kvefið er ekki farið ennþá!!! hvað á maður að gera við svona eilífðarkvefi? það er ferlega þreytandi að vera með harðsperrur í maganum og erfiðan hósta. grátlegt.
átti góðan konudag í gær með aðalgæjanum. við fórum í dágóðan verslunarleiðangur í loblaws og keyptum fuuuuuuullt af mat, bara hollum. svo elduðum við tilbrigði af grænmetispizzu úr heilsuátaksbókinni minni og horfðum á skemmtilegt sjónvarpsefni. ég fékk líka extra mikið af kossum í tilefni dagsins :-)
í morgun bakaði ég appelsínu möffins (þær eru líka í bókinni góðu) á mettíma. eitthvað sem ég kýs að kalla hraðbakstur. mottóið mitt er að reyna að elda allar máltíðir á innan við tuttugu mínútum. með góðu skipulagi og snörum handtökum er það yfirleitt hægt. enda er ég bara að elda fyrir tvo yfirleitt.
hér er farið að hlýna örlítið en samt undir frostmarki ennþá. sólin skín í dag og ég er á leiðinni í skólann. jeij.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home