Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

mánudagur, desember 29, 2003

púff! ekki búin að skrifa neitt síðan á aðfangadag. jahérna!

ég held að jólalagið okkar tomma hafi farið framhjá fólki hérna á síðunni...enda erfitt að einbeita sér að textanum í þessari gífurlegu skófegurð.
annars hef ég ekki lesið stinastud tölvupóstinn minn síðan ég var í montreal. veit ekkert hver er búinn að senda mér póst og mér finnst það satt best að segja hálfóþægilegt. svona er maður háður þessu.

ég er búin að hafa það svakalega fínt um jólin. búin að fara í jólaboð og fleiri jólaboð og fara á milli grindavíkur og reykjavíkur eins og vindurinn...dáldið mikið stress allt saman og þétt prógram. það væri fínt ef það væri hægt að taka jólin á lengri tíma bara og á rólegri nótunum. hehehe.

maður er svo búinn að fara á grímuball líka og vonandi fer fólk að setja inn myndir af því á netið.

meira stuðveðrið núna! skaflar upp að mitti og rok og snjókoma. jess!

miðvikudagur, desember 24, 2003

og í tilefni dagsins....

þriðjudagur, desember 23, 2003

skór dagsins í dag eru frá sama hönnuði og í gær nema að þessir kosta milljón dollara og voru búnir til fyrir leikkonu til að vera í á óskarsverðlaunaafhendingunni

mánudagur, desember 22, 2003

skór dagsins eru hryyyyyyyyyyyyyiiiiikalegir!



þetta eru charles david skór og eru skreyttir með ekta rúbínum...það kemur ekki fram á netinu hvað þeir kosta en það eru án efa árslaun margra og meira til. :-)

sunnudagur, desember 21, 2003

þeir sem ekki fengu sendan jólapóst frá okkur fá bara jólakveðju hér með og geta hlustað á nýja jólalagið með því að smella hér. gleðileg jól allir saman og farsælt komandi ár!

við erum í þessu að fara útúr dyrunum út á flugvöll. sjáumst á íslandi...þeir sem geta og vilja.

peace out.

jimmy choo anyone? $1350!

laugardagur, desember 20, 2003

nú fara skórnir að verða flottari og flottari...það verða hriiiikalegir skór þrjá síðustu dagana...

í dag eru það bjútífúl stígvél sem ég fann einhvers staðar. ætla að reyna að finna þau aftur.

föstudagur, desember 19, 2003

svona var útsýnið útum einn stofugluggann hjá okkur í fyrradag. fuuuuuullt af snjó. jólasnjórinn í ár.

jess! búin að sjá "hilmir snýr heim" eða "return of the king". svakaleg mynd. þær eru allar jafngóðar finnst mér bara. langar en góðar. ég hló, grét og kleip tomma af angist.
við mætum á klakann á mánudaginn. og ég sem á eftir að taka til. jahérna.

skórnir í dag heita "foxy" og eru frá anne klein. þeir kosta sirka $295 á netinu...alveg nóg fyrir minn smekk. en þeir eru voðalega jólalegir eitthvað finnst mér.

fimmtudagur, desember 18, 2003

jess!!! ég er búin að kaupa mér jóladress...svona næstum því. og ég gerði bestu kaup ever í dag á skóm! fékk charles david skó á 75% afslætti, ekkert smá flotta líka. ég fór næstum að gráta af gleði yfir þessum hrikalega góðu kaupum.

hér er snjór og aftur snjór! ég tók mynd út um gluggann í morgun en gleymdi að setja hana á síðuna. geri það á morgun.

jæja...skór dagsins eru frá einhverjum og kosta eitthvað. ég sé ekki hvað stendur í þeim og ég var svo mikill kjáni að ég skrifaði ekki niður nauðsynleg details á sínum tíma

miðvikudagur, desember 17, 2003

ég fór í smá partý í gærkvöldi með innanhúshönnunarbekknum mínum. þar voru um átta konur og einn karlmaður (kennarinn). allar konurnar komu með svakaflottan mat með sér, mjög metnaðarfullt allt saman og bragðaðist eftir því. ég bakaði skinkuhorn og skildi eftir slatta handa tomma (hann borðaði þau í kvöldmat þessi elska). ágætis samkoma alveg hreint.

það er komin rigning úti! fyrir tveimur dögum síðan snjóaði svo mikið að það eru risasnjófjöll fyrir utan og ég get ekki ímyndað mér hvernig þetta er orðið núna. slabb og aftur slabb geri ég ráð fyrir. bjakk.

í dag eru það prada skór sem kosta um $250

þriðjudagur, desember 16, 2003

kjáni get ég verið. það sést alveg á skónum hérna fyrir neðan hvaðan þeir eru. það stendur rene caovilla inní þeim. duh!

skórnir í dag eru æðislegir alveg hreint en ég man ekki heldur hvar ég fann þá eða hvað þeir kosta. mig grunar að þetta séu rene caovilla skór en ég bara er ekki með það á tæru. njótið!

mamma og pabbi eru búin að vera gift í 31 ár í dag! allsvakalegt og til hamingju með það gamla sett! :-)
pabbi var svo að láta laga á sér bakið og er heima að jafna sig. stuðkveðjur til pabba.

mánudagur, desember 15, 2003

þessi stígvél eru nú alveg gífurlega pæjuleg. man ekki alveg hvar ég fann þau. finn útúr því seinna kannski.

sunnudagur, desember 14, 2003

jahérna! keikó dáinn og búið að handtaka saddam. það er bara ekkert smáræði.

ég er með einhverja kvefpest. hósta eins og vitleysingur og með stíflað nef og svona huggulegheit. óþolandi að hósta svona mikið. vona bara að ég sé ekki að fá lungnabólgu eða eitthvað...hehhh... segi svona.

við erum að vinna í jólalaginu okkar. það verður vonandi tilbúið áður en við förum til íslands...hmmm. jú ætli það ekki. megum ekki klikka á þessu.

það er ískalt úti. -11° sýnist mér og svo kemur vindkælingin inn í þetta líka. brrr... það er samt bjart, sólin skín og mjög fallegt að horfa útum gluggann. ég veit ekki hvort ég myndi þola þetta í myrkrinu á íslandi.

í dag eru skórnir frá rene caovilla og eru skreyttir með swarovski kristöllum. það var ekkert verð á netinu en þeir kosta líklega um $300 út í búð.

laugardagur, desember 13, 2003

í dag er lúsían. ég vakti tomma ekki með bullar, kertaljósi og söng. svekk. ég átti engar bullar og er með kvef og einhverja pest.

skór dagsins eru frá prada og kosta $264.

fimmtudagur, desember 11, 2003

spurning um að fá sér svona skó fyrir brúðkaupið? frá stuart weitzman og kosta skitna 350 dollara...hehhh...en þeir eru fabjúlos!

nýjustu fréttir! ég fékk A í frönskunni. húrra fyrir því. hæsta einkunn af því það er ekki hægt að fá A+. stuð og stemmning bara.

ég var að koma úr skólanum, fór í dag að reyna að klára skúlptúrinn minn. náði að steypa hann og ná honum úr mótinu en á eftir að pússa. nú vantar mig vatnsheldan sandpappír númer 320. bjarga því í canadian tire. hehehe.

á morgun verður "krítík" í hópnum mínum í skólanum og ég þarf að fara með allt stöffið mitt í skólann í fyrramálið. eftir það er svo smá jólapartí og ég á víst að mæta með eitthvað matarkyns. ég sem er lasin í dag. þyrfti að baka eitthvað. sjáum til.

hey, nýjasta jólaskreytingasnilldin eru díóðujólaljós. á einhver svoleiðis? ég sá það í búð um daginn. ljósið á víst að vera meira "intense" og ef maður kaupir litaðar perur eru litirnir fallegri en þetta týpíska. sniðugt af því að þetta endist svo svakalega lengi og notar ekki nema 15% af orkunni sem fer í venjulegu ljósin. kúlíó.

ú, versace fyrir $500

miðvikudagur, desember 10, 2003

skór dagsins eru frá bcbg og kosta $192. mjög elegant.



ekkert mikið að gerast hjá mér þannig séð. fer að verða búin í skólanum fyrir jól og er svona að leggja lokahönd á annan skúlptúrinn minn og nokkur lítil málverk.

vonandi fer svo meira að gerast í tónlistinni hjá mér líka. hljómsveitin mín er komin með agent til að bóka gigg og býst ég því við að verða farin að performa eitthvað eftir áramót. vonandi. svo er ég líka með fleiri möguleika í huga. allt að gerast. hehe. eins og lúðarnir segja.

þriðjudagur, desember 09, 2003

skórnir í gær voru kannski ekki neinir svakalegir draumaskór þannig að úr því verður bætt í dag...stígvél.



þessi eru frá miumiu og kosta um $600. jess!

mánudagur, desember 08, 2003

og skór dagsins eru frá donald j pliner og kosta einungis $413...doldið svona tacky en hey, ef ég væri milli myndi ég ábyggilega líka eiga svona skó. til að geta verið dáldið mafíósaleg...hehehe.



við tommi fórum að sjá the elf í gær og skemmtum okkur ágætlega. mér finnst hann will farell svo fyndinn eins og margir aðrir úr saturday night live genginu. við horfum yfirleitt á mad tv fyrst og svo snl hér á laugardagskvöldum.

í gær var annar í aðventu og í tilefni af því fengum við okkur piparkökur og restir af kanilsnúðum úr ikea. kveiktum á tveimur kertum í aðventustjakanum okkar og höfðum það huggulegt. svo fórum við í bíltúr upp í westmount og skoðuðum jólaljósin hjá ríka fólkinu. það snjóaði fullt í gær og fyrradag og orðið alveg svakalega jólalegt. við gerðum svo smá rannsókn á muninum á jólalaskreytingum hjá ríka fólkinu og ekki svo ríka fólkinu. við komumst að því að ekki svo ríka fólkið er með miklu fleiri liti í skreytingunum og meira af blikki og uppblásnum fígúrum. ríka fólkið er oftast bara með hvít ljós, stundum rauð og mikið af perum og jafndreift yfir trén. ætli þjófar viti þetta og fari eftir skreytingum hjá fólki?

sunnudagur, desember 07, 2003

og svo eitt par í dag...


föstudagur, desember 05, 2003

shoes of the day...



þessir eru frá dolce & gabbana og kosta einungis um $700 útí búð. takk fyrir :-)

fimmtudagur, desember 04, 2003

ekki mikið að frétta af mér. ég sit bara ein hérna heima, æðislega trúlofuð. tommi er í kalifonja (eins og arnold segir það) að vinna með gb. hann kemur heim á laugardagsmorguninn. mér finnst hann búinn að vera alveg nógu lengi!

hér er komið ískalt vetrarveður. í gær var 16 stiga frost! núna eru það sjö stig. brrr... fyrir því!

ég er að reyna að peppa mig upp í að taka til. það er bara ekkert svo hrikalega skemmtilegt. sérstaklega ekki ef maður er einn að því. það væri kannski góð bissnesshugmynd að vera með svona tiltektarböddí. skemmtilegt fólk sem finnst gaman að taka til og getur verið dj í leiðinni. hehh..."skemmtilegt fólk sem finnst gaman að taka til" gengur e.t.v ekki upp þegar ég hugsa um það. ojæja.

í kvöld er síðasti málitíminn fyrir jól. ég ætla að reyna að klára self portrait sem ég byrjaði á fyrir skömmu. dáldið fríkuð mynd.

þetta blogg er nú ekki upp á marga fiska. hmm...hvað get ég talað um. sjónvarp. ég horfi stundum á stöð sem heitir much more music. þar eru þættir eins og "behind the music", "mmmprofile" o.fl. sumsé þættir sem fjalla um tónlistarmennina sjálfa. það er alveg ótrúlegt hvað fólki er alltaf stillt upp sem yfirnáttúrulegum dýrlingum sem byrjuðu að syngja áður en það byrjaði að skríða o.s.frv. sömu klisjurnar aftur og aftur. "i always wanted to be a star", "i always knew music was what i wanted to do" etc. svo er líka merkilegt að skoða muninn á amerískum stjörnum og evrópskum. þessar amerísku hafa margar hverjar verið í hæfileikakeppnum og svona "pageants" frá því þær voru fjögurra en þessar evrópsku oftar verið bara í skólanum þangað til þeim leiddist og hætt og reynt að meikaða í tónlist í staðinn.

miðvikudagur, desember 03, 2003

þriðjudagur, desember 02, 2003

sjitt! ég gleymdi að setja jóladagatal á síðuna! hmm...nú verð ég bara að finna þema. í fyrra voru demantar frá tiffany's. hvað er betra en það? kannski ég setji myndir af nammi...nahh...ég bara hreinlega veit ekki hvernig dagatal ég á að vera með. nú eru góð ráð dýr. ég bið lesendur að örvænta ekki. i'll make it up to you, i promise.