smá jólaskraut komið í gluggann í tilefni fyrsta í aðventu. við fórum í ikea í dag og keyptum okkur skandinavískan mat og skandinavískt jólaskraut. húrra fyrir því! :-)
sunnudagur, nóvember 30, 2003
laugardagur, nóvember 29, 2003
það er rok og snjókoma úti. mjög kuldalegt að sjá. ég hef ekkert farið út í dag, bara verið inni að mála og vera með hausverk. stuð.
ekkert svakalegt búið að gerast síðan síðast svosem. fórum í partý í gær og komum heim eitthvað að ganga fimm í nótt ef ég man rétt. fínt partý hjá þeim halla og sigrúnu. stuðfólk frá kína, kanada, íslandi, tékklandi og eitthvað fleira. mikið dansað og hoppað. einhvern veginn er ég alltaf frekar fegin í lok kvölds að vera ein af þeim sem drekkur ekki áfengi...ég skil ekki alveg hvernig fólk nennir þessu. hehe.
svo er bara fínt að vera búin með frönskuna og geta einbeitt sér meira að hinum skólanum og loksins söngnum. ég þarf bara að koma mér upp í rútínu aftur hvað það varðar. var farin að gera æfingar á hverjum degi og æfa lög nokkuð þétt en datt útúr því þegar leið á frönskuna.
svo er ég líka að reyna að taka mig á í heilsumálum. erfitt að byrja en nú bara skal það takast takk fyrir. stuðningur er vel þeginn!
miðvikudagur, nóvember 26, 2003
vá maður, rosalegt! í gær um hálfsexleytið sat ég hér við tölvuna og var að chatta í rólegheitunum þegar það heyrast sírenur og læti hérna fyrir utan. ég leit útum gluggann og mér til mikillar furðu var múgur og margmenni hérna á bílaplaninu með fána og gjallarhorn og lúðra. ég hafði ekki hugmynd um tilgang þessarar skrúðgöngu eða öllu heldur skrúðstöðu af því að fólkið færði sig ekkert. ég beið aðeins og kíkti svo aftur útum gluggann og sá þá hvar húfuklædd manneskja var að hrúga blaðastrimlum í garðinn og hljóp svo á brott. mér leist nú heldur betur ekki á blikuna og hringdi í hann tomma minn. hann kom af fjöllum. ég hitti því fyrir nágranna mína úti á gangi og þeir tjáðu mér að þarna væru í gangi mótmæli og ég spurði af hverju þetta hús hefði orðið fyrir valinu...ég komst þá að því að borgarstjórinn í verdun (sem er nafnið á hverfinu mínu í montreal) býr í sama húsi og ég!
það var líka búið að fylla anddyrið af blaðastrimlum og drasli og óeirðalögreglan mætti á svæðið. þegar ég fór út úr húsinu á leið í skólann stóð óeirðalögreglan fyrir utan dyrnar hjá mér og annars konar lögreglur við útganginn og þegar ég kom útúr húsinu stóð fólkið u.þ.b 20 metra frá húsinu í einni þvögu með fánana og lúðrana og hrópuðu og kölluðu þegar ég labbaði áleiðis til þeirra...þetta var alveg eins og í bíómynd. ég reyndi svo að spyrja fólkið hverju það væri að mótmæla en skildi ekki alveg svörin. ég spurði þá hvort ég þyrfti nokkuð að vera hrædd um íbúðina sem ég byggi í og hvort þetta yrðu ofbeldisfull mótmæli...fólkið sagði að þetta yrði allt í lagi, þau væru friðsæl í mótmælum sínum. þegar ég svo kom heim aftur voru allir farnir og byrjað að þrífa draslið úr anddyrinu og garðinum og sagði húsvörðurinn mér að það hefðu einhverjir asnar farið upp á efstu hæðina þar sem borgarstjórinn býr og hellt svínahlandi á teppið í ganginum. jahérna!
ég komst svo seinna að því að fólkið var að mótmæla sameiningu hverfanna innan montreal í eitt og þeim niðurskurði á starfsmönnum sem varð til fyrir bragðið.
mánudagur, nóvember 24, 2003
sunnudagur, nóvember 23, 2003
...og bara fyrir þá sem vilja vita þá verður brúðkaupið næsta sumar...í ágúst. :-)
nú er bara að bíða eftir boðskortunum og byrja að skrifa ræður.
laugardagur, nóvember 22, 2003
fimmtudagur, nóvember 20, 2003
nú er bara eitt próf eftir...munnlegt. ég á að mæta klukkan hálfeitt í dag og tala við einhvern kennara í tíu mínútur á frönsku. ég hugsa að það verði í lagi. hin prófin hafa gengið svona ágætlega bara. annars er þetta nú ekki alvarlegt, ég er bara að þessu fyrir mig. sumir í bekknum eru svakalega stressaðir af því að þetta hefur með skólann eða starfið að gera. ég er hins vegar bara að læra frönsku af því að mig langaði til þess. :-)
ég horfði á brot úr þætti um þau hjónakornin djessíku simpson og nikk. mikið svakalega er þetta boríng sjónvarpsefni! hún gerir ekki annað en að kvarta og kveina og er með fýlusvip allan tímann. í þættinum sem ég sá þá voru þau að tjalda og grilla og hún horfði á allan tímann og annað hvort kvartaði eða ropaði! alveg glatað bara.
annars hef ég lítið að segja, verð jú fegin þegar frönskunámskeiðið er búið og ég get farið að syngja meira aftur.
sunnudagur, nóvember 16, 2003
tomminn er kominn heim. jess fyrir því!
við fórum á bíó í gær. sáum "love actually". hún var bara mjög skemmtileg. fólk klappaði meira að segja þegar hún var búin og samt var byrjað að sýna hana fyrir tveimur vikum. fólk kemst bara í svo gott skap eftir að hafa séð myndina að það ræður ekki við sig. :-)
áður en við sáum myndina fórum við á "eggspectations" sem er svona morgun- og hádegisverðarstaður. flestir réttirnir innihalda egg og þaðan kemur þetta hnyttna nafn. hehe...
síðasta föstudag var "krítík" í hópnum mínum í listaskólanum mínum. það virkar þannig að allir sem hafa sama leiðbeinanda mæta niðrí skóla með öll verkin sín og það sem verið er að vinna í og sýna hinum í hópnum og leiðbeinandanum og þá er það gagnrýnt. ég mætti með þrjú málverk og nokkrar teikningar. gat ekki farið með skúlptúrana mína tvo af því að annar er blautur og hinn er líklega í brennslu núna. krítíkin gekk bara ágætlega. fólki fannst ég bara hafa tekið framförum frá því ég byrjaði og þá er ég bara nokkuð ánægð enda tilganginum náð! :-)
í komandi viku verða þrjú frönskupróf, lokaprófin á þessari önn. ætlunin er því að læra eitthvað í dag og á morgun og taka þessi próf í nefið.
fimmtudagur, nóvember 13, 2003
jæja. nú er ég öll að hressast!
í gærkvöldi spilaði hljómsveitin mín á pöbb sem heitir pub st. paul og er í gamla bænum. þetta var eins konar "battle of the bands" en við ákváðum bara að vera með fyrir tveimur dögum síðan og seldum ekki fjörtíu miða eins og þarf til að taka þátt heldur þekkti einhver einhvern og við fengum að svindla okkur með. giggið gekk svona líka glimrandi vel að fólk ætlaði bara ekki að hleypa okkur niður af sviðinu. þegar við vorum búin komu margir og þökkuðu okkur fyrir og einn sagði við mig svo eftirminnilega "girl, you've got soul"...hehehe. annar hélt að ég væri ítölsk? og þriðji sagði "you lifted me up" !?!? sem ég veit ekki alveg hvað þýðir enda líklega þýtt úr frönsku yfir á ensku.
þetta var þrusustuð og bandið lék á alls oddi með skemmtileg múv og svona...jess!
smá mont.
tommi kemur aftur á morgun. húrra fyrir því! mér finnst vika alveg nógu langur tími í sundur. þó það sé fljótt að líða.
í gærkvöldi var þrumuveður og ég gekk ein heim frá lestarstöðinni í rigningu og myrkri. ekkert sérlega sniðugt eiginlega. ekki segja mömmu!
sunnudagur, nóvember 09, 2003
sit hérna í slopp með bláa hárkollu. hmmm...why? af því að ég var að tala við tomma á netinu og júlíu dóttur hans...sko skemmtiatriði í gangi. áðan var ég með bleika hárkollu. hvar endar þetta eiginlega???
dagurinn í gær hjá mér fór í smávegis búðaráp og meiriháttar sjónvarpsgláp. húrra fyrir því! mér tókst að horfa alveg svakalega mikið á sjónvarpið í gær. alveg kominn tími til. hehehe.
í dag fer ég svo í teiknitíma og ætla síðan bara að slaka á. nóg að gera framundan og ég svona hálfpartinn eitthvað slöpp. ætla að reyna að sleppa við einhverja pest. er líka að fara að syngja með bandinu á miðvikudaginn. jei!
föstudagur, nóvember 07, 2003
röddin í mér er alveg búin. ástæðan er sú að ég fór í morgun heim til hins söngvarans í hljómsveitinni minni og tók upp raddir fyrir tölvuleik sem verður gefinn út í desember. ég öskraði úr mér lungun gjörsamlega. enda er þetta með eindæmum ofbeldisfullur leikur. hinn söngvarinn var nefnilega að vinna í fyrirtæki sem gerði þetta og hann hefur ennþá sambönd innan geirans og tekur að sér verkefni til að eiga ofan í sig og á. ég eyddi sumsé morgninum í að gefa frá mér hljóð eins og verið væri að drepa mig og berja sundur og saman. hehehe. gamanaðessu!
tommi er á leiðinni til íslands. hann verður þar í viku. svosem bara ágætt að vera nokkra daga í sundur svona öðru hverju. þá er alltaf svo gaman að hittast aftur. :-)
fimmtudagur, nóvember 06, 2003
vá hvað tíminn líður hratt og ég skrifa lítið!!! ég er viss um að fólk er bara hætt að kíkja hingað. :-/
ég er bara búin að vera í frönsku og listatímunum og gert lítið annað. hef varla sungið neitt undanfarna daga. hef bara ekki haft tíma til þess eða eins og þeir segja á frönsku "je n'ai pas le temps"!
það eru tvær manneskjur í bekknum mínum sem eru fæddar í ísrael, stelpa og strákur. þar að auki eru þrjár manneskjur sem hafa búið í ísrael í mörg ár. þessi tvö sem eru fædd í landinu taka sjálf sig ferlega alvarlega. ætli það sé eitthvað með það að gera að þau telja sig vera guðs útvöldu þjóð? það fer ferlega í taugarnar á mér þegar fólk talar niður til manns af því að maður er ekki frá bandaríkjunum eða einhverju "heimsveldi". ísraelski strákurinn (sem hefur reyndar búið lengst af í kanada) talar stundum þannig að það fer í taugarnar á mér. í dag var hann að segja að hann hafi lært stjórnmál og þá nánar tiltekið um frið og stríð. ég spurði hvort hann hafi lært eitthvað um ísland eða skandinavíu og hann fór þá bara að grínast með það, þetta væri nú ekki næstum því nógu merkilegt til að læra um o.s.frv. ég sagði honum þá bara að hann ætti að reyna að læra eitthvað af löndum eins og íslandi, þar væri ekkert ólæsi, fólk næði háum aldri og væri sérlega vel menntað og stundaði ekki stríð eins og "sumar" þjóðir! hann gat ekki annað en samsinnt því. hehehe. mér finnst það bara bera vott um óþroska og vankunnáttu að tala niður til annarra. takk fyrir!



