plains, trains and automobiles
nú eru bara örfáir dagar þangað til ég fer til íslands. best að njóta þess að vera í hita og sól þangað til!
mér finnst leiðinlegt að ferðast á milli landa, sitja í flugvél, bíða, bíða meira og fá krampa í fætur yfir þrengslum. eitthvað sem er ekki í uppáhaldi hjá mér. fyrir utan að ég verð alltaf hálfsmeyk þegar flugvélin tekur á loft og þegar hún lendir. ég kemst ekki hjá því að hugsa hvað gæti mögulega farið úrskeiðis. kjánalegt, ég veit það. ég læt mig samt hafa það, finnst það alveg þess virði.
ég horfði á fyrsta þátt "the amazing race 5" í gær (ég held að þetta hafi verið fyrsti þátturinn). ég verð alltaf jafnhissa á fólki sem kennir öðrum um allt sem illa fer. það eru til svona týpur. fólk sem bara getur ekki séð að það sjálft bar kannski ábyrgð á einhverju sem mistókst. þarna var t.d eitt par þar sem maðurinn gerði næstum allt, bar þungt dót og hljóp til og frá fyrir gelluna...svo kenndi hún honum um allt en hafði í raun gert lítið til að hjálpa til sjálf. leiðinlegt svona fólk.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home