Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

mánudagur, september 29, 2003

á fimmtudaginn byrja ég að læra að mála eins og listamaður. hehh...
ég er búin að kaupa pensla og liti og striga og allt. vonandi klúðra ég þessu ekki alveg! hefur alltaf dreymt um að geta málað fallega mynd. sjáum hvernig gengur.

af hverju bera frakkar bara fram um 50% af rituðu máli? alveg furðulegt tungumál hvað það varðar. hvers vegna til dæmis að skrifa "s" svona oft í enda orðs fyrst því er bara sleppt almennt í framburði? eitt dæmi er orðið "dents" sem er borið fram með "d" í byrjun og svo afbakað "a" á eftir því!
annað merkilegt atriði í þessu tungumáli eru tölurnar. af hverju segja menn til dæmis "quatre-vingt dix-neuf" þegar þeir geta sagt nítíu? hverjum datt þetta eiginlega í hug? kjánalegt.

er aftur i fronskutima. mikid ad gera hja mer nuna og ekki mikill timi til ad skrifa.

eg eyddi gaerdeginum i ad taka upp log heima hja hinum songvaranum i hljomsveitinni minni. kom thangad um ellefu og var ekki farin fyrr en upp ur sjo og allan timann ad taka upp. eg var aaaaaalveg buin eftir thetta. og mjog erfitt ad vakna i morgun.

forum i party a laugardagskvoldid. stud. svo bara endalaust stud i fronsku.

jei.

laugardagur, september 27, 2003

nuna er eg i partyi! vei!

fimmtudagur, september 25, 2003

er i fronskutima. engir islenskir stafir herna og enginn skilur hvad eg er ad skrifa. aumingja folkid ad skilja ekki islensku. hehehe...

kennararnir eru finir, gera namsefnid skemmtilegt. eg er med tvo kennara, einn mann og eina konu og thau eru baedi fra frakklandi. eg laeri sumse alvoru fronsku herna. sem er gott. mjog gott.

thad rignir uti. a held eg ad rigna naestu daga lika. aei mer finnst thad bara allt i lagi. stundum er huggulegt ad hafa rigningu.

vid leigdum 'frida' i gaer. svakalega fin mynd verd eg ad segja og ahugaverd. salma bara lek ansi vel. alltaf gaman ad sja godar myndir sem skilja eitthvad sma eftir. madur er bara kominn med algjort oged a hollywoodfrodunni. horfdum a 'the core' um daginn og hun var bara vond. alveg vond. sem er ekki gott!

mánudagur, september 22, 2003

byrjuð í frönsku. fór í fyrsta tímann í dag og gekk svona líka svakalega vel...hehehe...er búin að læra flest sem kennt verður fyrst um sinn og þarf því að hanga þarna að hlusta á byrjendurna æfa sig að segja "je m'apelle fangfang" og svo framvegis (það er ein sem heitir fangfang).

tommi var að enda við að prófa nýja gítarmagnarann sinn og sýnist mér hann bara vera nokkuð ánægður. búinn að prófa að spila nokkra slagara og ac/dc. hehehe...

helgin var fín. fórum í partý eins og gefið var til kynna í síðustu færslu. partýið var líka bara fínt. á boðstólum var bolla með 94% spíra í og held ég að það hafi ekki farið nógu vel í mannskapinn. einnig var á boðstólum melóna sem búið var að drekkja í vodka fyrr um daginn og gerði hún útslagið hvað nokkra veislugesti varðar...ehhh... sumsé sumir vöknuðu með hausverk og aðrir fóru heim þegar kvöldið var hálfnað og voru samt með hausverk. ég náttúrulega vaknaði hress að vanda og hakkaði í mig harðfisk tomma til mikillar ánægju. hehh..

jæja...nú vill tommi að ég hætti. adios

laugardagur, september 20, 2003

erum á leið í afmæli hjá henni jóhönnu hans jóa í kväll. fyrst fer tommi á lostræng og ég fæ því nægan tíma með sjálfri mér til að undirbúa mig..hehehe.

í gær komu jeff og nat til okkar í heimsókn. það var ansi huggulegt bara. gaman að fá gesti.

ég hef eiginlega ekkert að segja. byrja í skólanum á mánudaginn. búið.

fimmtudagur, september 18, 2003

ég náði ekki að fá myndirnar hjá pabba hans tomma og því verður einhver bið á því að hér birtist myndir, lesendum síðunnar til mikillar armæðu án efa. hins vegar tókum við tommi örfáar myndir. ég og churchill ábyggilega að hugsa það sama...ekki neitt...hhehehe. er þetta alvöru karl?.

þessa indíána heimsóttum við. það var svakalega áhugavert. það er einhvern veginn mjög sjaldan minnst á þetta fólk þegar talað er um sögu norður-ameríku. asnalegt.
ég fékk þarna alveg svakalega fallega eyrnalokka og draumafangara.


þarna skoðuðum við sætar verslanir og borðuðum sérlega gómsæta borgara með brie ost og annað góðgæti.

þennan foss skoðuðum við líka og ég þorði að fara í svona lyftu upp að honum og ganga yfir brúnna yfir fossinn sjálfan. mér fannst ég með eindæmum huguð enda lofthrædd manneskja á ferð!

michael jackson var víst í borginni í vikunni. við sáum hann ekki! kannski eins gott...hehe...

þriðjudagur, september 16, 2003

ekki mikið verið að skrifa þessa dagana. nóg að gera samt.
foreldrar hans tomma eru í heimsókn og við erum búin að vera í túristafíling í nokkra daga. fórum til quebec city, heimsóttum indíána, gengum yfir brú yfir svakaháan foss, fórum í búðir og margt fleira.
ég fór svo í stöðupróf í frönsku í gær og stóð mig með óprýði...hehh...verð líklega sett í byrjendahópinn. enda er ég byrjandi.
í gær gengum við upp á fjall og horfðum yfir borgina frá útsýnispalli þar til gerðum. mjög fallegt.

veðrið er búið að vera svakalega gott og vont í leiðinni. hér er svo rakt (í dag 88% raki) að maður á bágt með að anda, hvað þá ganga upp á fjall. *andköf*

ég set inn myndir við tækifæri.

miðvikudagur, september 10, 2003

loksins! komin með bíl! kræsler neon. bara hinn besti bíll og flottur á litinn... jess!
til hamingju við. :-)

þriðjudagur, september 09, 2003

jæja. mánudagur á enda og þriðjudagur hafinn. tíminn líður eitthvað svo hratt að ég bara hélt að ég væri duglegri að skrifa en er greinilega bara algjör lúði í þeim málum. god damn!
reyndar fór síðan niður í einhvern tíma vegna rafmagnsleysis. það nefnilega kviknaði í húsi hér rétthjá um helgina og þá fór rafmagnið. það vildi þannig til að húsið er beint á móti slökkviliðsstöðinni svo það hefur örugglega ekki liðið langur tími frá því eldur kviknaði þar til bílarnir voru mættir. hehe...

annars er ég búin að vera með hausverk og slappleika og ekki nennt bara að setjast fyrir framan tölvuna. en nú er tíðin betri og hausverkurinn svo gott sem farinn. jess!

foreldrar hans tomma mæta í heimsókn á fimmtudagskvöldið og verða viku. það verður gaman. alltaf gaman að fá gesti. nú er bara að plana hvað á að gera á meðan þau verða hérna. kannski farið verði til quebec city aftur og skoðað betur.

ég er svo alltaf að bíða eftir því að geta skrifað á síðuna mína að við séum búin að kaupa bíl en það er bara búið að vera vesen að fá bílinn og ganga frá öllu að ég hef ekki viljað jinxa það með því að hrópa húrra of snemma. tilkynningin mun birtast á síðunni von bráðar.

ég þarf líka að setja inn myndir sem við tókum á einnotavél hérna í síðustu viku. ég bað um geisladisk með myndunum frá framkölluninni en geisladiskurinn var eitthvað gallaður og myndirnar eru ekki allar heilar. bömmer. ég á þær þó á prenti allar. sem er gott.

veðrið er búið að vera svakalega fínt undanfarið. rúmar tuttugu gráður yfirleitt og sól. mun ferskara en er yfir hásumarið hérna. sem er líka gott.

þriðjudagur, september 02, 2003

í gær fórum við í hjólatúr niðrí gamla bæinn hérna og skoðuðum mosaiculture sýningu. ótrúlegt hvað hægt er að gera með blómum og gróðri...alveg hrikalega flott sýning. það var líka troðið af fólki þarna enda frídagur og gott veður. við gleymdum myndavélinni en keyptum eina einnota og tókum myndir á hana. ég ætla að tékka hvort ekki sé hægt að fá geisladisk með framkölluninni og hvað það kostar líka.

jæja, ég þarf að fara að æfa lög fyrir morgundaginn. verð að mæta vel æfð á æfingu...kominn tími á það hjá mér!

mánudagur, september 01, 2003

lítið að gerast hjá mér svosem. fór í heimastúdíó á föstudaginn og var allan daginn við upptökur á lagi sem hljómborðsleikarinn í hljómsveitinni minni samdi...mér fannst ég hljóma alveg ömurlega en þeir segja mér að þetta verði betra þegar búið er að mixa allt og svona. við ætlum að taka upp fleiri lög, vona bara að það eigi eftir að hljóma betur. maður er bara næstum á bömmer yfir þessu. óvell...sjáum til.

við fórum á bjarkar tónleika síðasta fimmtudag. þeir voru alveg frábærir. rosaleg flugeldasýning og læti enda voru þetta útitónleikar og veðrið var frábært og stjörnubjart og miiiiiiiiiiiiiiiiiiiikið reykt af jónum þarna. maður var bara orðinn hálfskakkur þarna eftir að standa í þvögunni og anda að sér reyknum. púff!

svo var partý á laugardagskvöldið hjá trommaranum hans tomma. hann býr í ótrúlegu húsnæði. einhvers konar skúr sem er eins nálægt lestarteinunum og hægt að vera. ef hurðin er opin sér maður lestina keyra framhjá og íbúðin lýsist upp af ljósinu frá henni. inni í íbúðinni eru hillur úr rekavið eða álíka og iðnaðarvifta. hann sagði okkur líka frá því að þegar hann er að elda á rafmagnshellunni sinni og rista brauð í einu þá verður hann að slökkva á lampanum í eldhúsinu til að það slái ekki út. ofurtæknilegt allt saman.

það er löng helgi, labour day í dag og frí hjá öllum. víhí. við erum bara svo löt eitthvað, gerum ekkert merkilegt. ætlum jú að fara eitthvað út, kannski í bíó eða eitthvað álíka.

hjólið mitt virkar alveg þrusuvel. algjör snilld að eiga hjól.