Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

sunnudagur, júní 27, 2004

helgin var snilld! fórum upp í mont tremblant og gistum í flottu húsi með tveimur öðrum pörum sem við þekkjum. maður getur leigt svona condo þarna með eldhúsi og svölum og öllu saman. við grilluðum og fórum í sauna og tzjilluðum í bænum þarna aðeins.

á svæðinu þarna í kring er svo hægt að gera allt milli himins og jarðar. við fórum í langan kanótúr niður á sem liggur þarna...höfum líklega farið um tuttugu kílómetra á kanó niður ána. við stoppuðum eitthvað á leiðinni og fengum okkur nesti og busluðum aðeins í ánni. það má sjá um þetta hér. veðrið var svakalega fallegt alla leiðina niður ána og þegar við vorum rétt búin að draga bátana upp í land þá kom hellidemba. heppilegt.

ég sit svo hér við tölvuna útbitin á innanverðum lærum og rasskinnum eftir moskítóflugur! ég bar flugnafælusprey á mig alla...hélt ég...en hef líklega gleymt þessum stað! mikið svakalega getur þetta verið óþægilegt.

helgin var samt sem áður alveg frábær.