kona sem ég teiknaði í módelteiknitíma... þetta var sko fyrsti tíminn þ.a. ég á eftir að skána í þessu, vona ég!
fimmtudagur, janúar 29, 2004
miðvikudagur, janúar 28, 2004
sunnudagur, janúar 25, 2004
tommi bró á afmæli í dag! til haaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaamingju með afmælið stóri bró! :-)
ég er ein heima núna. tommi fór til hull að spila á þorrablóti. ótrúlegt að hann skuli nenna þessu. ekki nema von að hann sé gítarhetja íslendinga í hull...hehehe.
í gærkvöldi horfði ég á "the english patient". náði reyndar ekki að sjá byrjunina á myndinni en horfði á restina. mikið svakalega er þetta sorgleg mynd, "þetta á eftir að nægja mér út vikuna" hugsaði ég í gær þegar hún var búin en svo þegar ég kíkti á dagskrána áðan var hún að byrja í endursýningu og ég freistaðist til að horfa á byrjunina. hefði betur sleppt því! nú er ég meira sorgmædd ef eitthvað er. ég á bara helst ekki að horfa á svona sorglegar myndir, þær fara alveg með mig.
ég gleymdi að segja frá atburðum helgarinnar! við urðum þess vör að eitthvað undarlegt var á seyði hérna í íbúðinni í síðustu viku. ég tók eftir því að mikið drasl hafði safnast fyrir undir einum rafmagnsofninum hérna og tók því á það ráð að ryksuga. daginn eftir brá mér heldur betur í brún þegar mér varð litið á þennan sama stað og jafnmikið, ef ekki meira drasl var búið að safnast saman þarna. hmm...ég hélt ég væri eitthvað farin að kalka en mundi þá eftir því að nokkrum dögum fyrr höfðum við tommi gert dauðaleit að "kakkalakka eða einhverju öðru ónanfngreindu kvikindi" sem tommi sagðist hafa séð skjótast yfir ganginn. "ókei" hugsaði ég, það hljóta þá að vera einhverjar pöddur eða eitthvað dót hérna og skellti slatta af eitri í rifuna. sama dag var ég að ganga frá í eldhúsinu og rek þá augun í einhvern óþverra á eldhúsborðinu...jújú viti menn, þarna var kominn músaskítur. ég náttúrulega fríkaði út og hringdi í tomma og skipaði honum að koma heim og bjarga húsfreyjunni frá þessu skrímsli sem þarna hlyti að vera. hann var svo elskulegur að koma heim stuttu seinna með hanska, grímur og músagildrur. við þrifum eldhúsið eins og við ættum lífið að leysa og sótthreinsuðum þar sem við fundum skítinn. nóttina eftir þegar ég fór minn vanalega pissurúnt bað ég tomma að fylgja mér að klósettinu (sem er um 2 metra frá svefnerberginu) og hann notaði tækifærið til að kíkja á gildrurnar og lá þá ekki pínulítil húsamús í einni þeirra, ennþá lifandi. þetta var einhver svona límgildra sem bara límir mýsnar fastar en drepur þær ekki. ég rölti bara inn í svefnherbergi og tommi tók að sér að fara með greyið í ruslið. hann sagði að hún hefði tíst þegar hann setti hana í pokann. aumingja litla músin!
ég hef ekki orðið vör við fleiri mýs en maður veit aldrei.
á morgun byrjar skólinn og eftir viku förum við tommi til svíþjóðar í smá heimsókn. jess!
laugardagur, janúar 24, 2004
úff! en ógeðslegt!
miðvikudagur, janúar 21, 2004
þessi síða hjá mér er nú hálfleiðinlega útlítandi. verð að breyta þessu þegar ég nenni.
ég fór til tannlæknis í dag og hann gerði við tvær holur...og ég er langt því frá búin!!! ég held að ég sé með lélegustu tennur ever. god damn. ég er ennþá alveg hrikalega dofin í efri vörinni og get ekki brosað beint. ætli það sé svona að vera með botox?
ég sá alveg fáránlega auglýsingu í sjónvarpinu í gær. það var verið að auglýsa megrunarpillur sem áttu að virka sama hvað maður gerði. í auglýsingunni (sem var svona infomercial) kom fram fólk sem átti að hafa notað pillurnar og var með svona fyrir og eftir myndir. einn gæinn sagði "i didn't have to do anything, i even ate fast food nearly every day and still the pounds came off..." ok, það er eitthvað dúbíus. ein konan sagði svo "i didn't exercise at all, i didn't have time to and still i lost 20 pounds"...jahérna! þetta er nú bara komið út í rugl þetta megrunarstöff sem verið er að selja!
mánudagur, janúar 19, 2004
ég er búin að fá leið á vetrinum! ég nenni þessu ekki lengur. það er svo mikið vesen að þurfa að klæða sig í allt þetta fatadrasl og manni verður svo heitt í metróinu og það er svo erfitt að labba úti í snjónum. fnus!
ég fór heim til paul í dag að taka upp demó fyrir fyrirtækið hans. notaði tvenns konar raddir, kreisí norn og álfadrottning...eða eitthvað í þá áttina. gekk ágætlega held ég bara og var stuð. það er nú fyrir öllu, stuðið sko.
á morgun byrja ég í prógrami í gymminu. það verður fínt enda alveg kominn tími til að hrista af sér slenið og komast í form. :-)
föstudagur, janúar 16, 2004
ég vil benda fólki á þetta!
það er ennþá skítkalt hérna og það virðist ekkert ætla að breytast! bömmer. maður kemst varla útúr húsi hérna. það er beinlínis hættulegt að fara út í þennan kulda! þetta er viss týpa af óveðri sem maður er ekki vanur.
fólk er ekki enn búið að taka niður jólaskrautið hérna í montreal. mér finnst það bara huggulegt. jólaseríur gera mjög mikið fyrir múrsteinshús í myrkri og kulda og það er jú mjög flatterandi birtan af þessu dóti. alltaf að hugsa um útlitið!
ég er búin að skoða útsölurnar hérna nokkuð vel. þær fara nú að verða búnar bráðlega býst ég við. mér finnst alveg merkilegt hvað það er mikill munur á þessu hér og á íslandi. ég man (allavega þegar ég bjó þar) að þegar útsölurnar byrjuðu á íslandi sá maður vennulega 20% og í mesta lagi 50%, sem gerðist ekkert mjög oft og þá líklega af einhverju drasli. hér er venjulegast að sjá 50-70% og af bókstaflega öllu! fínar fatabúðir er yfirleitt með þennan afslátt, skóbúðir, húsgagnaverslanir, búsáhaldaverslanir o.fl. svo er það líka þannig að allt "last season" er sett á útsölu, líka fína stöffið! 20-30% er meira svona helgarútsala en ekki "end of season" útsala. merkilegt!
mánudagur, janúar 12, 2004
ég hef eitthvað svo lítið að segja þessa dagana. skólinn er ekki byrjaður ennþá og æfingar eru ekki heldur byrjaðar hjá hljómsveitum. tíminn hjá mér hefur aðallega farið í að taka til og spá í brúðkaupsplön. ég er búin að flokka pappíra, koma skipulagi á skóhrúgurnar ógurlegu, hengja myndir upp á vegg og sitthvað fleira. sérdeilis prýðileg frammistaða í húsmóðurhlutverkinu. nú á ég bara eftir að rifja upp hvernig maður prjónar og þá er ég í góðum gír!
við tommi ætlum svo að skella okkur til svíþjóðar í byrjun febrúar. þar verður svona örættarmót hjá minni fjölskyldu. ég hlakka alveg svaaaaaaakalega mikið til. það verður gaman að hitta alla og vonandi verður nú eitthvað um "rea, rea, rea" skilti í búðagluggum!
er ekki kominn tími til að skella inn nokkrum myndum?
hér koma nokkrar:
smoke on the river
bræðurnir úr grindavík
stína í stuði með júlíu
jeij!
föstudagur, janúar 09, 2004
það er sko skíííííítkalt úti! búið að fara niður í -31° og ef maður tekur vindinn með var það um -40°!!! maður þarf að gera vissar varúðarráðstafanir í svona kulda. verður að vera með vettlinga og húfu og í hlýjum fötum af því að það tekur bara tíu mínútur að kala. sumir gera sér ekki grein fyrir þessu og lenda í því að kala í andliti og á fingrum jafnvel þó að þeir hafi bara verið að labba út á strætóstöð??!
nú er hinn söngvarinn í hljómsveitinni minni hættur og lofar það ekki góðu. sem betur fer er ég í þann mund að stofna jazzband með nokkrum góðum gæjum og fer vonandi að syngja eitthvað meira líka. ekki alslæmt sumsé!
þriðjudagur, janúar 06, 2004
nú á maggi bró afmæli og orðinn eldgamall. til hamingju með afmælið stóri bróðir!!!
er ekki alveg tilvalið að horfa yfir farinn veg og fagna nýju ári í byrjun janúar? síðasta ár var barasta með eindæmum gott verð ég að segja. ég trúlofaðist honum tomma mínum og vinir og vandamenn hafa verið sérlega duglegir við að fjölga mannkyninu. hvað er betra en það? :-)
þetta ár lofar góðu og verður án efa viðburðamikið. ég eignast lítinn frænda innan skamms og svo verð ég frú stína seinna á árinu. hver veit svo hvað tekur við þegar sól tekur að lækka á ný? ekki ég. :-)
ég verð að segja frá einu snilldaratriði sem er niðri á verslunargötunni hérna í þessu annars óskemmtilega hverfi. þegar aðeins hlýrra er í veðri er spiluð tónlist af einhverri útvarpsstöð sem hljómar um alla götuna. það eru staðsettir hátalarar á ljósastaurum með vissu millibili og þess vegna heyrir maður alltaf tónlistina þegar maður er að labba. væri ekki sniðugt að skella svona á laugaveginn?
sunnudagur, janúar 04, 2004
maður er nú með eindæmum latur á nýju ári. á meðan aðrir bloggarar koma með öppdeitaðar síður og nýtt og ferskt útlit geri ég ekki neitt. óvell. batnandi manni er best að lifa...tjah eða kannski bara batmanni er best að lifa. þá væri ekki jafnmikið um glæpi. hehh.
við erum búin að liggja og glápa á imbann síðan við komum...eða svo gott sem. tommi er búinn að vera að vinna slatta reyndar og hef ég því staðið mig betur í sjónvarpsglápinu. maður verður bara svo lúinn eftir svona frí. það er svo mikið að gera um jólin.
hér er glerhált úti en hið besta veður. um frostmark og logn. og mikið svakalega munar um þessa nokkru klukkutíma af dagsbirtu.
prógramið er ekki byrjað ennþá hjá mér og byrjar ekki fyrr en um miðjan mánuðinn. þangað til ætla ég að taka til, bæði hér heima og hjá sjálfri mér líka. :-) ég er búin að skrá mig í gym og við erum búin að klára íslenska nammið sem við keyptum. nú er okkur ekkert til fyrirstöðu nema letin ein. jíha.



