Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

sunnudagur, júní 29, 2003

nú styttist í að við flytjum. úffpúff...ég verð fegin þegar það verður búið! fórum á hulk áðan í bíó. fín mynd bara og vel gerð. nú eigum við eftir að fara á charlies angels 2, terminator 3, bruce allmighty og fleiri... rosalega mikið af myndum í bíó núna!

við fórum líka á jazzhátíðina í gærkvöldi. hittum þar tvær sigrúnar, einn birgi, einn halla og jóhann og jóhönnu. svo var einhver evangeline að þvælast þarna líka...hehehe. kíktum aðeins á fríu útitónleikana og enduðum svo á skemmtistað/bar/kaffihúsi og sátum þar og tzjilluðum í einhvern tíma.

á morgun mætir gellan sem ætlar að flytja í þessa íbúð með allt sitt hafurtask og treður því hingað inn sem best hún getur. við verðum því að koma okkar stöffi fyrir þannig að það taki sem minnst flatarmál. þess vegna þurfum við að taka tölvuna úr sambandi eitthvað og róta þessu til hérna. síðan verður kannski niðri og lítið bloggað á meðan. og svo þegar við flytjum í nýju íbúðina verður síminn ekki settur upp fyrr en 2. júlí og það þýðir að síðan kemst upp í fyrsta lagi þá. jæja...you'll live!

laugardagur, júní 28, 2003

loksins var hægt að blogga! þurfti sko tölvusnillinginn tomma til að finna útúr þessu hérna hjá mér. blogger eitthvað búinn að breyta og ég náttlega verkfræðingurinn kunni ekkert á þetta. hehehe...

annars er bara snilld hér í montreal í dag. í gær kom fólk og pakkaði niður draslinu okkar og ég þarf því ekki að hafa áhyggjur af því. í gærkvöldi fórum við tommi niðrí bæ að horfa á jazzfestivalið og enduðum á tónleikum með sænskum og norskum jazzgeggjurum. í dag fórum við á eggspectations og ég fékk mér french toast með blönduðum ávöxtum og ávaxtakokteil...og í kvöld förum við líklega aftur á jazzhátíðina að kíkja eitthvað og hitta fólk sem við þekkjum hér. ofsalegt stuð og skemmtilegheit. :-)

fimmtudagur, júní 26, 2003

og í dag er heitt og rakt og heitt og rakt aftur...púff!!!

á morgun kemur fólk að pakka niður dótinu okkar fyrir flutninginn...og í dag er allt í drasli. ætli maður þurfi að taka til fyrst...hmmmm?

fór á lostræng í gær. gekk ekkert ofurvel en þetta kemur vonandi allt saman með æfingunni. æfingin skapar meistarann sagði einhver vitur maður!

svo verð ég nú að setja inn myndir frá íslandsferðinni...t.d er ein hér af okkur björgu og ein af þóru og sindra og ein af mér og maríu með KÖKUNA...og ein af pabbanum að skúra! stórskemmtilegt allt saman. familjen jonsson rúlar!

miðvikudagur, júní 25, 2003

komin til montreal aftur. búið að vera algjört bloggleysi á mér síðustu daga en nú skal bætt úr því. ójá!

hér er heitt og rakt og heitt og rakt og já heitt...og rakt. engin loftkæling á þessum bæ enda vitleysa að vera að koma henni fyrir í glugganum þegar við flytjum eftir fimm daga. sjitt.

laugardagur, júní 21, 2003

El Tom hér!

Jæja, ég var að skríða inn, sveittur eins og skötuselur eftir tæplega 3ja tíma hjólreiðatúr!

Í dag var 28°C hiti, heiðskýrt og hreinlega alger steik. Ég lagði í'ann um kl 3 og byrjaði á því að hjóla upp fjall! Sem er ekki góð hugmynd eins og ég komst að hálfa leiðina upp, helmóður. Betra að hita upp fyrst. ...allavega, ég komst á toppinn og skoðaði ríkra manna hverfið útsýnið sem það hefur. Ég vildi bara að ég hefði haft myndavélina. Sást vel inn til bandaríkjanna og alla eyjuna svo til (Montreal er á eyju). Eins og ég sagði, þá var ansi heitt í dag og ég að sjálfsögðu var í gallabuxum og svörtum þykkum bol! Já, ég er Íslendingur :-/ Jæja, ég ákvað að setja einhverja endapunkta á þessa ferð svo að hún hefði einhvern tilgang (við karlmennirnir verðum alltaf að hafa markmið ;-) þ.a. ég hjólaði að hljóðfærabúðinni á Jean Talon, sem er "diagonally" hinum megin (norð-austan) við fjallið frá heimili okkar (suð vestan)... sem sagt slatta langt í burtu. Hún var lokuð. Hrmpf. Jæja, næsti áfangastaður var hin stóra hljóðfærabúðin sem er fyrir sunnan fjallið. Ég þangað. Þurfti að taka smá króka en komst á staðinn... Búðin var opin!!! Jess. Ég lagði hjólinu og læsti nýja lásnum mínum, labbaði að innganginum þar sem maður tjáði mér á frönsku að búðin væri lokuð þar sem klukkan væri orðin 5. Hrmpf2!!! Kannski eins gott því ég hefði eflaust labbað út með nýja harmonikku. Jæja, næsta stopp... Fór í búðina, keypti bönsj að drekka og Sushi bakka. Svo þegar ég skreið inn úr dyrunum hringdi Örn og spurði hvort ég vildi ekki koma að hitta þau og fara út að fá okkur... sushi! Jæja, jú, endilega, ég skelli mér bara... "seilaví" eins og innfæddir segja.

PS: ég kveikti á mediaplayernum rétt í þessu og tók eftir því að hljómborðsleikarinn gerir áberandi feil í "It ain't over 'till it's over" með Lenny Kravitz, þegar gítarsólóið er rétt byrjað!!! Og þetta er stúdíóupptaka! Jæja, þetta er víst kallað "rokk"! Og jú, stundum hef ég of mikinn lausan tíma. :-/

fimmtudagur, júní 19, 2003

og þá er stínan ég komin til íslands. jei.

skellti mér í fjölskyldu- og húsdýragarðinn í dag og svo á kaffihús og niður laugarveginn. í sólskini og blíðu með sólgleraugu. ekki amalegt.

nújork var flott að vanda. skemmtilegt að kíkja aðeins þangað.

ég ætla samt að næla mér í smá blund núna. ekkert búin að sofa síðan ég fór af stað í ferðalagið. úpps.

later

miðvikudagur, júní 18, 2003

Hæ hæ hæ!!!

Já, þið heyrið rétt, þetta er ég, Tommi! Ég vissi að þið mynduð kannast við röddina! Þar sem Stína er nú annaðhvort að spássera í New York eða í flugvélinni á leiðinni til Íslands, ákvað ég að stelast til að blogga smá. Það er synd að segja frá því að ég, "tölvugúrúinn", hef aldrei bloggað, því er þetta tilvalið tækifæri þar sem stína getur ekkert gert til að stoppa mig.

Því miður hef ég frá litlu að segja :-|

Nema þá kannski það að ýmislegt var á seiði um síðustu helgi (t.d. afmæli, leiksýning, tónleikar, partý, formúlan og fleira smálegt). Í tilefni af því ætla ég að leyfa ykkur að sjá stórgóða mynd sem ég náði af Michael Schumacher rétt áður en hann skaust eins og gedda yfir ráslínuna og fagnaði sigri í kjölfarið. Af lúmska glottinu á svipnum á honum og hvernig hann hallar örlítið undir flatt, að dæma, myndi ég segja að hann hafi verið nokkuð sigurviss...

þriðjudagur, júní 17, 2003

og í tilefni dagsins!!!



gleðilegan sautjánda júní!!!

mánudagur, júní 16, 2003

halló!

mein name ist kristin birgitta agustsdottir. ich bin isländerin und ich habe sauerkraut in meiner lederhosen!

tvær myndir...ég að koma af sýningu...á limmunni...tzjékk it! og ein mynd af afmælisstráknum mínum...

sunnudagur, júní 15, 2003

þennan lista ætti maður bara að leggja á minnið fyrir fólk sem hefur áhuga á íslandi...gamanaðessu..this list is exaggerated in case someone not from iceland sees it.

? The Icelandic phone directory lists people by their first names.
? Icelandic women have the highest life expectancy in the world at 81 years of age. Icelandic men are among the highest at 76.
? Iceland has 15 active volcanoes.
? The Westman Islands near Iceland are a temporary home for Keiko the orca whale, star of "Free Willy."
? Iceland is essentially pollution-free because it is powered with geothermal energy.
? Iceland is probably the biggest banana-growing country in Europe (they are grown in greenhouses).
? The entire population speaks English.
? Iceland doesn't really have any trees.
? March 1 is "National Beer Day," which celebrates the end of prohibition of beer on March 1, 1989.
? Icelanders are the tallest people in the world. Men are an average height of 5-foot-9 and a half.

laugardagur, júní 14, 2003

halló! ekkert bloggað mikið upp á síðkastið. slappt bara. búin að vera busy að halda afmæli og dansa fyrir pöbulinn!

í kvöld var næstsíðasta sýningin á "a chorus line", sú síðasta verður annað kvöld. sveiattan. ég er eiginlega búin að venjast því að vera alltaf að fara að sýna. mér finnst það gífurlegt stuð. væri alveg til í að gera það oftar.

afmælið í gær gekk svakavel bara. buðum góðu fólki heim og það var sungið og spilað og tjúttað eitthvað fram á nótt. aumingja nágranninn. ég var samt búin að senda honum bréf og bjóða honum í afmælið ef hann þyrði og segja honum að hann mætti alveg mæta með hnefann á hurðina ef honum fyndist við of hávær. hann hefur kannski bara forðað sér. hehehe.
núna er tommi staddur á ozzy osbourne tónleikum ásamt nokkrum öðrum. fékk sms frá honum áðan þar sem hann tjáði mér að tónleikarnir væru "klikkaðir" eins og hann orðaði það. hlýtur að vera góðs vísir.

svo er ég að fara að syngja með bandinu aftur á morgun. hljómborðsleikarinn mætir víst líka...þannig að við verðum fjögur. gaman að því. á meðan á því stendur fer tommi að horfa á formúluna með öðrum íslendingum hér...fékk miða í afmælisgjöf og eyrnatappa með. ;-)

ég er bara að fara að smella mér til íslands á miðvikudaginn í nokkra daga. gat bara ekki sleppt því að fara í afmælisboð hjá uppáhaldsfrænku minni henni þóru áslaugu alnöfnu mömmu. skyldumæting. jess. lakkrís here i come!

föstudagur, júní 13, 2003

Tommi Á Afmæli í Dag! Til hamingju krúsírúsíbollugimsteinninn minn!

miðvikudagur, júní 11, 2003

og þá er frumsýningin af "a chorus line" búin. gekk bara fínt. ég er bara í fyrstu tíu mínútunum af sýningunni eða svo. en það er samt stórskemmtilegt. alltaf gaman að vera á sviði. svo er þetta líka svo flott sýning.

í gær reyndi ég að kenna kanadamanni að smala kindum. sýndi honum að maður ætti bara að veifa höndum og hlaupa á eftir þeim í rétta átt og öskra hluti eins og "svona, farðu...hó, hey..." o.s.frv. honum fannst þetta alveg stórsniðugt. mér fannst það líka.

í augnablikinu er ég að snæða bláberjavöfflur með maple syrup (hlynsýrópi). alveg ofboðslega kanadískt. it's delish...!

oooooooooooog svo er ég að fara að syngja með hljómsveitinni aftur sem ég trallaði smávegis með í þarsíðustu viku. núna verður það í æfingahúsnæðinu með öllum græjum og öllum hljómsveitarmeðlimum. víha. vonandi að það gangi vel. þarf að æfa nokkur lög fyrir það. da funk is in da house!

mánudagur, júní 09, 2003

skemmtileg pósa á tónleikunum á laugardaginn...

úff púff og púff!

nú er west side story búið og tónleikarnir líka og bara chorus line eftir. tommi var svo góður að taka upp tónleikana og má finna hljóðupptöku af þeim hér...

söngleikurinn gekk svona upp og ofan. föstudagssýningin var hræðileg enda í fyrsta skipti sem við fórum í gegnum allt í einu. laugardagssýningin var bara nokkuð góð. dagssýningin í gær var sæmó og lokasýningin bara fín. svona miðað við aldur og fyrri störf. svo var partý í gær eftir sjóið langt fram á nótt og allir orðnir svakagóðir vinir. stórskemmtilegt alveg. ég kynntist fullt af skemmtilegu fólki og skemmti mér konunglega við að leika mean gang chick! það verða ábyggilega einhverjar myndir frá þessu settar á vefinn næstu daga...set link hér ef það gerist.

föstudagur, júní 06, 2003

do i believe in god, do i believe in me...controversy...

if someone is trying to read this page and doesn't understand icelandic...tough luck! it's just a bunch of useless information about me and my unimportant life anyway...so you're better off without it...hehehe.

i have two pictures though...this...and this

...and that's all you're gonna get!

miðvikudagur, júní 04, 2003

meira stuðið á þessum bænum eða þannig...

eina sem ég geri þessa dagana er að sofa og fara á æfingar. hlakka bara til að fara að sýna þó skrautlegt verði. leikstjórinn er ennþá að jafna sig og óvíst að hún komist á generalprufuna!! það er nú meiriháttar skrýtið. en fólkið í sjóinu er skemmtilegt og við skemmtum okkur án efa mjög vel við þetta. er það ekki fyrir öllu?

svo er hann tommi að verða þrítugur bráðum og þeir sem geta eru velkomnir í partý hjá okkur þrettánda júní klukkan átta. og ég samdi vísu í tilefni af því:

þrjátíu árin þraukað hann hefur
þyrstir í teiti og vín
bolla á borðum og nágranninn sefur
boðskortið sendi til þín

þér er því boðið í veisluna góðu
þrírþrírfimm avenue clarke
mjöðinn með komdu og kinnarnar rjóðu
"à huit heures" hittir í mark

mánudagur, júní 02, 2003

jamm og jæja. kominn tími á að blogga smá núna. var að koma úr bíó. fór ein á hafið í litlu artífartíbíói niðrí bæ. er ennþá að jafna mig eftir myndina. ég fór ein af því að ég var í skapi til þess. nennti ekki að tala við fólk í dag eiginlega...einhvern veginn of þreytt.
hafið er með betri íslenskum myndum sem ég hef séð. hún fær mann til að sakna íslands að vissu leyti en líka til að muna eftir því hvers maður saknar ekki. þetta er náttúrulega ýkt mynd af lífi í sjávarþorpi úti á landi en samt sem áður hefur maður heyrt um flest sem gerist í myndinni. allir þekkja alla og maður getur ekkert farið. frústrerandi.
ég grét helling og fann til með fólkinu í myndinni. hálfömurlegt allt saman.

svo var nú meiriháttar atburður á æfingu í gær fyrir west side story. leikstjórinn fékk heilahristing!!!
hún var að sýna þeim sem leikur "chino" að hann ætti bara að hrinda "maríu" almennilega...sagði við hann ógnandi: "come on david, push me..." og hann ýtti...og hún datt...og hausinn skall aftur og við heyrðum öll hljóðið þegar hann dúndraðist í gólfið. ferlega óhugnanlegt hljóð. ég heyri það ennþá.
við fórum og náðum í klaka og hringt var á sjúkrabíl. í ljós kom að hún hafði fengið vægan heilahristing en allt virtist í lagi og nú er hún í afslöppun heima hjá sér að jafna sig.
við æfðum sumsé leikstjóralaus allan gærdaginn á fyrsta sinn á sviðinu og komumst yfir allan söngleikinn á þremur tímum. nokkuð gott bara...hehhh...

svo var nú þrusustuð hjá okkur íslensku gellunum hérna í montreal á laugardagskvöldið. mættum til hennar sigrúnar jennýjar upp úr fjögur og fórum nokkrar í nudd þar. svo bjó halli maðurinn hennar til kokteila og stóð sig prýðisvel sem barþjónn. síðan var haldið á veitingastað sem heitir newtown og held ég alveg örugglega að hann villnöff formúlubílstjóri eigi staðinn. þar sátum við og borðuðum heillengi og enduðum svo á því að fara niður í kjallara á diskótek staðarins. eftir það var farið á annað diskótek en ég gafst upp á að bíða í biðröðinni eftir að komast inn í rigningu á háum hælum og þurfti líka að fara á heilsdagsæfingu daginn eftir. held að það hafi bara verið fín ákvörðun hjá mér.
hér er svo mynd af okkur öllum...yvonne vantar...hún komst því miður ekki...


var á æfingu í dag frá 9 - 22:30 og er farin í rúmið að lúlla...adios amigos...skrifa meira seinna. fullt að segja frá. bara nenni því ekki núna

svanhildur og björg þetta er fyrir ykkur!!! blogg tileinkað okkur þremur og öllum góðu minningunum úr mr.