Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

miðvikudagur, nóvember 24, 2004

súð og sjö stiga hiti. ekki er nú hægt að kalla það vetur!
spáin fyrir vikuna er svipuð og hingað til hefur ekki snjóað eða fryst að ráði. merkilegt.

í kvöld eru tónleikar hjá nemendum jeri brown og kórinn minn fær að syngja líka. ég byrja svo í einkatímum hjá jeri eftir áramót og þá fæ ég vonandi að syngja smá sóló...hehe...

svakalega finnst mér annars erfitt að vakna á morgnana. mér finnst bara einhvern veginn eins og það sé bannað að vakna fyrir klukkan átta á morgnana. hins vegar langar mig alltaf að leggja mig þegar ég kem heim úr skólanum. ég hef komist að því að ef ég sef í meira en tuttugu mínútur yfir daginn þá er dagurinn ónýtur. ef ég sef minna en tuttugu mínútur vakna ég hins vegar fersk og úthvíld. ég vildi bara að ég væri með svona on/off takka og gæti bara sofið þegar mér hentar.