Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

föstudagur, janúar 16, 2004

það er ennþá skítkalt hérna og það virðist ekkert ætla að breytast! bömmer. maður kemst varla útúr húsi hérna. það er beinlínis hættulegt að fara út í þennan kulda! þetta er viss týpa af óveðri sem maður er ekki vanur.

fólk er ekki enn búið að taka niður jólaskrautið hérna í montreal. mér finnst það bara huggulegt. jólaseríur gera mjög mikið fyrir múrsteinshús í myrkri og kulda og það er jú mjög flatterandi birtan af þessu dóti. alltaf að hugsa um útlitið!

ég er búin að skoða útsölurnar hérna nokkuð vel. þær fara nú að verða búnar bráðlega býst ég við. mér finnst alveg merkilegt hvað það er mikill munur á þessu hér og á íslandi. ég man (allavega þegar ég bjó þar) að þegar útsölurnar byrjuðu á íslandi sá maður vennulega 20% og í mesta lagi 50%, sem gerðist ekkert mjög oft og þá líklega af einhverju drasli. hér er venjulegast að sjá 50-70% og af bókstaflega öllu! fínar fatabúðir er yfirleitt með þennan afslátt, skóbúðir, húsgagnaverslanir, búsáhaldaverslanir o.fl. svo er það líka þannig að allt "last season" er sett á útsölu, líka fína stöffið! 20-30% er meira svona helgarútsala en ekki "end of season" útsala. merkilegt!