tommi bró á afmæli í dag! til haaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaamingju með afmælið stóri bró! :-)
ég er ein heima núna. tommi fór til hull að spila á þorrablóti. ótrúlegt að hann skuli nenna þessu. ekki nema von að hann sé gítarhetja íslendinga í hull...hehehe.
í gærkvöldi horfði ég á "the english patient". náði reyndar ekki að sjá byrjunina á myndinni en horfði á restina. mikið svakalega er þetta sorgleg mynd, "þetta á eftir að nægja mér út vikuna" hugsaði ég í gær þegar hún var búin en svo þegar ég kíkti á dagskrána áðan var hún að byrja í endursýningu og ég freistaðist til að horfa á byrjunina. hefði betur sleppt því! nú er ég meira sorgmædd ef eitthvað er. ég á bara helst ekki að horfa á svona sorglegar myndir, þær fara alveg með mig.
ég gleymdi að segja frá atburðum helgarinnar! við urðum þess vör að eitthvað undarlegt var á seyði hérna í íbúðinni í síðustu viku. ég tók eftir því að mikið drasl hafði safnast fyrir undir einum rafmagnsofninum hérna og tók því á það ráð að ryksuga. daginn eftir brá mér heldur betur í brún þegar mér varð litið á þennan sama stað og jafnmikið, ef ekki meira drasl var búið að safnast saman þarna. hmm...ég hélt ég væri eitthvað farin að kalka en mundi þá eftir því að nokkrum dögum fyrr höfðum við tommi gert dauðaleit að "kakkalakka eða einhverju öðru ónanfngreindu kvikindi" sem tommi sagðist hafa séð skjótast yfir ganginn. "ókei" hugsaði ég, það hljóta þá að vera einhverjar pöddur eða eitthvað dót hérna og skellti slatta af eitri í rifuna. sama dag var ég að ganga frá í eldhúsinu og rek þá augun í einhvern óþverra á eldhúsborðinu...jújú viti menn, þarna var kominn músaskítur. ég náttúrulega fríkaði út og hringdi í tomma og skipaði honum að koma heim og bjarga húsfreyjunni frá þessu skrímsli sem þarna hlyti að vera. hann var svo elskulegur að koma heim stuttu seinna með hanska, grímur og músagildrur. við þrifum eldhúsið eins og við ættum lífið að leysa og sótthreinsuðum þar sem við fundum skítinn. nóttina eftir þegar ég fór minn vanalega pissurúnt bað ég tomma að fylgja mér að klósettinu (sem er um 2 metra frá svefnerberginu) og hann notaði tækifærið til að kíkja á gildrurnar og lá þá ekki pínulítil húsamús í einni þeirra, ennþá lifandi. þetta var einhver svona límgildra sem bara límir mýsnar fastar en drepur þær ekki. ég rölti bara inn í svefnherbergi og tommi tók að sér að fara með greyið í ruslið. hann sagði að hún hefði tíst þegar hann setti hana í pokann. aumingja litla músin!
ég hef ekki orðið vör við fleiri mýs en maður veit aldrei.
á morgun byrjar skólinn og eftir viku förum við tommi til svíþjóðar í smá heimsókn. jess!

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home