ég fór að hlusta á the pixies í gær með sigrúnu nokkurri sem býr hérna. ég fór snemma úr enskutíma til að mæta tímanlega en tónleikarnir áttu að byrja klukkan átta. þegar við komum á staðinn var klukkan svona kortér yfir átta og við okkur blasti hin lengsta biðröð sem ég hef séð. við fórum aftast og vorum fegnar að hafa farið í hlýju úlpurnar okkar því það var orðið skítkalt. við biðum ábyggilega í fjörtíu mínútur þarna fyrir utan og fórum svo inn í vel troðna íþróttahöll sem minnti óneitanlega á laugardalshöllina. bandið sem var að hita upp var ekkert spes, ég man ekki hvað það heitir heldur. þegar pixies byrjuðu að spila vorum við komnar vel inn í þvöguna og stóðum nálægt hljóðmanninum. það var svo þröngt þarna að maður gat ekki einu sinni klappað. þrátt fyrir það kveikti fólk sér í sígarettum og reykti eins og það ætti lífið að leysa. hvað er það??? mér myndi líða ferlega asnalega að vera að blása reyk upp í vit næsta manns í svona troðningi.
ég byrjaði að hlusta á pixies þegar ég var sautján og á tímabili lærði ég textana þeirra utan að og pældi æðislega mikið í þeim. þegar ég heyrði þessi lög svo læv í gær fékk ég gæsahúð og svona bekk tú ðe næntís tilfinningu. við sigrún hristum okkur í takt og ég söng með í ófáum lögum eins og flestir þarna í þvögunni.
þegar tónleikarnir voru meira en hálfnaðir var okkur orðið aaðeins of heitt svo við ákváðum að reyna að troða okkur að sjoppunni og fá okkur að drekka. það gekk heldur erfiðlega þar sem þvagan var svo hrikalega þétt. mér tókst að týna sigrúnu svo ég ákvað bara að ljúga að fólki að ég þyrfti nauðsynlega að komast á klósettið og þá var mér ýtt og hjálpað út...hehehe. ég komst heil á höldnu, fékk mér kók og pulsu, keypti mér bol og svo tókum við leigubíl heim eftir allt saman. jeij!
pixies rúla!

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home