Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

miðvikudagur, mars 31, 2004

húrra fyrir vorinu!!! sá krókusa blómstra í dag og varð veik yfir fræjunum sem eru til sölu í rona þegar ég kíkti þangað að kaupa fötu og svampa. í sumar verður fjárfest í blómum til að hafa á svölunum...það er bara ekki annað hægt!
ég er líka búin að ætla að kaupa inniplöntu mjög lengi...það er víst svo gott fyrir súrefnisinnihald loftsins. hehehe...
ég uppgötvaði svaaaakalega góðan pastarétt í gær. og hann er svo einfaldur að tommi gæti eldað blindandi...segi það nú ekki alveg en samt. pasta með sveppum, spínati og hvítlauk (nb slatta af sveppum og spínati). maður sýður pastað, steikir hitt og blandar saman...alveg hrikalega gott og ef maður vill meira prótín með getur maður haft túnfisk on the side. tekur 20 mínútur að hafa þetta til. ég nefnilega hef ekki þolinmæði í að eyða meira en hálftíma í matargerð svona dags daglega svo að þegar ég elda þá geri ég það leifturhratt og ofurskipulega þannig að enginn tími fer til spillis. kannski ætti ég að gefa út matreiðslubók sem heitir "the 20 minute chef", eða "recipies for people with attention disorders", eða jafnvel þrengja markhópinn töluvert og kalla bókina "the engineer singer cookbook"....well maybe not.

mánudagur, mars 29, 2004

það er eitt varðandi biblíuna og þróunarsöguna sem ég skil ekki alveg. ef adam og eva voru þau einu sem voru til í byrjun...hvernig fóru þau að því að búa til heilan þjóðflokk án þess að allir ættu við erfðagalla og sjúkdóma tengdu því að stríða? og hvernig var farið að því að syndga ekki en samt eiga börn með maka innan nánustu fjölskyldu? æ dónt gett itt. hvernig getur fólk sem virkilega trúir þessu sætt sig við þetta? ekki myndi ég vilja að foreldrar alls mannkyns hefðu átt börn með börnunum sínum. ég meina kommon!

það er byrjað að vora fyrir alvöru hérna hjá okkur á golugötu. í dag er spáð sól og 12°. jíha. kannski fer maður að sjá eitthvað grænka bráðlega. ég keypti mér líka vorskó í gær...bleikir með blómum og grænum röndum...

föstudagur, mars 26, 2004

þær guðrún lára og björg minntust á í kommentunum hér fyrir neðan að ég ætti að vera með berar tásurnar í 15° blíðunni í dag. eins furðulega og það má virðast þá var í ég buxum, kjól, vorkápu og með trefil...og í lokuðum skóm! það er bara einhvern veginn ekki sama blíðan hér í 15° og við sama hitastig á íslandi. ég er búin að venjast þessu held ég og núna fer ég ekki úr sokkunum fyrr en það verður í kringum tuttugu stiga hiti. við slíkar aðstæður er maður á bíkiní á íslandi! merkilegt þetta veður og hvernig fólk hagar sér eftir því.

það lítur út fyrir að við tommi verðum hér einhvern hluta af páskunum...verður maður þá ekki að panta sér páskaegg á nammi.is eða biðja múttu að senda? verða nokkuð páskar án nóa síríus páskaeggja?

í gyminu í gær tilkynnti miguel mér að ég væri komin í karlmannaþyngdir í lóðunum. jess! bráðum verð ég hriiiiiiiyyyyyyyyyyykaleg. takmarkið hjá mér er að vinna mömmu í sjómann...þá loksins get ég verið ánægð. :-)

fimmtudagur, mars 25, 2004

jesús almáttugur! ég myndi hrópa hallelúja ef ég tryði á guð. það er spáð 15° fyrir morgundaginn...fiiiiiiiiiiiiiiimmmmmtááááááán. reyndar líka rigningu en mér er nett sama. svo lengi sem það er hlýtt er mér sama. gvöð í hverju á ég að vera...ég er svo spennt.

við fórum í bíó í gær á eternal sunshine of the spotless mind. áhugaverð mynd og jim carrey er alvarlegur næstum alla myndina...gengur bara furðuvel hjá honum. mæli alveg með myndinni.

þriðjudagur, mars 23, 2004

það er alveg ótrúlegt hvað fólk getur talað mikið um sjálft sig og hvað það er rosalega hæft á einhverju sviði en svo þegar kemur að því að sýna það býr ekkert að baki öllu talinu. ég hef lent í þessu aftur og aftur. fólk segir að það sé alveg svakalega reynt og hæfileikaríkt á einhverju sviði og maður er æðislega imponeraður og býst við miklu en verður svo fyrir gífurlegum vonbrigðum. þetta er sérlega algengt á meðal tónlistarmanna hugsa ég. t.d var söngvarinn sem prófaði að syngja með okkur í gær alls ekkert góður. ég varð fyrir ferlegum vonbrigðum og núna þurfum við að byrja að leita aftur. svekk!

ég er ennþá með brotna tönn. má bara ekki vera að þessu. læt gera við hana eða draga hana úr í næstu viku bara. hlýt að þrauka.

sunnudagur, mars 21, 2004

ég mæli með laginu "she wants to move" með n.e.r.d...nýja platan þeirra er ansi kúl. hann pharell var líka kúl með snoop dogg í laginu "beautiful". aight!

laugardagur, mars 20, 2004

ARRRRRGHHH...ég braut tönn áðan! ég fór fyrir nokkrum árum í rótarfyllingu sem tókst víst ekki nógu vel og tannlæknirinn minn hér sagði mér að drífa í því að láta laga þetta af því að fyllingin gæti brotnað...ég náttúrulega bara "tzjillaðu mar, ég geri þetta seinna" svo brotnar tönnin næstum hálf bara áðan! sjitt og það er sunnudagur á morgun. man, þetta er ekki gott.

gærkvöldið var snilld. paul vinur minn hringdi í okkur í gær og bað tomma um að redda sér á giggi sama kvöld af því að gítarleikarinn hans gat ekki mætt. tommi sagði náttúrulega jájá og kom heim úr vinnunni um kvöldmatarleytið og náði að fara yfir svona hundrað lög fyrir tíu...hehe. við fórum svo á staðinn þar sem giggið var og voru þar mættir paul, mimo, gilbert og þeirra föruneyti. stemningin var alveg gífurleg og staðurinn pakkaður til þrjú. tommi fór á kostum og ég fékk að syngja eins og fimm lög líka. :-) ég fékk alveg gríðarlega góðar móttökur...fólk hrópaði "stína" og klappaði...hehehe. hugsa að bjórinn hafi verið að tala í því tilfelli. en nóg var stuðið. ég tók nokkrar myndir og skellti þeim bara hér (ég nennti ekki að búa til thumbnails).

á morgun hefst sýning í listaskólanum. ég fór í gær að hengja stöffið mitt upp á vegg. ég tók nokkrar myndir og skellti þeim hér (engar thumbnails hér heldur).

miðvikudagur, mars 17, 2004

ég hlakka svakalega til að gifta mig. undirbúningurinn gengur bara ágætlega miðað við að vera í annarri heimsálfu að plana. gott að eiga góða að í þessum málum. mömmur og pabbar...systkini og vinir eru best. much love.
ég er alveg sammála henni önnu þorbjörgu með það að umræða um langtímasambönd og hjónabönd er mikið á neikvæðu nótunum í fjölmiðlum og almennt núorðið. það finnst mér miður. maður heyrir miklu oftar af leiðinlegum skilnaði, forræðisdeilum og rifrildum en af fólki sem er saman og ánægt með það. ég hugsa að þetta dragi svolítið þróttinn úr fólki, eins og það sé eitthvað óeðlilegt að vilja gifta sig og eiga börn. hvað er betra en að eiga góða fjölskyldu? það er allavega númer eitt á mínum lista.
mikið af vinsælum sjónvarpsþáttum í dag fjalla líka um "ungt" fólk sem er einhleypt. þar eru allir alltaf á stefnumótum og æðislega happí að vera single og ráða sér sjálfur. ungar konur sem þykja vera æðislega sjálfstæðar og vita hvað þær vilja...eftir nokkrar þáttaraðir eru þær ekkert svo ungar ennþá. eru ekki leikararnir í friends og sex and the city um og yfir fertugu? ekki að það sé eitthvað gamalt... í raunveruleikanum hefur fólk bara meiri áhuga á hjónaböndum og barneignum fyrir þann aldur. sem er eðlilegt miðað við líffræði mannsins.
punkturinn er bara sá að líf einhleypra er fegrað svo mikið í umræðunni í dag að kostir hjónabandsins gleymast. af hverju er ekki kúl að vera giftur og happí? mér finnst mamma og pabbi kúl og þau hafa verið saman síðan þau voru fimmtán. mér finnst það miklu meira spennandi en að vera ennþá í deitíngpakkanum þegar ég verð um fertugt. call me old-fashioned en mér finnst bara frábært að vera að fara að gifta mig og vera gellan hans tomma um ókomna tíð. :-)
hallelúja!

af hverju er ekki komið vor í montreal ennþá? hér er skítakuldi...frost og rok. ég er orðin alltof óþolinmóð. Hálfpirruð bara ef ég á að vera alveg hreinskilin. ég var búin að ákveða að draga fram hjólið mitt og byrja að hjóla en í þessari veðráttu gengur það ekki án þess að vera með grímu og þrjú pör af vettlingum. væ væ vææææææææææææ..

og getið hvað!! kvefið er ekki farið ennþá...ég hósta ennþá og nefið er byrjað að stíflast aftur. hugsanlega er það bara rykofnæmi eða eitthvað en þessi hósti er alveg útúr kortinu.

í næstu viku verður sýning í listaskólanum mínum og ég verð með þrjú málverk, nokkrar teikningar og fjóra skúlptúra þar. jíha. details og myndir seinna.

peace out

þriðjudagur, mars 16, 2004

hér er búið að vera kuldakast í nokkra daga núna og það lítur út fyrir að það byrji ekki að hlýna fyrr en í næstu viku. svekk. svakalega getur maður orðið óþolinmóður að bíða eftir vorinu.

rétt í þessu var óperusöngkonan sem býr hér í næstu íbúð (reyndar er hún aldrei heima) að hrósa okkur fyrir spileríið síðustu tvo sunnudaga...sumsé jazzdótið. jess. hún ætti nú að vita um hvað hún er að tala. :-)

bráðum verð ég farin að geta spilað og sungið yesterday...vei...er sko að æfa að spila það á píanó og syngja með. alveg frábært að læra þetta og ég sé alveg fram á að geta lært slatta á ekki of löngum tíma. málið er bara að vera dugleg að æfa sig. þetta er miklu skemmtilegra en þegar ég var að læra á píanó sem krakki. þá fannst mér alveg ógurlega leiðinlegt að æfa mig á píanóið en fannst hins vegar gaman að spila lögin þegar ég var búin að læra þau utan að. núna er ég bara að pæla í hljómum og tóntegundum, sumsé praktíska hlutanum.

ég keypti mér bók um daginn sem kennir improvisation fyrir söngvara. úff hvað ég á eftir að læra mikið í því maður. alveg vonlaus eins og er. du dn dn dah, du ya du ya dn dah...svona er þetta skrifað...hehe. fyndið að syngja þetta.

sunnudagur, mars 14, 2004

góður dagur í dag. :-)

við tommi byrjuðum daginn á smá stússi. tommi fór að redda einhverju fyrir gítarinn sinn og ég var að hringja í hljómsveitargæjana og plana æfingu fyrir næstu helgi með söngvara sem ætlar að prófa að syngja með okkur. það er mynd af honum á þessari síðu (sá efsti) og það má hlusta á tvö tóndæmi líka. stuttu eftir hádegi kom svo hann mimo til okkar og æfði með okkur nokkur jazz- og popplög. það gekk bara ágætlega og var alveg jafnskemmtilegt og síðast ef ekki skemmtilegra. jess. eftir æfinguna fór ég svo í píanótíma og spilaði hljóma og skala með honum jóni róna (john roney). það var þrusustuð líka. sumsé algjör tónlistardagur, góður dagur.

þriðjudagur, mars 09, 2004

ekki góður dagur í dag. þarf að vesenast í línmálum og borga skuldir. svekk. ég er líka komin með heilsuátaksþreytu. og vetrarþreytu. ég vil bara að sumarið komi og að ég sé orðin tággrönn og brún. god damn!
ég er líka orðin þreytt á því að vera ekki orðin moldrík. hvað þarf þetta að taka langan tíma eiginlega?
kvefið er ekki enn farið og held ég að ég sé búin að slá eigið met um kveflengd. heilar sex vikur takk fyrir!!! algjörlega glatað fyrir söngkonur. ég get ekki ennþá sungið n og m. sem er slæmt. og ótrúlega pirrandi.
ekki bætir viku mígreniskast skapið!

ég held ég segi þetta bara gott í bili. skrifa meira þegar ég er komin í betra skap og hef eitthvað að segja.



laugardagur, mars 06, 2004

þegar ég var lítil fannst mér ekkert leiðinlegra en að borða mat. mér fannst nammi óstjórnlega gott og brauð var ekki alslæmt en kartöflur og hollur matur var bara kvöl og pína. ég borðaði pulsur eingöngu með tómatsósu þangað til ég var hætt í menntaskóla og mér finnst rjómi ennþá vondur. af hverju finnst manni ekki hollur matur góður og óþverri vondur? er þetta ekki bara böggur í homo sapiens?

er verra að horfa á dýralífsmynd í sjónvarpi en að lesa um dýralíf í bók?
ég les alveg einstaklega lítið. mér finnst bara hunderfitt að sitja eða liggja kyrr og lesa bók. af hverju ætli það sé?
verð ég ekki að reyna að bæta úr þessu og byrja að lesa? hér með óskast meðmæli með bókum sem nútímakona eins og ég verður að hafa lesið.

við tommi fórum á jazzklúbb í gær, "house of jazz" hér í borg. það var mjög sérkennilegt að koma þangað inn, manni leið hálfpartinn eins og maður væri kominn aftur í tímann...jafnvel til new orleans. það var kvartett að spila þegar við komum og fengum við okkur sæti á barnum og ég svolgraði í mig eitt glas af engiferöli. söngvarinn og jafnframt saxafónleikarinn var þessi dæmigerði jazzari, svartur gamlingi sem hefur spilað jazz alla sína ævi. með honum var bassaleikari, trommari og píanóleikari. þarna voru greinilega vanir menn á ferð og tóku hvert improvæsaða sólóið á fætur öðru.
við hliðina á okkur sat maður nokkur. um leið og ég sá hann datt mér í hug að þarna væri listamaður á ferð. hann var með kolablýanta í brjóstvasanum og listamannslegan hatt. við áttum með honum kómíska stund þar sem tvær konur sem setið höfðu á barnum stóðu upp og gengu inn í veitingasalinn. þær voru með svo aflitað hár að ekki var vottur af lit eftir í því og okkur sýndist að þetta væru mæðgur, klæddar eins og gleðikonur í bíómynd. ég, tommi og listamaðurinn hlógum öll upphátt og greinilega að sama hlutnum. hann gat ekki orða bundist og sagði "a lot of bleach"...hehe sem var nákvæmlega það sem flestir hugsuðu ábyggilega. við ræddum við þennan listamann í nokkra stund, sögðum honum að við værum íslenskir jazzgeggjarar og byggjum í montreal. hann sagði okkur að gæjarnir í bandinu væru vinir sínir og hefðu verið að spila saman í fjögur ár...og að hann sjálfur væri listamaður og teiknaði myndir af jözzurum. áhugaverður karakter. hann dró upp portrait af mozart sem hann hafði málað á gamla mátann (underpainting og glazing...veit ekki hvað það er á íslensku) og sýndi okkur, nokkuð gott bara.
þegar bandið hætti svo að spila komu gæjarnir allir á barinn og píanóleikarinn tók í höndina á okkur og heilsaði en svarti gæinn fór að reyna við aflituðu gellurnar sem voru mættar á barinn aftur. fyndið.

þriðjudagur, mars 02, 2004

long tæm nó skrif.

á laugardaginn síðasta æfðum við tommi ásamt honum mimo bassaleikara nokkur jazzlög og skemmtum okkur stórkostlega. mikið svakalega er gaman að syngja jazz! það leiðinlega við þetta er bara að við erum að feika það, erum ekki reyndir jazzarar svekkidísvekk. einhvers staðar verður maður samt að byrja og þetta er held ég barasta ágætis leið. :-)
ég fór svo í píanótíma hjá mjög færum jazzpíanóleikara í gær og nú er bara að æfa sig og á endanum verð ég farin að geta spilað með sjálfri mér gaulandi. jíha.
eftir píanótímann fór ég með tomma á æfingu hjá shotwhilehunting og hlustaði á þá rokka. þeir eru barasta ansi góðir og tónlistin flott sem þeir búa til. þeir eiga ábyggilega eftir að meika það bara svei mér þá.

heilsuátakið mitt gengur alveg ágætlega bara, búin að grennast dáldið og komin í betra form. við höfum minnkað veitingastaðaferðir og skyndibitakaup niður í næstum ekki neitt og er það vel. í staðinn stend ég sveitt í eldhúsinu alla daga og brytja niður grænmeti...hehe...

nóg í bili. kominn morgunhádegismatur.