bæta úr því þegar ég hef tíma. og nennu. hehh...

föstudagur, júní 04, 2004

maður er nú ekki mikið að blogga núna. nóg að gera, er alveg að brillera í húsmóðurhlutverkinu...elda og þríf eins og vindurinn. hehe. bráðum byrja ég kannski að sauma líka!

stefnum á að fara í park safari um helgina og gefa sebrahestum gulrætur í svona drive-thru safari. það verður sko spennandi!

það eru enn menn að gera við bílskúrinn og stéttina hjá okkur, þetta ætlar bara ekki að hætta og hávaðinn er eiginlega orðinn hluti af deginum bara. ég er nú orðin hálfóþolinmóð að fá svalirnar okkar aftur. í þessu góða veðri væri gaman að geta grillað og setið úti. svekk.

ég þarf svo að fara að bóka ferð til íslands í sumar. ætli ég stefni ekki á að vera komin á klakann í kringum 10. júlí. annars er það óákveðið. maður verður jú að hafa nægan tíma í brúðkaupsundirbúning. smakka kökur og svona...hehehe.