Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

þriðjudagur, nóvember 02, 2004

hey, ég var ekki búin að átta mig á því að nú er ég orðin lögleg artífartítýpa! stunda tónlistarnám, drekk grænt te með hunangi og keyri ekki bíl.

það er alveg merkilegt hvað það er mikið af svona stereotýpum í listadeildinni í skólanum mínum. það er líklega þannig alls staðar. þetta eru svona týpur með druslulegt hár, í gömlum fötum, reykja, drekka kaffi allan daginn og tala líka spes tungumál. tala um rithöfunda, aðra listamenn, tala niður til kapítalista og spyrja æðislega fílósófískra spurninga í tímum. svo þegar kemur að því fólk þurfi actually að gera eitthvað þá stendur það alls ekki undir væntingum (ég er reyndar hætt að hafa væntingar til fólks sem talar of mikið). oftar en ekki eru þessar týpur aðeins wannabelistamenn. í tímunum með mér eru flestu artífartítýpurnar í electro acoustics, sem er svona advanced dj prógram...hehehe...okkur sem spilum "unplugged" tónlist finnst það ekki vera alvöru sko (ég með fordóma? ha?).

ætli ég sé annars lögleg artífartítýpa? ég náttúrulega er verkfræðingur í grunninn sem mætti eiginlega kalla antíartífartítýpu. hmm...hvað kallast svoleiðis?