Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

sunnudagur, ágúst 29, 2004

ég hef bara mest lítið að segja þessa dagana. nema kannski bara hvað ég er ánægð með lífið og tilveruna. :-)
skólinn byrjar í næstu viku hjá mér og ég er ennþá að græja námsleyfi og annað. það verður stuð að byrja í skólanum (með átján ára krökkum!)...

hey, ég átti afmæli um daginn og ég fékk meira að segja afmælisgjafir...þrátt fyrir að hafa fengið alltof mikið í brúðkaupinu!

það er búið að vera heitt og sveitt hérna síðustu daga. haustið virðist ekkert vera á leiðinni. í gær var 29° hiti en með raka reiknast það (feels like) um 37°!
maður verður ótrúlega slappur í svona mollu, kemur engu í verk og ég hef meira að segja prófað að stinga hausnum inn í frystinn! það er svakalega refreshing. hehh...