takk, takk, takk fyrir allar kveðjurnar og huggulegheitin. ég er mun hressari og miklu minna lónlí :-) ég vil sérstaklega þakka davíð fyrir póstinn og tek mér það bessaleyfi að birta vísuna sem hann sendi:
Ó þú Íslands auma þjóð,
þreytir þorra súrum sjóð,
bætir upp með viðurbjóð,
súrum pung og slátri
og varðandi það sem hann siggi hennar swany sagði í kommenti hér fyrir neðan þá harkaði ég af mér í tvær vikur og tók heilsutvennu en allt kom fyrir ekki. held að auminginn sé eina leiðin bara. :-)
það er hrikalega frústrerandi að horfa á amerískt sjónvarp ef maður er ekki með tivo. það eru auglýsingar á fimm mínútna fresti og standa yfirleitt yfir í 3-5 mínútur!!! óþolandi. ekki nóg með það heldur er hljóðið stillt þannig að auglýsingarnar eru miklu hærri en sjónvarpsefnið sem maður er að horfa á, þannig að maður þarf alltaf að vera að lækka þegar auglýsingarnar koma. svo eru ótrúlega oft sömu auglýsingarnar sýndar um leið á mörgum sjónvarpsstöðvum þannig að ef um er að ræða leiðinlega auglýsingu verður maður bókstaflega bara að slökkva á sjónvarpinu þangað til hún er búin. þetta hefur veruleg áhrif á skemmtanagildi þess að horfa á sjónvarp... og ef maður spáir í það þá eru þættir eins og american idol, average joe, bachelorette og allt þetta yfirleitt klukkutíma langir þættir, or so i thought. ef það eru auglýsingar á fimm mínútna fresti og þær standa yfir í þrjár mínútur í hvert skipti...hvað er þá orðið eftir af þættinum sjálfum? rúmur hálftími?

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home