sólin skín og það er helgi. gæti ekki verið betra!
í gærkvöldi skelltum við okkur í minigolf. ég fékk flest stig...ehhh...sem þýðir að ég tapaði. þetta var samt í fyrsta skipti sem ég hef farið í minigolf, believe it or not. mér fannst það bara hin besta skemmtun.
ég var að tékka á visir.is í gær og skoða veftíví. þarna var einhver frétt um hljómsveit sem heitir "iceguys"...iceguys! hver valdi þetta nafn? ég var að spá hvort þetta væri nokkuð djók. veit það einhver? mér fannst þetta allavega vera nokkuð klént, eiginlega bara frekar hallærislegt. ég vona að ég móðgi engan.
nú eru hringarnir okkar tomma komnir í hús og búið að bóka flugið fyrir brúðkaupsferðina. tommi er farinn að hafa áhyggjur af því hvernig ég haga mér með hringana, honum finnst eitthvað að því að ég kalli þá "my precious"...hehehe.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home