nú er tomminn minn fjórum tönnum fátækari en hann var á sama tíma í gær. hann er svolítið slappur eftir þetta greyið. ekki hlakka ég til að fara í þessa endajaxlatöku. úff púff. hann var þó heppinn að jaxlarnir voru komnir upp. mínir hafa ekki látið sjá sig ennþá nema að hálfu í neðri góm. god damn!
engar fengum við bollurnar þetta árið og ekki heldur saltkjöt. það er nú alveg í lagi því mér hefur alltaf þótt rjómi vondur og er ekki alin upp við saltkjöt.
hey, ég er næææææææstum því orðin kveflaus. húrra, húrra, húrra! ætli ég jinxi það nokkuð mér því að hrópa húrra of snemma? er hægt að double jinxa?
á maður að þora að fara að sjá "the passion of the christ"? ég er mjög forvitin að sjá þessa mynd en ansi hrædd um að manni verði óglatt af öllu blóðinu og ógeðinu. kannski fer ég bara með sólgleraugu. hehh...

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home