Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

föstudagur, október 31, 2003

það er 18° úti og logn. alveg yndislegt veður! í kvöld er líka hrekkjavaka og maður er farinn að sjá litla krakka í skrímslabúningum með litla poka eða töskur með sér. ferlega sætt. :-)

ég er að fara að skoða grasagarðinn hérna með frönskuhópnum mínum. það er sýning sem heitir "the magic of lanterns". á víst að vera svakalega flott og passar vel í góðu veðri á hrekkjavöku að gera eitthvað svona skemmtilegt.

ég er aðeins búin að jafna mig á demantsatvikinu. samt drullusvekkt ennþá.

fimmtudagur, október 30, 2003

SVEEEEEEEEEEEKKKKKKKK!!!

ég var í frönskutíma áðan og varð allt í einu litið á hægri hönd mína og uppgötvaði þá að demantinn vantaði í hringinn sem tommi gaf mér í afmælisgjöf einu sinni. greeeeeeeeeeeeennjjjjjjjj...!!! ég fann hann hvergi og mun líklega ekki finna hann aftur. mér finnst það ömurlegt, glatað og alveg ómögulegt bara. :-(

ég hef eiginlega ekkert að segja þessa dagana. er í skólanum alltaf bara og hef lítinn tíma í annað. er orðin hálfþreytt á frönskunni, dáldið miklar upplýsingar sem maður þarf að innbyrða á stuttum tíma. enda er þetta intensívur kúrs.

æi, ég er bara í fúlu yfir því að hafa týnt demantinum og nenni ekki að skrifa neitt.

l8er

sunnudagur, október 26, 2003

jíha! helgin bara svotil búin og ég ekkert búin að blogga. hvurslags eiginlega frammistaða er þetta?

í gær missti ég af brúðkaupi einnar elstu vinkonu minnar hennar svanhildar önju og sigurðar ágústs verkfræðibekkjarfélaga mínum. svekk fyrir því. en mikið svakalega var brúðurin falleg á myndunum sem ég fékk sendar frá henni. til hamingju kæru hjón og lifi lífið!

í gær söng ég svo opinberlega í fyrsta skipti með hljómsveitinni minni...og fékk meira að segja borgað fyrir (látum liggja á milli hluta hvað það var mikið...it's the thought that counts...hehee)! það var alveg meiriháttar stuð og líka sérlega lærdómsríkt. fólk virtist skemmta sér mjög vel og sumar kellurnar þarna tóku skemmtileg dansmúv á gólfinu. ein þeirra var sérlega litrík, líklega kona um fimmtugt í eldrauðu dressi. hún missti sig alveg og fór bara í trans...dansaði ein heillengi eins og hún ætti lífið að leysa.
frönsk-kanadísk brúðkaupsafmæli virðast bara vera hin mesta skemmtun. fólk var almennt svakalega glaðbeitt og hresst og ekki útúrdrukkið.

í dag fór ég svo í teiknitíma sem var bara fínn og afslappandi. maður er bara agaleg listaspíra. hehe.

miðvikudagur, október 22, 2003

nu er bara alltof mikid ad gera hja mer og eg nae ekki ad skrifa neitt. bidst afsokunar. ur thessu verdur baett thegar eg er buin med fronskuna og hef meiri tima til ad hangsa og skrifa einskis nytar upplysingar a netid.

mer er enntha illt i oxlinni! hvad er thad?!?!

eg for i skuplturtima a manudaginn og eg held ad eg se bara buin ad finna thad sem mig langar ad gera...va hvad mer fannst aedislegt ad hnoda leir og bua til hofud med brjaludu hari! vonandi verdur naesti timi jafnskemmtilegur.

um helgina verdur fyrsta borgada giggid okkar ggsoul (nafnid a bandinu). snilld.
gitarleikarinn er eitthvad stressadur og heldur ad systir hans (sem fekk okkur til ad spila) eigi ekki eftir ad verda nogu anaegd med okkur. eg held ad thetta verdi bara i finu lagi.

thad er farid ad kolna herna og komid ulpuvedur. mer finnst thad bara allt i lagi. haustid herna er svo fallegt...laufin verda marglit og gefa borginni skemmtilegan blae, serstaklega uppi i fjallinu (sem er stadsett i midri borginni fyrir tha sem ekki vita og sest vida).

laugardagur, október 18, 2003

í dag á besta vinkona mín, hún björg afmæli. til hamingju með afmælið bjögga beib. :-)

föstudagur, október 17, 2003

ich bin alein und die welt hat mir vergessen...man ekki alveg hvernig þetta er skrifað, lína úr lagi með ninu hagen.
tommi er í kaliforníu og er búinn að vera síðan á mánudag. hundleiðinlegt þegar gæinn er ekki heima. en nú styttist í að hann komi heim, eins gott maður!

fór í málitíma í gærkvöldi. svakalega á maður eftir að læra mikið! púff, svo mikil tækni að blanda þessa liti og ákveða hvaða pensla eigi að nota og hvernig fíling maður vill í myndina o.s.frv. þetta er samt svakalega gaman og spennandi. tímarnir eru þrír klukkutímar en virka einhvern veginn eins og hálftími í lengd. mér finnst ég vera rétt byrjuð þegar ég þarf að fara að taka saman aftur. furðulegt en skemmtileg tilfinning að geta gleymt sér í einhverju svona.

ég er með bilaða öxl! ég veit ekki hvað kom fyrir en ég er bara að drepast í vinstri öxlinni. er eiginlega hætt að geta lyft einhverju með vinstri höndinni og ég veit ekkert hvernig maður á að laga þetta. kann einhver á axlameiðsli? kannski er ég farin smá úr lið. er það hægt?

ég fæ alveg svakalega sjaldan tölvupóst. mér finnst það frat. af hverju sendir enginn mér tölvupóst?




sunnudagur, október 12, 2003

tommi kom með tvær snilldarhugmyndir í morgun þegar hann vaknaði. þegar ég spurði hann hvort hann ætlaði ekki að rúlla sér yfir til mín þá sagði hann: "nei, ég er í leiðréttingarstöðu". því næst sagði hann: "veistu hvernig maður getur séð fram í tímann? ... þú tekur vídeókameru og setur á record og svo spólarðu bara áfram í mynd". þetta er náttúrulega snilld! hversu oft hefur maður vaknað skakkur og þurft að fara í leiðréttingarstöðu? og hvað annað getur gerst þegar maður er að spóla áfram í mynd á tómri spólu en að maður sjái fram í tímann??? ég skora á lesendur að tileinka sér hugtakið "leiðréttingarstaða" og prófa að spóla áfram og sjá hvað gerist...

ég lenti í svakalega fyndnu atviki á fimmtudagskvöldið þegar ég var að koma heim með metróinu. eftir að hafa setið í lestinni og velt fyrir mér myndinni sem ég var að mála í tíma vippaði ég mér útúr lestinni og labbaði í átt að útgangnum. þá gengur til mín strákur eins og hann sé að leita að einhverju og byrjar að tala á frönsku...ég næ ekki alveg því sem hann segir og bið hann að útskýra á ensku. ég bjóst náttúrulega við að þarna væri villtur ungur maður að spyrja vegar. þá byrjar hann: "excuse me, ehh...sorry...ehhh... this might sound very direct...ehhh... but i couldn't but notice you on the train and i think you are very cute...ehh...and..." ég byrjaði að flissa og átti bágt með að skella bara ekki upp úr. ég leit á hann vandræðalega og sagðist vera gift og þá kom á hann voðalegur svekkelsissvipur og hann sagði við mig hissa: "no, you can't be married, how can you be married...you're too young..." mér varð þá ljóst að þessi strákur hlyti að vera mun yngri en ég og þegar ég hugsa um það hlýtur hann að hafa verið um tvítugt. þarna var því ekki kominn villtur ungur maður að spyrja vegar heldur villtur ungur maður að leita að konu.
þetta var alveg svakalega fyndið...guess you had to be there... hann var svo svakalega vandræðalegur eitthvað og ég átti svo bágt með mig að ég hló upphátt alla leiðina heim. jahérna!

hér er ennþá blíðviðri... verður líklega um 20° í dag og sól. eftir það fer að kólna og hlýnar líklega ekki fyrr en eftir áramót einhvern tímann. brrr...

föstudagur, október 10, 2003

einu sinni var ég verkfræðingur í london.
núna er ég bara graskersstelpa!!!

miðvikudagur, október 08, 2003

þetta er nú eiginlega bara að breytast í svona einusinniívikublogg. ekki er það nú gott!

ég hef bara ekkert voðalega mikið að segja. reyndar er búið að vera alveg hrikalega mikið að gera hjá mér undanfarið og skólarnir báðir farnir að taka heljarinnar tíma. sem er nú bara ágætt.

síðustu helgi var maraþonæfing hjá hljómsveitinni. mættum um miðjan laugardaginn og fórum heim uppúr tólf og svo aftur á sunnudeginum frá um ellefu til fjögur. það var svakalega gaman. allir voru í góðu skapi og til í slaginn og það gekk bara vel að æfa. við erum alltaf að verða betri og betri.

ég fór í innanhúshönnunarkúrs í gærkvöldi. það var alveg ágætt. kennarinn talar kannski aðeins of mikið um sjálfan sig og sína viðskiptavini en ég ætla að sjá til hvort ekki rætist úr námskeiðinu.

ég er búin að taka tvö frönskupróf og fékk næstum því tíu í báðum. er það vel.
á morgun er munnlegt próf og ég er bara of lúin til að læra undir það. held að ég kunni þetta ágætlega. sjáum bara til.

hér er annars rosalega gott veður í augnablikinu. 18° og léttskýjað. spáin fyrir morgundaginn og næstu daga er líka æðisleg. um tuttugu stig næstu daga og sól. það sem er ennþá betra er að ég er í fríi á föstudaginn og mánudaginn af því að hér er thanksgiving. jess!

föstudagur, október 03, 2003

jess! hér eru nokkrar myndir.
við hittum þennan mjög svo gamla indjána í quebec city fyrir nokkru og hjálpuðum honum að leita að einhverju (fundum aldrei út hvað það var).
tommi í kláf sem fer upp að rosalega háum foss.
við fórum og snæddum á sætum stað við rosalega sæta götu.

svakalega líður tíminn hratt! kominn föstudagur og ég var bara rétt að byrja vikuna fannst mér.

ég fór sem sagt í málunartíma í gær og málaði í fyrsta skipti á ævinni með akrýllitum. það var pínuskerí í byrjun og ég var hálfhrædd bara við þennan hvíta striga. ég náttúrulega kann ekkert að blanda liti og átti í fullu fangi með að ná sama appelsínugula lit og appelsínan var í körfunni sem við áttum að mála. þetta gekk samt alveg skítsæmilega fannst mér og striginn var farinn að líta út eitthvað í áttina að viðfangsefninu. kennarinn er frábær. maður á fertugsaldri hugsa ég og hrikalega hress í þokkabót.
þetta var alveg stórskemmtilegt og mér fannst ég vera þarna í svona hálftíma á meðan það liðu heilar þrjár klukkustundir.

ég fór á lostræng á miðvikudagskvöldið. það gekk bara fínt. reyndar mætti hljómborðsleikarinn ekki og það heyrðist alveg en ég er alltaf að verða vanari og vanari. það verður svo maraþonæfing um helgina og við ætlum að reyna að æfa upp prógrammið almennilega.

nágranninn fyrir ofan mig er eitthvað að öskra úti á svölum. eitthvað að rugla á frönsku, quebecfrönsku. ég skil ekkert hvað hann er að segja. mér heyrist hann samt vera eitthvað fúll. kannski er þarna eins manns bylting að eiga sér stað. maður veit aldrei.