hér sit ég, ein heima og lasin. svekk!
kvefið frá svíþjóð fór ekkert, það breyttist bara í einhverja hundleiðindapest og núna er ég með hita og stíflað nef.
tommi er í flugvél rétt í þessu á leiðinni til kaliforníu í sumar og sól. maður hefði nú eiginlega bara átt að fara með honum.
vill ekki einhver vorkenna mér?
gleðifréttirnar í þetta skiptið eru þær að ég er búin að finna mér kjól fyrir brúðkaupið. það tók ekki langan tíma, ég labbaði inn í búð, benti á mynd, mátaði kjólinn og dró upp veskið. ekki amalegt!
skólinn er byrjaður af fullum krafti og ég ætti að vera að fara í módelteiknitíma í dag en ég ætla þess í stað að hanga í rúminu. vei. eins og mér finnst nú gaman að teikna allsbert fólk. reyndar skemmti ég mér best í skúlptúrtímunum. það er bara svo frábært að hnoða leir og búa til það sem manni dettur í hug. ég gleymi mér alltaf í þeim tímum og lít varla upp fyrr en klukkutímarnir þrír eru búnir.
í gær var hljómsveitaræfing og áheyrnarpróf fyrir nýjan karlsöngvara... það mættu tveir. sá fyrri var alveg hræðilega fyndinn og við áttum bágt með að skella ekki upp úr þegar hann var að syngja. það vantaði ekki orkuna og dansmúvin en söngurinn líktist meira eins og væli í ketti. sá seinni var með sönginn í lagi en stóð alveg kyrr eins og spýtukarl og horfði á textablöðin. við erum ennþá að leita. en mikið ógeðslega gaman er að syngja með hljómsveit!

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home