Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

laugardagur, júlí 17, 2004

vaxtarlag
 
ég er ekki mjög hávaxin á íslandi.  í montreal er ég risi og svakalega hvít og tröllaleg.
það er ágætt að vera "normal" svona inn á milli...hættulegt að fara að bera sig saman við fólk ættað frá suður-evrópu og asíu.  brengluð sjálfsmynd getur hlotist af því. 
 
hvað er annars með þessa stuttu strípuklippingu sem virðist vera langvinsælasta greiðslan hérna? mér finnst þetta með eindæmum óflatterandi.
 
það er sól úti og ekki hægt að sitja inni í því. það er glæpur á íslandi. út með mig.
 
nú eru nákvæmlega þrjár vikur í brúðkaupið.  æ djöst kent veit. itts góing tú bí aaaaaaaaaaaameiiiiiiiiiiiiiiiiising.