Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

sunnudagur, október 10, 2004

eitthvað hafa færslurnar hjá mér undanfarið verið á neikvæðu nótunum. verð ég ekki að bæta úr því?

í gær fórum við tommi í ikea...við fengum okkur hádegismat og skoðuðum sænsk húsgögn okkur til skemmtunar. við komum svo að sjálfsögðu við í búðinni á leiðinni út (búðin er sumsé lítil sjoppa þar sem hægt er að kaupa alls kyns matvæli frá svíþjóð) og keyptum okkur lingonsylt, köttbullar, hallonsoda og ballerinukex. húrra fyrir ikea!

í gærkvöldi fórum við svo að horfa á íslensku hljómsveitina singapore sling spila á le swimming. það var ágætt, fyrir utan allan sígarettureykinn.

þessa helgina er thanksgiving hér í quebec. ég er ekki alveg viss um að það sé líka í restinni af kanada en ég veit að það er langt í að sama hátíð verði í bandaríkjunum. við tommi erum ekki búin að fá okkur kalkún ennþá en kannski förum við á subway bara í dag og skellum okkur á kalkúnabát! kannski við gerumst svo djörf? hver veit? ha? ekki ég.