Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

þriðjudagur, júlí 29, 2003

hvar er svo góða veðrið???

er hjá mömmu núna í lúxus. byrjuðum daginn á því að fara í hárgreiðslu, ég lét særa hárið. jess! svo var farið að útrétta. sótti um nýjan passa og fékk nýtt debetkort. síðan var haldið í kringluna og við settumst á kaffihús og horfðum á fólkið. fórum svo í nokkrar búðir og mamma gaf mér augnskugga og kinnalit...mamma best :-)

síðustu daga höfum við svo bara verið í rólegheitunum í grindavík. horft á sjóinn og hlustað á rokið...hehehe.

við ætlum svo að reyna að ferðast eitthvað og skoða ísland. það verður stuð. algjört möst að fara í sveitasjoppu og fá sér slísbörger eða pullu. ójá.

annars finnst mér að íslendingar mættu brosa aðeins meira. það fer þeim svo vel.

föstudagur, júlí 25, 2003

jæja...farin á klakann. erum að leggja af stað til boston hvað úr hverju og þaðan verður haldið til íslands. engar upptökur enn komnar á vefinn en koma kannski seinna. það gekk bara vel að spila í gær og þótti fólki bara gaman að heyra íslenska tónlist.

fimmtudagur, júlí 24, 2003

útsýnið í dag. eiginlega alltaf fallegt bara. :-)

þriðjudagur, júlí 22, 2003

enn styttist í íslandsförina...lakkrís, pulsur...mmmm...

það er bara búið að vera skýjað hér í tvo daga. ótrúlegt. og hellidemba í gær! gott fyrir blómin.

í kvöld ætlum við að æfa aftur með honum jorge og annað kvöld förum við tommi líklega bæði á lostræng (hljómsveitaræfingu) og á fimmtudaginn spilum við á þessari góðgerðasamkomu og leggjum svo í'ann á föstudaginn. svakaprógram bara hjá minni jájá...jájájáááááááá.

fór svo í lunch í gær með kunningjatzjellu úr west side story, henni claudiu. kjöftuðum heil ósköp og hún kom og hlustaði á mig syngja

"all that jazz" í tölvunni. jei! henni fannst nýja íbúðin okkar líka schnilld. þó að það sé ennþá soldið drasl.

við tommi vorum að horfa á sjórpið núna um daginn og rákumst á mynd sem heitir "the rutles" og er bara frábær. monty python gengið leikur bítlaeftirhermuhljómsveit sem heitir "the rutles" og gefur út plötur eins og "i am the waitress" og "all you need is lunch". ótrúlega fyndin mynd.
við duttum líka inn á aðra gamla og fyndna mynd, "stay hungry". í henni leika jeff bridges, arnold schwarzenegger og sally field. arnold er bara ótrúlega fyndinn í þessari mynd. hann keppir í einhverri mister universe keppni og spilar á fiðlu úti í sveit og allt.

sunnudagur, júlí 20, 2003

"i need love tough as a pick-up truck..." þetta lag sáum við tommi á einni tónlistarstöðinni hér í dag!!! kántrífílingur af verstu gerð. gæinn söng lagið standandi á pallbíl einhvers staðar í útsveitum ameríku á milli þess sem sýnd voru myndskeið frá fjölskyldulífi hans. konan, börnin og timbrið í garðinum. en af textanum að dæma er bíllinn hans mest metinn af öllu. stórfurðulegt lag. hér má finna textann og nafnið á söngvaranum.

dagurinn í dag var sumardagur af bestu gerð. byrjuðum á því að vakna seint um síðir. fórum svo aðeins út í sólbað hjá sundlauginni...mjög stutt reyndar en náðum að svala sólarþorstanum fyrir daginn. síðan fórum við í hljóðfærabúð og skoðuðum hljóðnemastanda fyrir mig en fundum ekkert nógu gott. að því loknu var étið og horft aðeins á afríkutónlist (það er afríku festival í bænum, comedy festiva, francofolies festival og eitthvað fleira líka). gengum niður saint catherine stræti og námum staðar hjá paramount bíóinu þar sem við ákváðum að kíkja á terminator 3. hún var bara ágæt, alveg eins og maður bjóst við eiginlega. nóg að sjá arnold segja nokkrar vel valdar setningar til að verða ekki fyrir vonbrigðum hehehe. svo erum við bara komin heim og stefnum á rólegt sunnudagskvöld fyrir tvo. :-)

í gær var smá tekið til. svo kom jeff í heimsókn með fleiri lög fyrir tomma að hlusta á...svo kom jorge og spilaði nokkur íslensk lög með okkur tomma...svo fór tommi á hljómsveitaræfingu...svo kom hann heim...horfðum á sjónvarpið...fórum svo að sofa.

föstudagur, júlí 18, 2003

nú er um það bil vika þangað við leggjum í'ann til íslands. ætlum að keyra inn til boston og fljúga þaðan á klakann...hehehe...kannski ekki réttnefni þessa dagana. er ekki gífurleg blíða aldrei þessu vant? maður er allavega að sjá myndir af fólki í nauthólsvík og í sundlaugunum. vonandi helst veðrið fram yfir verslunarmannahelgi (jeræt!).

við tommi erum svo líklega að fara að spila fyrir góðgerðafyrirtæki ásamt mexíkanska gæjanum sem við hittum í partýi núna um daginn. ætlum að reyna að taka eitt til tvö íslensk lög...í jazzútgáfum. jafnvel að maður skelli upptöku af því ef vel gengur á netið.

veðrið er fínt í augnablikinu rúmlega 20 gráður og sól. kannski maður reyni að fá smá brúnku. ekki seinna vænna fyrir íslandsferðina. hehehe...

miðvikudagur, júlí 16, 2003

újé...komin heim af hljómsveitaræfingu sem gekk bara veeeeeeeeel. ég fékk að syngja aðal öll lögin og fílaði það bara veeeeeeel. jessidíjess!

í gær fórum við að hlusta á bróður hans jeff spila og syngja á le swimming. svakaflott. fín lög og vel spilað. mæli með að fólk kynni sér þetta band. kannski verða þeir frægir.

í dag fór ég í furðulegasta audition sem ég hef farið í. þetta var fyrir eitthvað pappírsdót fyrir ericsson og maður átti að mæta í svona semi-bissness átfitti og þetta átti að taka fimm mínútur. ég náttúrulega missti af lestinni á leiðinni og alltof heitt úti fyrir svartar síðbuxur og skyrtu þannig að þegar ég mætti hefði ég alveg getað verið að taka þátt í blautbolakeppni. eníveis. ég fékk eitthvað blað sem ég átti að fylla út en kunni ekki af því að ég skil ekki nógu mikla frönsku. konan hjálpaði mér þarna og var ansi hneyksluð þegar ég vissi ekki öll málin mín...sumsé mittismál o.s.frv. algjör lúði. hún sagði líka að ég væri of ung fyrir þessa auglýsingu. ó vell. mér var svo stillt upp og teknar tvær myndir af mér sveittri með vandræðalegt bros og svo bara út og næsti. tók líklega nær þremur mínútum en fimm. og ég fæ pottþétt ekki djobbið. god damn!

á tveimur dögum er loftkælingin okkar búin að sjúga 54 lítra af vatni úr loftinu og það er ennþá rakt hérna inni!!! hvað er það???!?!

mánudagur, júlí 14, 2003

sólin er komin aftur. jess! út í sólbað!

helgin var fín. tommi fór og spilaði aftur með bandinu og gekk það bara ágætlega eftir því sem ég best veit. mér tókst að gera fínt á baðinu og elda tvisvar. við skelltum okkur í partý með tveimur hljómsveitarmeðlimum og hittum þar fullt af artífartífólki, meðal annars kontrabassaleikara frá mexícó sem var alveg til í að spila smá bossanovatónlist með okkur. svo fórum við líka í bíó á myndina sjóræningjar karíbahafsins og líkaði bara ágætlega. við horðum á sjónvarpið meira en hollt er og drukkum vatn!

mikið svakalega er ég svöng. best að vippa sér inn í eldhús og fá sér morgunmat. jíha!

föstudagur, júlí 11, 2003

rigning í dag. á að rigna á morgun líka. kominn tími til eiginlega. búið að vera sólskin í svakalega langan tíma. aumingja blómin.

af hverju þarf alltaf að vera rugl með hraðsendingafyrirtæki??? í hvert einasta skipti sem maður á von á einhverju skemmtilegu klúðrast sendingin. alveg óþolandi!

annars erum við búin að ákveða hvenær við ætlum að mæta til íslands næst. nefnilega 26. júlí og verðum í c.a tvær vikur. það verður fjör og vonandi tekst okkur að ferðast eitthvað um landið. alltof langt síðan maður hefur skoðað ísland eitthvað að ráði. hvað ætlar fólk annars að gera um verslunarmannahelgina?

fimmtudagur, júlí 10, 2003

og þá er kominn fimmtudagur og laaangt síðan við fluttum og samt ennþá drasl og allt í rúst hjá okkur. god damn!
þetta gengur bara svo hægt.

ég hef annars voðalega lítið að segja. fór á hljómsveitaræfingu í gær. bassaleikarinn getur ekki spilað með okkur!!! ef einhver þekkir svakagóðan bassaleikara í montreal látið mig þá vita.

þriðjudagur, júlí 08, 2003

ehemm...já og svo þýðir ekkert að senda póst á stinastud.com af því að það virkar ekki. bara senda á hotmail takk. :-)

mánudagur, júlí 07, 2003

það mætti halda að ég hafi ekkert annað að tala um en hljómsveitir og söngæfingar hérna. hehhh...

nú skal bætt úr því. hmmm... við fórum á eitt stykki öldurhús í gær með jeff sem er í hljómsveitinni ablyss og bróður hans. roknastuð. fengum okkur plateu borgara og djús.

annars er hrein schnilld að geta trítlað bara í sundlaugina hérna í garðinum þegar manni er orðið of heitt. ætli þeir frysti vatnið á veturna og leyfi manni að skauta...nahh...líklega ekki.
ég er alveg hissa á að fólk sé ekki farið að bíða í röðum eftir að koma í heimsókn til okkar!

sunnudagur, júlí 06, 2003

æm alæv!

fórum á tónleika í gær með dreamtheatre og queensryche í þarnæsta húsi! ekki alveg my cup of tea en gaman að sjá svona góða hljóðfæraleikara spila. áhorfendurnir voru flestir óverlí dívóted aðdáendur og voru í trans allan tímann. hehehe...

á eftir erum við svo að fara á foo fighters á sama stað...sumsé þarnæsta húsi. tommi er staddur á hljómsveitaræfingu og kemur vonandi bráðum því búið er að opna húsið og fólk byrjað að streyma inn. ég bíð bara spennt.

fór annars út að lokka í dag...labba+skokka...eða kannski skabba frekar. ætlunin að koma þolinu í lag. ekki seinna vænna.

föstudagur, júlí 04, 2003

dáldið heitt núna og mistur...raki og mengun...bjakk!

fór á hljómsveitaræfingu á miðvikudagskvöldið. gekk betur en síðast en samt ekki alveg nógu vel ennþá. það er svo allt öðruvísi að syngja með heilu bandi en að syngja með píanóundirleik eða upptöku (karaoke eða backing track). ég hef bara ekki næga reynslu í þessu. maður þarf svo mikið að hlusta á hina og vita hvað er í gangi og stjórna styrknum án þess að heyra almennilega í sjálfum sér. þetta kemur nú örugglega. það vona ég allavega. þá sendi ég fólki boðsmiða á ball. hehe...

ekkert að frétta þannig séð...bara með hausverk og var með bjúg í gær og fyrradag!!! gleymdi að drekka vatn og átti piparbrjóstsykur frá íslandi. ekki mjög sniðugt í hitanum hérna! hehh...
núna drekk ég bara vatn og borða ávexti og reyni að sleppa saltinu.

fimmtudagur, júlí 03, 2003

jæææææææææææææææææja...loksins erum við flutt og komin í samband við umheiminn aftur. jess!

útsýnið úr eldhúsglugganum í gær. ekki amalegt!

nýja íbúðin er algjört æði. ný og fín og allt í besta standi. svalirnar alveg brilljant og sundlaugin í garðinum ennþá meira brilljant...og svo eru hjólastígar, metro, búðir og allt nógu nálægt. svaaaaaaaaaaaaaaaaaalt!