Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

miðvikudagur, ágúst 27, 2003

nú er maður tuttuguogsjö. mér finnst það nú bara hálffúlt...hélt að ég væri enná átján! óvell...

ég hef ekkert skrifað í svakalega langan tíma. vótsj! hmmm...sko það sem gerst hefur síðan ég skrifaði síðast er að við héldum matarboð, ég átti afmæli, við fórum til quebec city, ég varð eitthvað lasin eftir það og tommi líka, ég skráði mig í nám í vetur og fór á hljómsveitaræfingu. víha!

matarboðið var fyrir hljómveitina hans tomma. ég eldaði kjúklingabringur að hætti mömmu og bjó til suverän kartöflusalat með. heppnaðist bara mjög vel og fólk fór ekki heim fyrr en klukkan fjögur og einn sofnaður á borðstofuborðinu. svo var líka horft á "með allt á hreinu" og hlegið yfir henni...gaman að komast að því að útlendingum finnst þessi mynd líka skemmtileg (hún er sko með enskum texta á dvd). sumsé snilld.

við vöknuðum seint á laugardaginn og keyrðum eins og leið liggur til quebec city. þegar við komum þangað var bara ískalt og rigning! hitastigið var rétt fyrir ofan tíu gráðurnar og við tommi neyddumst til að kaupa okkur yfirhafnir. við keyrðum eitthvað um þarna og fundum eitthvað tívolí sem við skruppum í og skoðuðum og ég sá sætasta póní í heiminum sem var sofandi. hann var alveg agalega feitur en pínulítill og ótrúlegt krútt. svo fengum við að klappa geitum og kindum og litlum grís. alveg frábært.
við fundum okkur hótel aðeins útúr bænum en þau sem við prófuðum inni í bænum voru stútfull, líklega af því að það var maraþon þarna á sunnudaginn og einhver hátíð fyrir herlúðrasveitir. huh?
sunnudagurinn var svo mun heitari og við betur sofin. við náðum að skoða gamla bæinn ansi vel og fá okkur gott að borða. quebec er mjög falleg borg verður að segjast og fólkið afskaplega vinalegt. maður á ábyggilega eftir að fara aftur þangað.

í gær fór ég og skráði mig í nám hjá saidye bronfman centre of the arts og verð þar að stúdera næsta vetur. alveg er ég rosalega ánægð með það og hlakka svakalega til að byrja. ég verð líka á frönskunámskeiði í haust og fram í desember þannig að það verður nóg að gera hjá mér...jafnvel of mikið.

svo er maður alltaf að æfa með hljómsveitinni. við erum komin með ágætisprógram núna með lögum eins og "hella good", "midnight at the oasis", "you've got the love" og "sing a simple song"...allt fönkí og grúví stöff. planið er að spila einhvers staðar í lok september og bjóða öllum sem við þekkjum. hehehhee...

jamm og jæja...held ég segi þetta gott í bili. písát.

miðvikudagur, ágúst 20, 2003

jeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeesssssssssssssssssss! ég er búin að fá hjól!!!

á sko ammli á laugardaginn og fékk bara eitt stykki hjól með körfu og alles í gær og sótti það í dag. :-)
nú get ég hjólað eins og vindurinn um montreal og nágrenni. jíha!

ekkert smá flott hjól líka...með vatnsflöskuhaldara líka. algjört möst í hitanum hérna.

svo er nú bara planið fyrir helgina að fara til quebec city þar sem verður þrammað um stræti og skoðað og notið þess að vera til. ekki amalegt.

svo var ég að fá póst frá íslandi. pakka með einum brjósthaldara í...hahaha...ekkert smá dularfullt. eða þannig...gleymdi honum hjá mömmu og hún var svo góð að skella honum í póstinn fyrir mig. hehehe.

mánudagur, ágúst 18, 2003

hey, svo á ég afmæli á laugardaginn. síðasti sjéns að senda gjafir með hraðpósti!!!

helgin búin bara strax?

tónleikarnir hjá tomma gengu bara vel, reyndar lítið af liði þarna klukkan korter í sjö á laugardegi en samt sem áður voru þeir laaaaaaaaaaaangbestir. :-)
eftir tónleikana skelltum við okkur svo á "le pistol" og sátum að sumbli (ég drakk vatn og pepsi dry) eitthvað fram á nótt. staðurinn "le pistol" er að því er ég best veit í eigu bróður
sam roberts sem lék og samdi meðal annars lagið "brother down". svo skemmtilega vildi til að þessi sami sam var staddur þarna sama kvöld og við náðum mynd af honum. vídeómynd! vonandi stóð honum sam á sama. hehh... enough with the bad jokes already!

í gær var svo bara slakað á og farið í rómantískan göngutúr fyrir tvo og kerlingum fleytt...eða bitches floated á enska tungu.

þannig var nú það.

laugardagur, ágúst 16, 2003

kominn laugardagur og sólin skín enn. hér var eldað fínt í gær og bökuð kaka. síðan var góðgætið etið á meðan horft var á "með allt á hreinu" og hlegið dátt. jeff vinur hans tomma kom svo akandi með kærustu sinni og nágranna og við skelltum okkur aðeins út á lífið. nágranni hans var meira en lítið skrítinn. hann var algjörlega hæper allt kvöldið og var alltaf að tala um frið og virðingu og hreyfa hendurnar rosahratt. mjög sérkennilegur náungi. ég kunni nú ágætlega við hann af því að hann kallaði mig sólskin. hverjum er illa við það, að vera kallaður sólskin...

í morgun vöknuðum við upp við að lögfræðingur nokkur hringdi í tomma. gæinn sem er búin að vera að reyna að kaupa gömlu loftkælinguna af okkur síðan í gær. hann er eitthvað voðalega bissí og ætlaði að koma í gær og lét okkur bíða í nokkra klukkutíma eftir sér en kom svo aldrei. svo hringir hann fyrir allar aldir og bara mættur fyrir utan!!! þegar hann kemur inn úr dyrunum blasir við okkur óldtæmer með litaðar krullur og litað skegg í gulri skyrtu og gulum stuttbuxum. svakalega smart.
hann er ennþá fyrir utan og tommi með honum. örugglega að ræða um heimsins vandamál og lausnir. maðurinn gaf víst út plötur í den og vinnur í innflytjendabissnessnum.
já og þegar kom að því að borga gripinn varð hann náttúrulega að prútta aðeins eins og góðum lögfræðingi sæmir en dró svo upp mjööööööööög þykkt seðlabúnt og sagði að við ættum ekkert að taka mark á því, væri bara tímabundið...nei bara djók svo. mjög skrýtið allt saman en við seldum dótið og nú er meira pláss í íbúðinni okkar...hehehe

í dag eru svo tónleikar hjá tomma og það verður nú gaman. alltaf gaman að spila eða vera á tónleikum. jess!

fimmtudagur, ágúst 14, 2003

jæja...byrjaði daginn á að fá mér french toast með ávöxtum og maple syrup og svo að blása á mér hárið í fyrsta skipti í laaaangan tíma af því að engin hefur hárþurrkan verið. úr því var bætt í fyrradag og þvílík snilld...hehhh...var búin að gleyma hvað það er hentugt að blása á sér hárið.

það er búið að vera hrikalega heitt og rakt undanfarið. aumingja fólkið sem er ekki með loftkælingu! okkar er í gangi næstum allan sólarhringinn!

ég hef nú frá voðalega litlu að segja svosem. fer á hljómsveitaræfingu í kvöld og það verður ábyggilega stuð.

svo er tommi og shot while hunting að spila á club soda á laugardaginn um sjöleytið. það verður svakalegt.

miðvikudagur, ágúst 13, 2003

hann torfi er laaaaaaaaaaaangduglegastur við að kommenta á síðunni minni. hvaða leti er þetta í öllum hinum?

var að koma úr bænum rétt áðan. keypti könnu til að geyma vatn í inni í ísskáp og verslaði blómavasa og gerviblóm á útsölu. nú er orðið afskaplega huggulegt á hillunni inni í stofu. ég þarf bara að ganga frá eftir að við komum heim frá íslandi og þá er orðið nokkuð fínt bara.

í dag er verulega heitt en ekki jafnrakt og hefur verið. sólin skín og brennir mann um leið og maður kemur út. sólarvörn er algjör skylda.

þriðjudagur, ágúst 12, 2003

aðalútihátíðin á íslandi um verslunarmannahelgina. við tommi skelltum okkur. komumst reyndar ekki lengra en skiltið en hey, þetta hefur örugglega verið bráðfyndið.
svo tókum við fallegar myndir í hrauninu hjá bláa lóninu. rosalega er mosinn mjúkur! það má samt ekki standa á honum er það...hann er búinn að vera svo lengi að vaxa.

mánudagur, ágúst 11, 2003

back in the ussr...

komum heim seint í gærkvöldi, eiginlega bara í nótt. flugum með uppáhaldsflugfélaginu okkar icelandair, hehehehe, og þegar við lentum komumst við að því að diana krall og elvis costello voru með okkur í flugvélinni. á flugvellinum í boston stóðum við svo fyrir aftan þau í röðinni að vegabréfsskoðuninni og hefðum alveg getað talað við þau en slepptum því. vorum hins vegar alveg næstum því búin að syngja "dirty diana" af því að við höfðum verið að grínast með það í vélinni og fengið lagið á heilann. þeim gekk ekkert svakalega vel að komast í gegnum vegabréfsdótið, tók slatta tíma fyrir þau og þegar við komumst að kom í ljós að gæinn sem var að vinna þarna vissi ekki hver þau voru og elvis costello heitir víst eitthvað allt annað í alvörunni. svo stóðu þau skötuhjú langt frá færibandinu með töskunum af því að þau voru svo fræg...

ferðin okkar til íslands var bara schnilld. gerðum fullt og fengum lakkrís og hittum vini og vandamenn. alveg eins og það á að vera. spurning um að skella inn einhverjum myndum?

hér í montreal er heitt og raaaaaaaaaaaaaaaaaaakt. u.þ.b 27°C núna og ógeðslega rakt...og klukkan er ekki orðin tíu. úff!

mánudagur, ágúst 04, 2003

þarna var þá góða veðrið! hehehe...

verslmhelgin var bara fín og er ennþá. fórum í sumarbústað í grímsnesi í nokkra daga, keyrðum á laugarvatn, geysi, flúðir og fleira. sáum skondið skilti hjá útlaganum á flúðum og fórum næstum því inn á landsmót línudansara en höfðum ekki kjark. hehh.
svo var farið með svakalegt fellihýsi í húsafell og gist þar eina nótt. syntum aðeins í kleppjárnsreykjalaug, skoðuðum akranes og busluðum í atlantshafinu í steikjandi blíðu.

núna erum við bara hjá múttu að slappa af og ætlum að njóta borgarinnar í dag og e.t.v næstu daga. algerlega spilað eftir hendinni bara. jess!

hvað er annars málið með skeggtísku á íslandi í dag? er virkilega komið í tísku að vera með rytjulegt "full"skegg??
og af hverju eru allar stelpur í sjálflýsandi támjóum skóm?
við fórum nefnilega aðeins út á lífið í gær og mér fannst bara fólk alls ekki smart upp til hópa. mikið af þessu "artífartí" liði sem kaupir fjöldaframleidd "notuð" föt í spútnikk dýrum dómum og heldur að það sé öðruvísi. æi, mér fannst þetta bara dáldið skondið. hmmm...