Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

sunnudagur, nóvember 14, 2004

helgin er að verða búin og ég er að ljúka við heimaverkefni fyrir morgundaginn. verkefnið er greining á laginu "see see rider blues" með louis armstrong og félögum. blúsíblúsíblús.

áðan skelltum við okkur niðrí bæ og náðum okkur í hammara hjá mr. steer og gæddum okkur svo á þeim fyrir framan imbann. kjamms. djúsí hammari með krulluðum frönskum kartöflum.

ég fagnaði helginni með því að fara til duane klippara. hann litaði hárið á mér og pönkaði það aðeins upp með nýjasta nýju frá london og sagði mér frá því að hann sé orðinn háður slúðurtímaritum. surprise!

hér er farið að frysta en þó ekki svo mikið að maður þurfi að vera í dúnúlpu með trefil og húfu. ég vona að slíkt bíði til jóla og verði búið fyrir þrettándan. jeræt!

hómer simpson er að reykja kannabisefni í sjónvarpinu og er alveg óborganlegur. við tommi erum miklir aðdáendur. á virkum dögum eru simpsons klukkan níu og svo south park strax á eftir. good times, good times.