Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

sunnudagur, apríl 04, 2004

vorið fór! það er meira að segja spáð snjókomu í nótt. bömmer maður.

litli frændi er ekki ennþá kominn í heiminn...ég bíð spennt eftir að síminn hringi, nú hlýtur þetta bara að fara að gerast. það væri nú ansi kúl að vera með kennitölu sem byrjar á 040404. mín byrjar á 230876...mér finnst það reyndar alveg kúl líka. skiptir þetta einhverju máli? er maður ekki bara ánægður að eiga afmæli nó matter what?

ég er algjörlega hætt að þola sígarettureyk, reyndar þoldi ég hann aldrei en ég er bara komin með nóg. við tommi fórum að hlusta á dan trommaravin hans spila á pínulitlum stað niðrí bæ og það var eins og krádið þarna væri í reykingakeppni. ég fylgdist með drengjunum sem sátu við hliðina á okkur og það var alveg greinilegt að þetta var eitthvað issjú hjá þeim, þ.e að reykja sem mest. ungir hraustlegir strákar að reykja í kapp við hvern annan...meikar ekki alveg sens hjá mér. ætli þetta sé eitthvað óöryggi? það er jú ansi krefjandi fyrir suma að sitja og hlusta á tónlist án þess að vera með neitt í höndunum...jafnvel ekki að drekka neitt.
það sem fer óstjórnlega í taugarnar á mér er þessi frekja í sumu reykingafólki, að það geri sér ekki grein fyrir að fólk í kringum það vilji ekki þennan reyk. þetta er ekki bara þeirra mál ef það er annað fólk í kring. mér finnst t.d alveg út í hött að fólk skuli bara leyfa sér að reykja þar sem aðrir eru að borða, ekki myndi ég t.d standa upp og prumpa stöðugt! mér finnst þetta alveg sambærilegt. fyrir utan jú að prumpufýlan festist ekki jafnvel í fötum og sígarettufýlan!
svo er nú annað. fólk sem vinnur á stöðum þar sem mikið er reykt er jú að stunda óbeinar reykingar allan sinn vinnudag. hvers konar réttlæti er það? reykingafólk er sumsé hægt og sígandi að eitra fyrir starfsfólki veitingastaða og öldurhúsa. sorglegt.
ég vona bara að fleiri fari að fordæmi þeirra kaliforníubúa að banna reykingar á vinnustöðum og veitingastöðum o.s.frv.