Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

mánudagur, maí 31, 2004

mamma og ég í new york city


helgin var fín. við fórum í biodome og kíktum upp á fjall og sáum íkorna. þess á milli tókum við því bara rólega og krakkarnir dunduðu sér við leik og annað.

nú þarf ég bara að fara að klára þessi boðskort svo það verði hægt að senda þau sem fyrst. vill fólk ekki hafa nægan tíma til að plana sumarið og velta fyrir sér hvort það komi eða ekki? jamm og jæja.

fimmtudagur, maí 27, 2004

5 mínútur geta gert gæfumun! við keyrðum til boston í gær til að sækja krakkana hans tomma og svo aftur til baka í einum rykk. atvinnuleyfið hans tomma rann út í dag og við héldum að við værum alveg örugg með pappírana okkar og lögfræðingurinn hans tomma hafði sannfært hann um það eeeeeeeeeeeen...annað kom í ljós þegar við renndum í hlaðið á landamærastöðinni rétt fyrir miðnætti. við sumsé mættum fimm í tólf og litlu hefði mátt skeika því okkur hefði ekki verið hleypt inn í landið samkvæmt vörðunum þarna. sjúkk!

nú er bara verið að tzjilla enda allir hálflúnir eftir langt ferðalag síðasta sólarhringinn.

mamma fór líka í gær og tók með sér brúðarkjólinn. jess. æi, hvað það var gott að hafa mömmu hérna í þessa rúmu tíu daga eða tæpar tvær vikur. verst bara hvað það er mikið vesen að komast hingað frá íslandi. annars myndi fólk vera miklu duglegra að heimsækja okkur. maður verður kannski bara að fara að eiga börn til að fólk hafi ástæðu til að koma í heimsókn!?! segi svona.

þriðjudagur, maí 25, 2004

jebb. mamma fer á morgun og við erum búnar að vera hörkuduglegar í undirbúningi og föndri...
kjóllinn er kominn í hús, boðskortin að verða til og ýmislegt annað komið.
við erum búnar að labba svo mikið síðustu tvær vikurnar að við erum farnar að fá í mjaðmirnar og hnén. hehehe...

krakkarnir hans tomma koma svo á morgun og verða í næstum þrjár vikur. það verður stuð.

hér er sumsé nóg að gera. sem er bara fínt!

þriðjudagur, maí 18, 2004

new york var algjör snilld! við skoðuðum svooo mikið og það var svooo gott veður að það hálfa væri nóg. við fórum upp í empire state bygginguna, í tiffany's, grand central station, guggenheim safnið, 5th avenue og broadway og bara vá hvað er mikið hægt að gera í new york. maður nær í rauninni bara að sjá smá hluta á tveimur dögum en við vorum mjög duglegar. við fórum líka í svona sightseeing í tveggja hæða strætó og sátum úti og sleiktum sólina í leiðinni. svakalega vel heppnuð ferð verður að segjast. :-)

núna erum við bara að tzjilla hérna heima og ætlum að kíkja í bæinn á eftir. erum svona að búa til plan fyrir brúðkaupsskipulag og svo er ég nú alltaf að kíkja eftir skóm og svoleiðis dóti til að vera í á daginn stóra. jess!

það rignir núna en í gær var alveg frábært veður og við skelltum okkur til westmount að skoða strekktar kerlingar í unglingafötum. hehehe...alveg sér þjóðflokkur þessar ríku kerlingar í westmount. þær bara meika ekki að eldast og eru svona "fjarskaungar", sumsé ef maður sér þær í tuttugu metra fjarlægð líta þær ungar út en þegar maður kemur nær eru þær alveg ferlegar...búnar að fara í alltof margar aðgerðir og fá sér hárlengingar og guð má vita hvað. við mamma erum bara ánægðar að vera með feita húð í dag...þá eldumst við betur. :-)

föstudagur, maí 14, 2004

nú fer ég að leggja í hann bráðum...búin að taka svolítið til og setja eitthvað ofan í tösku og svona þetta týpíska. það er reyndar spáð rigningu í ny fyrir helgina en við skulum bara vona það besta! ég tek bara með mér regnkápuna.

verð að muna að taka myndavélina með, og passann...jebb, allt að verða reddí. hef ekkert að segja eiginlega frekar en fyrri daginn. ekki nema að ég missi af júróvisjón og er ekki brúðkaup aldarinnar í dag...jafnvel núna? hehe, glætan að það verði brúðkaup aldarinnar...það verður ekki fyrr en í ágúst ;-)

mánudagur, maí 10, 2004

jíha! nú er það ákveðið! ég hitti mömmu á föstudagskvöldið í new york og við verðum tvær að tzjilla í ny í tvo daga áður en við komum hingað. nú er bara að plana hvað við eigum að gera í ny (fyrir utan að skoða í búðir á 5th avenue og fara upp í empire state)...

helgin var annars stórgóð. við fórum í hjólatúr og bíltúr og í bæinn og horfðum á dvd og bara höfðum það gott. veðrið var svo gott í gær að við fórum á "the tam tam's" sem er svona nokkurs konar vikuleg útihátíð yfir sumarið hérna. fólk safnast saman í einum garði niðri í bæ og spilar á bongótrommur og ýmis hljóðfæri og dansar og reykir hass og spilar fótbolta og dansar línudans...við upplifðum mjög spes hlut í gær þar sem við láum í grasinu og sleiktum sólina. í stað þess að heyra kallað: "hot dogs, popcorn, beer..." heyrðum við: "hash, pot, do you need something...i have stuff", sumsé hér í borg á góðum sunnudegi er auðveldara að nálgast jónur en pulsur! eins furðulegt og það má viðrast þá er lítið gert í því að fólk sé úti á götu að reykja gras...en hins vegar ef löggan sér þig með bjórflösku þá áttu á hættu að fá stóra sekt. furðulegt!

föstudagur, maí 07, 2004

mikið svakalega getur verið gott að borða þegar maður er búinn í ræktinni! og svakalega er gott að setja kalkúnabringu saman með salati á tortilla...kjamms. hollt og gott!

við tommi gerðum okkur sérferð út í jean coutu (svipað og lyfja nema stærra) á miðvikudagskvöldið til að kaupa spilastokk. slíkt hefur ekki verið til á þessu heimili síðan til þess var stofnað og alveg kominn tími til að rifja upp ólsen ólsen og veiðimann. við erum búin að skemmta okkur konunglega við að spila þessi tvö spil (við kunnum ekki meira í augnablikinu). það er í raun alveg ótrúlegt hvað maður getur skemmt sér mikið yfir einföldum hlutum og bara notið þess að vera til. ég vissi líka ekki að það væri svona gaman að spila við tomma, mjög svo hnyttinn leikmaður...sérstaklega þegar hann notar einungis sérhljóðann "a"!

miðvikudagur, maí 05, 2004

ég hef bara ekkert að segja frekar en fyrri daginn! keypti blóm í dag og fór í gymið...what else...hmmm...mamma kemur bráðum í heimsókn...víhíííííí. þá verður sko farið í alvöru skipulagningu fyrir brúðkaupið! itts góíng tú bí greit.

jæja, maturinn er til. best að hafa hann til fyrir húsbóndann sem er á leið heim úr vinnu. verð að taka rúllurnar úr hárinu fyrst...hehehe...smá djók.