tuttugu og sjö gráður úti og sól! það er ekkert annað...ég ætla út að hjóla.
föstudagur, apríl 30, 2004
fimmtudagur, apríl 29, 2004
goddem...liðið okkar "montreal canadians" var að tapa fyrir "tampa bay lightning"...í hokkí. furðulegt en satt að tampa bay sé eitt af bestu liðum n-ameríku í hokkí!
í dag fór hitastigið upp í 26 gráður!!! og ég fór út áðan á flíspeysu...ekki alveg í lagi með mig, ég bara treysti veðrinu ekki ennþá. en sumarið er líklega komið...þá er bara að skella loftkælingunni í samband, annars svitnar maður til fjandans!
miðvikudagur, apríl 28, 2004
hvað er betra en að lúlla með nýþvegið? jú, að lúlla með viðraðar sængur og nýþvegið líka. það er sko best!
dagurinn í gær fór að mestu leyti í að brjóta saman föt, raða í skápa og þvo. það er svakalegur munur á skipulaginu og nú er bara að sjá hvort við tommi getum farið eftir því og sett fötin inn í skáp (reyndar hillu...ekki með hurðum) eftir að hafa notað þau. við erum ekkert sérlega dugleg við það og þess vegna varð að fara út í fyrirbyggjandi aðgerðir til að gera okkur lífið léttara.
nú er ég officially kveflaus. hip, hip, húrra!!!
þriðjudagur, apríl 27, 2004
ég er í bloggleti. alveg eins og allir hinir. ætli ég sé of áhrifagjörn? nahh...bara leti.
við tommi fórum í ikea um daginn og keyptum hillur til að geta komið öllu stöffinu okkar fyrir. orðið ansi plásslítið og einhvern veginn ekki nógu heimilislegt. nú er búið að bæta úr því og stend ég þess vegna í því að brjóta saman föt og skipuleggja. somebody has to do it!
nú er verið að rífa svalirnar okkar niður og þvílík læti í þessum mönnum...blótandi á frönsku og öskrandi á hver annan að koma með hitt og þetta. það er verið að gera við bílageymsluna og þess vegna þarf að rífa allt upp og taka grasið ofan af henni o.sfrv. meiriháttar aðgerðir en nauðsynlegar að mér er sagt.
við sáum kill bill vol. 2 um daginn og fannst hún bara nokkuð góð. tarantino gerir skemmtilegar og nýstárlegar myndir...mér finnst sérstaklega athyglivert tónlistarval hans í bíómyndum, ekki þessi týpíska kvikmyndatónlist.
í gærkvöldi fórum við að hlusta á kunningja syngja á tónleikum í á mcgill campusnum, nánar tiltekið redpath hall. þetta voru einsöngstónleikar og hluti af b.a prófinu hjá kauða. hann stóð sig feiknavel og söng sibelius á sænsku...ég gengdi því merkilega hlutverki að vera "his swedish coach" eins og hann kallaði það. gaman að því. :-)
í dag á svanhildur afmæli. til hamingju elsku besta svanhildur. :-)
föstudagur, apríl 23, 2004
ég sver það. ég hef ekkert að segja. bara ekki neitt merkilegt að gerast hjá mér.
svo er nú það að aðrir bloggarar sem ég les eru jafnlatir og ég, ef ekki latari, og þá er ekkert gaman að browsa. engar fréttir, ekkert slúður. gúrkutíð í bloggheimum.
hér er ein mynd af gústa mauno áður en hann fór heim til sín. hrikalega sætur.
miðvikudagur, apríl 21, 2004
Gleðilegt sumar!!!
þó að sumardagurinn fyrsti sé ekki alveg kominn langaði mig bara að óska öllum gleðilegs sumars (eiginlega vors) og að minna fólk á að njóta góða veðursins, upplifa náttúruna og taka lífið ekki of alvarlega. peace on earth!
það er farin að hlýna svo mikið núna. gráðurnar farnar að nálgast tvo tugi. jibbí!
ég er byrjuð að hlusta á "breakfast of champions", veit ekki hvað mér finnst ennþá...þetta "þykir" víst merkilegra pár en það sem ég hlustaði á á undan en ég veit ekki hvort ég á eftir að halda athyglinni...sjáum til. ég var nú reyndar að hlusta á þetta niðrí bæ og mikið af distraction í gangi.
geisp. jahérna hvað maður getur orðið sibbinn á því að vera með stíflað nef...ekki nóg súrefni. muna að anda.
make love not war. er það ekki falleg hugmynd?
:-)
mánudagur, apríl 19, 2004
hljóðbækur eru snilld. ég nenni aldrei að lesa neitt, eins og ég hef skrifað einhvern tímann áður, svo ég prófaði að kaupa svona hljóðbók á fimm geisladiskum. ég vissi ekkert hvaða bók ég átti að velja svo ég prófaði bara eitthvað. bókin sem varð fyrir valinu fannst mér alveg frábær. hún heitir "can you keep a secret?" og er svona ástarsaga í stíl bridget jones. það er bresk leikkona sem les söguna og gerir vel. ég byrjaði á fyrsta geisladisknum í gær á leiðinni á hljómsveitaræfingu. ég ætlaði eiginlega að nota þetta svona þegar ég fer í lestina, í ræktinni og svoleiðis en guess what. ég gat ekki hætt að hlusta. ég gat ekki beðið eftir að fara heim og heyra hvað gerðist næst...þegar ég kom inn úr dyrunum hljóp ég að dvd spilaranum í stofunni og setti næsta geisladisk í. þar sat ég svo frá 6 til 11 að hlusta á söguna!!! ég gat með engu móti hætt og sat algjörlega einbeitt að hlusta...klappaði af og til og varð vonsvikin líka. alveg ferlegt. nú er ég búin að panta eina bók í viðbót...sjáum hvernig hún verður.
tommi kom heim í gærkvöldi...mikið svakalega var gott að fá hann heim. búin að vera heldur leiðinleg vika og niðurdrepandi.
laugardagur, apríl 17, 2004
nú fer veikindaframhaldssögu stínu að ljúka...thank god!
ég hef eiginlega ekkert að segja. vildi bara láta vita af mér. ég er ennþá lifandi. það er komið vor í montreal. spáin fyrir mánudaginn er eins og það gerist best á íslensku sumri...heilar tuttugu gráður og sól að hluta til. mér finnst það frábært.
gústaf mauno braggast. hann er nú með eindæmum sætur. næstum því of sætur.
áfram kr.
miðvikudagur, apríl 14, 2004
jæja, stuð og stemning...dreif mig bara til læknis og var sett á sýklalyf og sagt að fara til háls- nef- og eyrnalæknis. það er víst ekki normalt að vera með kvef svona lengi. ojæja...vona bara að þetta virki. skellti mér reyndar líka í gymið og gerði svona "light workout", nennti hreinlega ekki að vera heima lengur að horfa á sjónvarpið.
nú er ég búin að fá myndir af gústa litla og tala við múttu og magga bró og svona. maður fær bara hlakk yfir því að verða kannski mamma sjálf einhvern tímann seinna. :-) ekkert að gerast eins og er...fyrir forvitna. hehe
þriðjudagur, apríl 13, 2004
mikið svakalega leiðist mér að vera ein heima. sérstaklega af því að ég er búin að vera lasin. ég er búin að horfa á "mona lisa smile", "something's gotta give" og "school of rock" á dvd. fyrir utan það er ég búin að horfa á framhaldsþætti ýmis konar og skoða netið. það er bara takmarkað mikið hægt að gera þegar manni líður illa. hvað getur maður gert annað en horft á sjónvarp og slappað af? ég er jú búin að þvo þvott og taka til í eldhúsinu...svo fór ég í bað áðan, varð alltof kalt, vatnið hérna er ekki nógu heitt!
það vantar slúður. bloggararnir sem ég les venjulega eru búnir að vera svakalega óduglegir við að skrifa síðustu vikur og ekkert bitastætt slúður í langan tíma. ég ber því fram formlega kvörtun og krefst meira slúðurs og skemmtisagna ýmiskonar. þeir taka til sín sem vilja. svo er nú alltaf gaman að fá tölvupóst, tjahh eða símhringingar....um leið og ég skrifaði orðið "símhringingar" hringdi síminn og það var hún mamma mín sem var að tilkynna mér að fæddur sé gústaf mauno magnússon, bróðursonur minn...til hamingju fjölskyldan finnlandi! :-) kennitalan varð því ekki 040404 heldur 140404 sem er engu verra. jíha!
sunnudagur, apríl 11, 2004
páskarnir komnir og tommi farinn.
í gær var eldað páskalamb með ljúffengu meðlæti eins og má sjá á þessari mynd. maturinn var alveg hrikalega vel heppnaður en tímasetningin á kjötinu var ekki alveg nógu góð...ofninn hérna er eitthvað skrýtinn!
eftir matinn settumst við fyrir framan imbann og gæddum okkur á ekta íslenskum nóapáskaeggjum. ég fékk málsháttinn "sá gefur mest sem minnst má" og tommi fékk "holdið er torvelt að temja". okkur fannst þessir málshættir bara passa ágætlega...hehehe.
dagurinn í gær fór annars að mestu leyti í stúss að redda hlutum fyrir íslandsferð tomma. ég hef líklega ofreynt mig í eldamennskunni því ég vaknaði í nótt í svitakófi og með hita og almennan slappleika. svekk fyrir því!
hér sit ég því, enn og aftur, ein og lasin. alveg er þetta nú dæmigert!
ég get samt huggað mig við það að eiga ennþá íslenskt súkkulaði. verkefni dagsins er að borða það.
síðast en ekki síst gleðilega páska! reynið nú að klára páskaeggin ykkar og hafa það gott í fríinu.
love,
lazarus
fimmtudagur, apríl 08, 2004
ég hef nú ekki mikið að segja þessa dagana. það gerist eitthvað svo lítið hjá mér.
tommi fer til íslands á páskadag. ég verð bara gaaaaaaaaalein hér í viku...eins gott að mamma sendi páskaegg! ég var að spá í að elda bara páskalambið á laugardaginn, þá getum við skötuhjúin haft smá huggulegheit og haldið páskana hátíðlega saman. jafnvel að maður þjófstarti páskaeggjaáti líka!
vill ekki einhver koma í heimsókn til mín? mér finnst það nú hálfgert frat að einungis þrír fjölskyldumeðlimir hafi heimsótt okkur hingað þessi næstum tvö ár sem við höfum búið hér. engin frammistaða verð ég að segja. reyndar höfum við tommi verið mjög dugleg við að fara til íslands þ.a það er ekki eins og maður hafi ekki hitt neinn. ég vil bara ítreka að sumrin hér eru heit og sólin skín mikið og við erum með sundlaug í garðinum...anyone? bueller?
miðvikudagur, apríl 07, 2004
þriðjudagur, apríl 06, 2004
í ljósi brjóstaberunar janetar og alls fjaðrafoksins sem skapast hefur eftir það "stórhættulega" atvik fannst mér sniðugt að búa til nokkrar myndir sem sýna mótsagnakennda ameríska menningu...
sunnudagur, apríl 04, 2004
vorið fór! það er meira að segja spáð snjókomu í nótt. bömmer maður.
litli frændi er ekki ennþá kominn í heiminn...ég bíð spennt eftir að síminn hringi, nú hlýtur þetta bara að fara að gerast. það væri nú ansi kúl að vera með kennitölu sem byrjar á 040404. mín byrjar á 230876...mér finnst það reyndar alveg kúl líka. skiptir þetta einhverju máli? er maður ekki bara ánægður að eiga afmæli nó matter what?
ég er algjörlega hætt að þola sígarettureyk, reyndar þoldi ég hann aldrei en ég er bara komin með nóg. við tommi fórum að hlusta á dan trommaravin hans spila á pínulitlum stað niðrí bæ og það var eins og krádið þarna væri í reykingakeppni. ég fylgdist með drengjunum sem sátu við hliðina á okkur og það var alveg greinilegt að þetta var eitthvað issjú hjá þeim, þ.e að reykja sem mest. ungir hraustlegir strákar að reykja í kapp við hvern annan...meikar ekki alveg sens hjá mér. ætli þetta sé eitthvað óöryggi? það er jú ansi krefjandi fyrir suma að sitja og hlusta á tónlist án þess að vera með neitt í höndunum...jafnvel ekki að drekka neitt.
það sem fer óstjórnlega í taugarnar á mér er þessi frekja í sumu reykingafólki, að það geri sér ekki grein fyrir að fólk í kringum það vilji ekki þennan reyk. þetta er ekki bara þeirra mál ef það er annað fólk í kring. mér finnst t.d alveg út í hött að fólk skuli bara leyfa sér að reykja þar sem aðrir eru að borða, ekki myndi ég t.d standa upp og prumpa stöðugt! mér finnst þetta alveg sambærilegt. fyrir utan jú að prumpufýlan festist ekki jafnvel í fötum og sígarettufýlan!
svo er nú annað. fólk sem vinnur á stöðum þar sem mikið er reykt er jú að stunda óbeinar reykingar allan sinn vinnudag. hvers konar réttlæti er það? reykingafólk er sumsé hægt og sígandi að eitra fyrir starfsfólki veitingastaða og öldurhúsa. sorglegt.
ég vona bara að fleiri fari að fordæmi þeirra kaliforníubúa að banna reykingar á vinnustöðum og veitingastöðum o.s.frv.
fimmtudagur, apríl 01, 2004
mamma sendi okkur páskaegg!!! þau komu í dag...ég hlakka svoooooooooo til að borða mitt...get varla beðið. ég get heldur ekki beðið eftir að fá símhringingu frá fjölskyldunni í finnlandi. það fer nefnilega að líða að því að nýjasti fjölskyldumeðlimurinn komi í heiminn. ég sem hélt að hann ætlaði að sjá um aprílgabbið í ár. ojæja.
ég hitti tomma og vinnufélaga hans á írskum pöbb í gærkvöldi og þar var setið fram á nótt og kjaftað. það eru tveir guttar frá kaliforníu í heimsókn (reyndar býr annar þeirra í denver...en hey...hú kers) og eins og svo oft áður var rætt eilítið um bússj og hans vitleysu. ég hef hingað til hitt einn...EINN...ameríkana sem er sáttur við bússj og myndi kjósa hann aftur og hef ég nú hitt þá ansi marga. ég vissi ekki fyrr en í gær að bússj kemur upprunalega frá austurströnd bandaríkjanna og var kærður fyrir að nota kókaín og eitthvað fleira sniðugt á sínum tíma...hann er sumsé ekki fæddur og uppalinn redneck...hann er bara að feika það fyrir vinsældir...hehehe. af mínum kynnum við bandaríkjamenn hef ég komist að þeirri niðurstöðu að fólk sem er vel upplýst og menntað skammast sín fyrir forsetann en heittrúaðir kristnir menn sem koma frá miðríkjunum finnst hann sniðugur. það er ekki að því að spyrja að quebecbúar eru alfarið á móti bússj og amerískri menningu, þeim finnst frakkar líka kúl. ekki er öll vitleysan eins. :-)



