Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

miðvikudagur, júlí 14, 2004

nú er ég komin til íslands og alveg á fullu í wedding planning. rosastuð hjá okkur mömmu að fara í búðir og skoða hitt og þetta. við skemmtum okkur allavega konunglega eins og er og ég bara get ekki beðið eftir að gifta mig, ég hlakka svo svakalega mikið til. :-)

ég er búin að taka eftir nokkrum hlutum á íslandi sem mér finnst skondnir:

konur eru svakalega fínar almennt og uppstrílaðar
fólk horfir upp og niður eftir manni niðrí bæ, sérstaklega konurnar
maður fer ekki út úr húsi nema að hitta einhvern sem maður þekkir
pólitíkin er komin í eitthvað voðalegt rugl hérna og davíð er orðinn bubbi kóngur
það er miklu heitara í 15° hita hér en í öðrum löndum við sama hitastig
það er enginn með símsvara hérna

annars er nú voðalega gott að anda að sér íslensku lofti og drekka íslenskt vatn. það jafnast ekkert á við það.

við mæðgurnar ætlum svo að skella okkur út fyrir bæjarmörkin þegar við erum búnar að klára það mest aðkallandi fyrir brúðkaupið. það verður sweeeeeet. ég elska sveitina.

áfram kr.