Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

miðvikudagur, nóvember 10, 2004

helgin fór í afslöppun, mánudagurinn í lærdóm, þriðjudagurinn í próf og dagurinn í dag fer líklega í lærdóm.

í gærkvöldi sáum við enga aðra en van halen á tónleikum! ég hef nú ekki hlustað mikið á þessa hljómsveit og yfirleitt staðið í þeirri meiningu að gítarhetjurokktónlist frá níunda áratugnum sé kannski ekki uppáhaldstónlistin mín...eeeeeeeen...þeir rokkuðu alveg í gærkvöldi! þvílíkt stuð! áhorfendahópurinn var dálítið fyndinn. þarna mátti finna rúmlega fertuga menn í hópum sem voru greinilega í einhverju nostalgíukasti og höguðu sér eins og þeir væru komnir aftur í menntaskóla. þarna var slatti af pörum á sama aldri og konan yfirleitt með svona rytjulegt hár, ennþá í eitístískunni og í þröngum gallabuxum. sumir rúmlega fertugu mennirnir voru með synina með sér og ég er ekki frá því að einhverjir þeirra hafi sést taka lúftgítar saman.
tónleikarnir voru í bell íshokkíhöllinni sem er risastór og yfirleitt eru settir stólar á völlinn. við tommi sátum aftarlega á gólfinu, sumsé á vellinum og vorum nálægt miðju. uppi við sviðið voru svo heitustu aðdáendurnir sem hafa ábyggilega borgað alveg helling fyrir að fá að standa alveg hjá sviðinu. margir þeirra voru með hluti með sér sem þeir báðu hljómsveitarmeðlimi um að skrifa á og var það gert á meðan á tónleikunum stóð. einhverjir komu með númeraplötur með sér, aðrir plagöt, boli, vínylplötur, geisladiska...ein gellan fór úr að ofan og sýndi almenningi sílíkonið sitt! það er greinilegt að van halen á mjög tryggan aðdáendahóp. gaman að þessu.
ég gat ekki annað en dansað og fílað mig við lög eins og "jump", "dreams", "when it's love", "right now"...o.s.frv. ég gæti jafnvel skellt þeim inn á playlistann minn í framtíðinni...því hefði ég aldrei trúað...hehehe...