við erum komin heim í heiðardalinn. mikið svakalega er gott að lúlla í sínu eigin rúmi...það er bara best!
ferðalagið okkar til sri lanka var alveg frábært. við sáum svo mikið og gerðum svo mikið að maður bara er ekki búinn að melta það alveg ennþá. það var líka alveg æðislegt að koma við í glasgow í einn dag og svo reykjavík í tvo á leiðinni hingað. við erum búin að eiga svo svakalega góðar stundir með fjölskyldunni okkar og vinum og eigum eftir að muna eftir þessum tíma með bros á vör það sem eftir er. :-)
við erum búin að fá myndirnar okkar frá ljósmyndaranum og það er hægt að nálgast þær á netinu. þeir sem vilja sjá verða að senda mér póst til að fá linkinn (ég vil helst ekki pósta hann hér fyrir hvern sem er).
aðrar myndir eru í vinnslu og t.d myndirnar úr einnota myndavélunum eru hér á geisladiskum við hliðina á mér en ég á bara eftir að setja þær á harða diskinn og gera þær aðgengilegar fyrir fólk...kemur allt með tíð og tíma.
ég á besta eiginmann í heimi...hann gaf mér bleikan mini ipod!!! maðurinn er bara snillingur. :-)
ég held ég eigi bara ekkert að blogga meira núna, þá verður þetta of væmið ábyggilega. hehehe...

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home