Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

mánudagur, febrúar 09, 2004

jæja, þá erum við skötuhjúin mætt aftur til kanada. komum heim í gær frá stokkhólmi þar sem við eyddum síðustu viku með fjölskyldunni minni. ferðin var snilld bara og ótrúlega vel heppnuð. allir í stuði og alveg frábært að hitta systkini og foreldra og alla. svo ég tali nú ekki um matinn...ó meeeeen hvað það er vont nammi í kanada en gott í skandinavíu!!!

ég reyndar náði mér í eitthvað leiðindakvef og er búin að hósta nær samfleytt síðustu daga...hehehe...svo hljóma ég eins og janis joplin. ég lét það samt ekki aftra mér, ekki hægt að vera í rúminu þegar maður getur verið að fá sér hallondricka og bulle!

nú tekur bara skólinn við aftur og leikfimiprógrammið mitt. það er bara ágætt.
svo er maður nú alltaf eitthvað að plana með brúðkaupið :-)