Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

sunnudagur, júní 13, 2004

nú er afmælisdagurinn búinn og allir orðnir vel lúnir.

við byrjuðum daginn á því að vekja tomma næstum því (hann vaknaði til að fara í klóið rétt í því sem við vorum að gera okkur tilbúin að syngja afmælissönginn). morgunmaturinn var ekki af verra taginu, heitt kakó og brauð með ýmsu áleggi ásamt bláberjapönnukökum með hlynssýrópi. namminamm.
tommi fékk svo afmælisgjafirnar sínar, golfsett frá mér og pikknikktösku frá krökkunum. mér sýndist hann bara hæstánægður með gjafirnar. :-)

um hádegið sendum við tomma út til að geta búið til handa honum listaverk með fingramálningu og límmiðum alls kyns. málverkin voru svo límd upp á vegg og borðið skreytt og blöðrur hengdar upp. ég var búin að baka þriggja hæða ameríska súkkulaðiköku (a la granaskjól 44 með englakremi) og kaupa ávexti og jarðaberjagos. þegar tommi steig inn um dyrnar sungum við svo aftur fyrir hann og snæddum köku og æfðum okkur svo í golf.

deginum lauk svo á því að við keyrðum vestur og hittum hann sigga sem vinnur með tomma og veiddum með honum körtu og frosk. það fannst krökkunum hið mesta ævintýri og voru þau ansi hissa á því að froskurinn var ekki slímugur viðkomu! svakalegt fjör sumsé. kannski skelli ég inn myndum seinna.

jæja, nú er bara að fara að pakka. þau fara á morgun...við þurfum að keyra til baltimore!!! það eru ekki nema 800km þangað. sjæse!