mér gekk bara ágætlega í söguprófinu held ég. þetta voru 55 krossaspurningar, 25 rétt/rangt og 10 tóndæmi. ég veit um eina villu í krossunum og óviss með svona sjö spurningar...er það ekki bara ágætt? jazzprófið var skemmtilegt að vanda. kennarinn var búinn að panta pizzur og kaupa mandarínur og djús og fleira og sumir nemendur mættu með kræsingar með sér. það var búið að raða borðunum í hring og fólk settist niður og svo fóru tveir og tveir upp fyrir framan bekkinn og sungu með "sent for you yesterday"...með joe williams, trompetinu, saxafónunum og bandinu. stuð fyrir þá sem eru vanir að syngja og eru athyglissjúkir (lesist: stína) en ekki jafnmikið stuð fyrir þá sem eru feimnir.
mig langar í svona tösku. kostar bara $300 en ábyggilega hægt að fá á útsölu. kasjúal og hip en samt dáldið eitís...hehe. lolli by reincarnation.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home