Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

föstudagur, maí 30, 2003

the cult er massagóð hljómsveit..."she sells sanctuary" og "edie" allgjör snilld...

fimmtudagur, maí 29, 2003

svakalega er ég syfjuð í dag. *geisp*

svo er maður að fara út að borða með montrealgellunum hér á laugardagskvöldið...það verður svakastuð. skelli kannski inn myndum af því seinna.

mig langar í lakkrís og sterkan brjóstsykur. er ekki einhver sem vill senda mér svoleiðis? alveg ómögulegt að búa í landi þar sem ekki fæst svona góðgæti. maður fer alveg á þörfina eftir vissan tíma.

það er að koma júní...vátsj! ótrúlega er þessi tími alltaf fljótur að líða. júróvisjón búið og allt!

í dag á pabbi afmæli! til hamingju pabbi!!! :-)

miðvikudagur, maí 28, 2003

litaði sjálf á mér hárið!!! ...eriddiggi bara fínt??

þetta er nú dáldið fyndið sko...

enn rakaviðbjóður hér í montreal. maður reynir eftir fremsta megni að anda...gengur ekkert of vel. fór í danstíma í morgun og þurfti að setjast eftir hálfan tíma vegna gruns um yfirlið í vændum...agalegt. reyndar var ég ekki búin að nærast nóg og sofa nóg. týpískt.

svo er chorus line æfing í kvöld hérna rétt hjá. maður skellir sér þangað og reynir að hafa smá stuð.

jamm og jæja. hef ekkert að segja...get ekki beðið eftir að komast í loftkælda aðstöðu...mig vantar súrefni!!!

klukkan hálffjögur hér og ég vakandi :-/

vaknaði við það að hátalari inni í tölvuherberginu hrundi í gólfið. ég var heillengi að finna út hvað það var sem datt í gólfið. dáldið skerí. og svo er manneskjan á efri hæðinni vakandi og gengur um gólf eins og hún/hann eigi lífið að leysa.

stundum væri þægilegt að vera með svona on/off takka á sér bara...

þriðjudagur, maí 27, 2003

úff! það er nú ekki eðlilegt hvað það er vont loft hérna inni hjá mér núna. þýðir ekkert að opna glugga...þá hleypir maður bara meiri raka inn og frjókornum. nú er ég búin að setja rakasuguna í gang og viftu og vonast eftir betri öndun. skelli mér í ballett á eftir og skil græjurnar eftir í gangi bara og þá ætti ég að geta sofið í nótt.

það var hringt í mig frá casting fyrirtæki í gær og ég hefði getað verið að leika extra í einhverri bíómynd ef ég hefði ekki þurft að æfa dans í morgun...god damn! óvell. vonandi verður bara hringt í mig aftur bráðlega þegar ég hef tíma í að hanga einhvers staðar í bananabúning og vera kannski eitt sekúndubrot á skjánum.

mamma á afmæli í dag, mamma á afmæli í dag, hún á afmæli hún mamma, hún á afmæli í dag...!

mánudagur, maí 26, 2003

hauskúpa

grænmeti

smá leti í blogginu sko...hehehe...var bara á æfingum í allan gærdag og sat föst fyrir framan júróvisjón á laugardaginn. hmmm...

nú er tommi farinn til kaliforníu að tína appelsínur...eða þannig. hann er líklega í flugvélinni núna að tszjilla.

og hey, það er búið að aflýsa sýningu á laugardagseftirmiðdaginn þ.a ég hef plenty tíma fyrir tónleikana...jess...allir að mæta sem geta. styðja mig með spjöldum og hrópum og klappi. eða ekki.

það er svoooooooooooooo rakt hérna núna. búið að rigna í nokkra daga svona af og á og loftið er bara ógeð. þungt og rakt og fullt af frjókornum. ég t.d er búin að vera með stíflað nef í dáldinn tíma og fattaði bara í fyrradag að ég væri bara komin með eitthvað ofnæmi...allavega góð ágiskun hugsa ég af því að ég keypti mér klarítín og það bara svínvirkaði. aldrei áður á ævinni hef ég fengið ofnæmi! allsvakalegt.

fimmtudagur, maí 22, 2003

nú er búið að skipuleggja tónleika sem verða 7. júní hér í montreal á þessum stað...og það er víst hægt að kaupa miða online þarna líka. ég verð í west side story um leið og þessir tónleikar byrja og bruna svo á staðinn og tek eins og einn slagara svona rétt í lokin. hehehe...

maría mágkona á afmæli í dag...tiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiil hamingju maría!!! hmm...fann enga mynd af henni, allt tapað frá því að lappinn okkar gaf upp öndina. engu að síður bráðhugguleg stúlka þar á ferð. :-)

fór í söngtíma í dag og hún sylvie var alveg svakalega hörð við mig. píndi mig til að improvisera og allt! ég bara fór í feimniskast og kom ekki nokkrum tón uppúr mér. hehh... svona eins og að segja brandara eftir pöntun. alveg ómögulegt.

svo eru ótrúlega margar þungarokkshljómsveitir að koma hingað með einhverjum gítardúdum innanborðs...sumsé heaven fyrir tomma gunn! ozzy osbourne er að koma, dreamtheatre og queensryche, metallica, linkin park, deftones, limp bizkit og iron maiden. púff! ég skelli mér án efa á flest af þessu með honum tomma mínum enda finnst mér yfirleitt megastuð á tónleikum...sama þó að það séu ekkert nema gítarsóló og öskur...hehehe.

miðvikudagur, maí 21, 2003

svosem ekkert að frétta í dag. lítið gerst síðan síðast..og mér dettur ekkert í hug.

þetta er skóklæðnaðurinn í dag...

þriðjudagur, maí 20, 2003

ennþá er hlýtt hér og hið besta veður.

við gengum niðrí bæ í gær og nutum blíðunnar. fengum okkur lunch á þrí amígós sem er mexíkanskur veitingastaður...ljúffengur matur og óáfengar margarítur...hehehe...algjört æði.
svo urðum við náttúrulega líka að fá okkur ís í tilefni af því að sumarið er komið. settumst í tröppurnar á place des arts og sleiktum sólina. það var nefnilega frídagur í gær hérna...hét í hittifyrra victoria day en þetta árið heitir hann annað hvort dollard day eða patriot day. quebecbúar eru ekkert að fíla þessar ensku hefðir.

svo var ég að skella nokkrum myndum inn á tölvuna...af chilipeppers tónleikunum...þetta var gasalega sniðug mynd. svo voru þarna þrír lúðar í röð sem stóðu þarna rétt fyrir framan okkur og voru alveg að farast úr óöryggi. greyin með unglingaveikina en langaði samt rosalega mikið að syngja með. gæjarnir tveir fyrir framan sungu með öllum lögum á tónleikunum...hástöfum. greinilega harðir aðdáendur þar.

sunnudagur, maí 18, 2003

það er búið að vera bjútífúl veður um helgina og spáin fyrir næstu daga er svakalega góð...sól og hlýtt. jess!

við sáum matrix reloaded um daginn...flott mynd en ekki jafngóð og sú fyrri fannst mér. nú bíður maður bara eftir þessari númer þrjú...hún kemur víst í nóvember. ef maður bíður nógu lengi eftir titlana í bíóinu þá kemur treilerinn úr þriðju myndinni...bara ef fólk veit ekki af því.

við fórum í ágætan göngutúr í gærkvöldi niður í bæ. nú er fólk farið að klæðast stuttum pilsum og hiphopátfittum í gríð og erg. á leið okkar niður í bæ eftir st. catherine sáum við hrikalega fyndna senu. það voru nokkrir blökkumenn klæddir í stórar buxur og með klúta um hausana að dandalast eitthvað inni í og við mini van sem einhver þeirra hlýtur að hafa átt. þetta var eins og tekið útúr myndbandi með einhverjum rapparanum á mtv. bílnum var lagt ólöglega (double parking) og hazard ljósin á...nokkrir sátu inni í bílnum og nokkrir stóðu fyrir utan hann að ræða við einhverja kunningja með viðeigandi látum og augngotum til kvenfólks í kring. bíllinn sjálfur virtist vera vel búinn, nýjasta gerð af þessum minivan og greinilega dvd spilari og skjáir á bökum framsæta og fyrir framan baksýnisspegilinn...ég sá ekki hvaða mynd þeir voru að horfa á en það var tónlist alveg á fullu...rapp og meira rapp. þegar við vorum komin rétt framhjá spyr tommi mig hvort ég hafi séð hvaða mynd þeir voru að horfa á...ég bara "nei, var það eitthvað sérstakt..?"..tommi: "hehe...þetta var gróf klámmynd". jahá...og þeir voru búnir að snúa skjánum frammí að gangstéttinni þannig að það færi ekki framhjá neinum hvað væri í spilaranum. mjög skondið allt saman.

föstudagur, maí 16, 2003

fráááááááááááábærir tónleikar!!! algjör snilld!

það voru tvær hljómsveitir sem hituðu upp...önnur var alveg vond og spilaði hávaða með hátíðniöskrum. seinni hljómsveitin var vel þekkt, allavega hér...queens of the stone age. þeir rokkuðu feitt. massíft og þétt sánd hjá þeim félögum en fúlt að söngvarinn úr fúfæters og fyrrum trymbill nirvana sé ekki lengur að tromma fyrir þá. og þó. nýji trommarinn er rosalegur. hann barði húðirnar alveg í tætlur. og tattúveraður eins og tommy lee, við héldum á tímabili að þarna væri kominn exið hennar pamelu, þó ekki í dallas.
paprikurnar rúluðu alveg. flea er náttúrulega stórruglaður og heldur hjá manni athyglinni með furðulegum hreyfingum og óskiljanlegum kommentum. anthony kiedis söngvari red hot er líka mjög skemmtilegur á sviði. danssporin hans eru einkar áhugaverð. hann átti það t.d. til að hrista á sér rassinn alveg rosalega hratt í gær við miklar undirtektir áhorfenda.
en sumsé, góðir tónleikar í flesta staði og fullt af stuðprikum. næst verður farið á ozzy osbourne held ég...hehehe

svo er ég komin með þessi líka fínu sólgleraugu...í þetta skiptið gerðist ég praktísk og ekki tískufórnarlamb og keypti nothæf gleraugu, létt með góðum glerjum sem eiga að endast mér í allavega nokkur ár. hallelúja!

fimmtudagur, maí 15, 2003

var að máta gamla táskó sem ég á. úff! þokkalega vont að standa á þessu. ég nefnilega tók með mér par af táskóm og fyrstu ballettskóna mína hingað eftir páskafríið...og gömlu spiladósina mína sem ég fékk í danmörku þegar ég var lítil. nokkrir svona nostalgíuhlutir sem er ágætt að skoða endrum og eins.

ég var að kaupa nýjan kodda. fékk meira að segja prescription frá lækninum og fæ hann líklega endurgreiddan frá tryggingunum...almennilegt. allt gert í hausverkjarátakinu. jess. nú á ég bara eftir að fá mér sólgleraugu og þá verð ég örugglega fín. :-)

nú fer að líða að tónleikum...ætlum að hitta örn og sigrúnu í mat og svo drífa okkur á paprikurnar. nú er sko komið stuð. yeah!

ég held barasta að sumarið sé komið hjá okkur hérna. sólin skín og það eru um tuttugu gráður úti. algjört ísveður bara.

dorrit og óli frændi bara gift. jahérna...til hamingju til þeirra. mér finnst hann óli bara ágætur forseti.

ég er svotil hætt að drekka kók. drekk einstaka sinnum diet caffeine free kók bara til að fá bragðið...en alvöru kók með örvandi caffeini er bara ekki gott fyrir mig. takk fyrir það.

hey, fórum á x-men 2 í gær. sátum á öðrum bekk! þetta var bara ágætisafþreying. mér fannst reyndar þessi betri en fyrri myndin. merkilegt. nú bíðum við bara eftir að sjá matrix reloaded. það var byrjað að sýna hana í gær og geri ég ráð fyrir að það sé uppselt í dag á einhverjar sýningar og troðfullt í bíó. við ætlum því að bíða aðeins og sjá hana eftir nokkra daga.

er fólk ekki annars farið að bíða óþreyjufullt eftir eurovision? ég er nú annars smá svekkt yfir því að hún heiti birgitta gellan sem kemur frá íslandi. mér finnst ég eiga einkarétt á nafninu...kristín birgitta...god damn!

mmm...sade er góð...your love is king, crown you with my heart...

miðvikudagur, maí 14, 2003

það er hætt að rigna loksins. samt ekki alveg komið stuð ennþá.

annað kvöld förum við á tszjillípepperstónleika...húrra fyrir því! þá verður bókað stuð.

stóð mig gífurlega vel í ballett í gær og er það nýjum skóm að þakka. hún sheila lawrence sagði "good christine" oft og mörgum sinnum og líkaði mér það bara vel. áfram ég!
nú þarf ég bara að losa mig við bólgur og nokkur kíló og þá get ég orðið primaballerina. stina ballerina, hljómar bara nokkuð vel...hahaha


þriðjudagur, maí 13, 2003

það rignir og rignir. almennt óstuð í dag bara. vonandi kemur sólin á morgun.

sunnudagur, maí 11, 2003

schnilld! birgir stóri bróðir hennar bjargar komst inn á þing! það er nú meira vit í að hafa hann þar en isg. annars á nú eftir að raða þessu aftur hjá samfylkingunni alveg örugglega.

ég vakti í næstum alla nótt og horfði á beina útsendingu á ruv.is, svakalega góð útsendingin...munur ef það væri hægt að horfa á alla dagskrá sjónvarpsins svona.

svo er ég nú alltaf meira og meira að komast að því hvað ég ætla af mér að gera næsta vetur og svoleiðis...stefnir í skemmtilegheit ef allt gengur upp. meira um það síðar. :-)

hér er hin mesta blíða þó skýjað sé, ég hef ekkert á móti skýjum, mér finnst þau bara alveg ágæt. samt ef maður spáir aðeins í þau og gerir sér grein fyrir að þarna yfir okkur lafa skrilljón tonn af vatni þá er manni kannski ekkert sama...hehh..

tommi kemur í kvöld og mánudagurinn á morgun.

amen.

snilld! ég sendi kveðjupóst á fréttastofu ruv núna rétt áðan og hann var lesinn upp...jess...

"ég sit hér í montreal í kanada og var rétt áðan að ræða við vinkonu mína í ungverjalandi, sem var og að hlusta og horfa á ykkur í beinni...þar áður talaði ég við fjölskyldu á íslandi og bróður í finnlandi, allir að fylgjast með!

hér er beðið eftir lokatölum...klukkan rúmlega tvö um nótt!

kveðja úr blíðunni í frönskumælandi montreal,
Kristín"

takk fyrir það...alltaf gaman að koma í sjónvarpinu...þó ekki sé nema óbeint.

hvað er með stuðmenn og indversk föt??? af hverju eru þau klædd í einhverja asíska og indverska búninga??? ég skil þetta ekki alveg. hvað er stuðið í því?

laugardagur, maí 10, 2003

var að koma frá þeim möggu og skúla...grillað og spilað frisbí. ofboðslegur sumarfílingur og skemmtilegheit. jess!

svo er maður nú eitthvað að fylgjast með kosningunum. þetta lítur nú allt í lagi út finnst mér. hugsa að maður þurfi ekki að hafa mjög miklar áhyggjur. hmmm...

mig langar svakalega mikið bara að fara út í listnám. hvað finnst fólki um það almennt? mynduð þið kaupa myndir eftir mig? tjahh...eða skúlptúra? eða geisladisk?

annars er ég í gífurstuði þessa dagana bara. það er gott veður, hausverkurinn er svotil farinn, montreal rúlar og ég er að fara að syngja og dansa á almanna færi! schnilld!

föstudagur, maí 09, 2003

yeah...fönkí sjitt! gaman að hlusta á súperflæ og gamla fönkslagara.

hausverkjaspáin er bara góð en nú bólar á bólgum fyrir þá sem það skilja og veit það ekki á gott. er einhver er með gott ónæmiskerfi til sölu þá er ég tilbúin að borga slatta í poka.

nú er tommi á leiðinni á flúghafen og verður kominn til íslands í bítið. ég verð bara ein heima....buhuhuuuuuuuu...aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaalein...hehehe

nú ætla ég hins vegar að fara að horfa á "gentlemen prefer blondes", "gigi" og "how to marry a millionaire". skemmtist mér vel!

fimmtudagur, maí 08, 2003

jamm og jæja...fékk töfrapillur í dag hjá lækninum og hausverkurinn á leiðinni til fjandans. gott, mjög gott.
svo pantaði ég mér tíma í sjónpróf og nudd og nú skal þetta virka!

ég sá algjöra snilld á leiðinni heim í dag. fór í skóbúð að vanda og sá þar glæsilega skó frá cole haan, hælaháa með nike air púðum og þeir voru meira að segja flottir! ég stóðst náttúrulega ekki skóna og mátaði og viti menn, þeir voru undursamlega þægilegir. þeir voru líka ansi dýrir.

nýjustu fréttirnar hér eru að halle berry er að leigja sér hús í westmount og sést iðulega á vappi í metro matvöruversluninni og java u kaffihúsinu...ég fór einmitt á þetta kaffihús um daginn með nokkrum íslenskum stúlkum hér og þar var tekin mynd .


þriðjudagur, maí 06, 2003

ég sótti um frönskunámskeið í gær. veit ekki hvort ég fékk pláss en ég vona það. byrjar reyndar ekki fyrr en í september en stendur í heila þrjá mánuði. rokk og ról!

fer í söngtíma í dag...fyrsti söngtíminn í laaaaaaangan tíma. og ég sem er ekki búin að æfa mig neitt eiginlega. ojæja, ég bara tek á því núna fyrir tónleika og massa þetta 7.júní.

tommi fer til íslands næstu helgi að spila á balli! ætli hann fylgist ekki líka með kosningunum drengurinn.

hey, ef það er einhver að gifta sig í lok júlí þá skal ég með glöðu geði syngja í brúðkaupinu...hehehe...

mánudagur, maí 05, 2003

jæja...þetta rafmagnsleysisdjók er ekkert fyndið lengur. rafmagnið á það til að detta út í nokkrar mínútur af og til hérna á clarke. heimasíðan dettur náttúrulega niður á meðan og svo tekur hellingstíma að registrera hana aftur. déskotinn!

hmmm...hef ekkert bloggað í næstum tvo daga, jahérna. hmm...sko...á sunnudagsmorguninn ákváðum við að fara út í "smá" göngutúr að skoða nýju íbúðina og taka myndir af húsinu og umhverfinu. það gerðum við og tókst bara nokkuð vel. svo fannst okkur rosalega sniðugt að ganga kannski meðfram ánni svona áleiðis niður í bæ. við gengum eitthvað áleiðis og komum við í kanadadekkinu og keyptum batterí. svo ákváðum við að elta hjólastíg sem við héldum að væri ofsalega sniðugt en enduðum á miðri hraðbraut í iðnaðarhverfi!!! okkur leist nú ekki á blikuna og ég orðin dauðþreytt í fótunum og stressuð á því að vera þarna umkringd rosaumferð. við hittum þar einn gamlan mann, spurði hann og sagði svo:
Hvar áttu heima?
Ég á heima á Klapplandi, Klapplandi,
Klapplandi.

neinei, smá djók en við spurðum hann allavega hver væri stysta leiðin niðrí bæ. hann benti okkur á að koma okkur yfir hraðbrautina framundan og sneiða í gegnum einhvern "car park". við tókum hann á orðinu og drifum okkur yfir hraðbrautina og gengum svo lengi vel og pissuðum á leiðinni...hehh...þangað til við komum að allsherjarhraðbrautagatnamótum. ekki urðum við par hrifin af því. klifruðum framhjá einhverjum brúarstólpum og náðum að smeygja okkur inn á umferðareyju með grasi. eftir smá labb sáum við fyrsta merki siðmenningar í laaaaaangan tíma, gangbraut! jess! loksins sáum við fólk á gangi og hlaupum og eltum það náttúrulega. gengum eftir stíg meðfram kornverksmiðju eða hvað það nú heitir, krönum og lyfturum, undir hraðbrautina, yfir kanalinn og inn í gömlu höfnina. þá vorum við búin að ganga í kannski þrjá og hálfan tíma! við gengum svo í gegnum gamla bæinn og niður á st. catherine (laugavegurinn), fengum okkur subway og tókum svo leigubíl niðrí verdun þar sem við sáum "jesus christ superstar". ég lauk svo deginum með því að fá ofboðslega slæman hausverk sem entist mér alveg þangað til í dag!!!

laugardagur, maí 03, 2003

það er loksins komið tiltölulega gott veður í montreal. spáin fyrir næstu daga slagar í tuttugu gráðurnar og er það vel.

sjónvarpið er dottið út hjá okkur. :-( við sjáum núna aðeins þrjár stöðvar...kannski gott á okkur af því að við keyptum aldrei "cable" þjónustu....hehhh...núna getum við ekki horft á american idol, seventies show, bachelor, seinfeld, friends og allt heila klabbið. óvell. hugsa að við kaupum okkur sjónvarpsþjónustu þegar við flytjum.

alveg merkilegir þessir kaþólsku prestar! núna í vikunni voru tveir frá new jersey teknir fyrir að kaupa þjónustu hjá ungum drengjum í hinsegin hverfinu hérna. annar þeirra sagði eitthvað á þá leið að hann hefði átt að spyrja drenginn um skilríki!!! svo er þetta fólk að predika gegn samkynhneigð. ótrúlegt hvað fólk getur skýlt sér með trú og embættum.

hey, við leigðum myndina "the secretary" um daginn. mjög furðuleg mynd en áhugaverð. ekki sama hollívúddvellan og venjulega sem er gott. sem er mjög gott.

föstudagur, maí 02, 2003

við erum svo samtaka á þessu heimili...svona gerum við...

föstudagur og hellidemba. það bara ætlar ekki að hætta að rigna hérna. ég neyddist til að kaupa mér regnhlíf áðan til að komast heim úr dansi. önbilívabúl.

æi, mér leiðist bara í dag. ég er að reyna að finna útúr því hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór...stærri...en það gengur ósköp hægt. ég er bara í bloggóstuði í dag. fnus!

fimmtudagur, maí 01, 2003

þetta er nú bara snilld...minnir mig á menntaskólaárin...

myndavélin er komin úr viðgerð...

hvað er eiginlega í gangi á tilverunni og batman.is?? annar hver linkur þarna fjallar um femínista og eitthvað tengt þeim. þetta virðist vera mál málanna á íslandi í dag. jahérna. ég var nú aðeins að skoða þessa síðu þarna hjá femínistafélaginu og ég varð bara ekki par hrifin. mér finnst þetta of öfgakennt hjá þeim og eiginlega bara hallærislegt. þetta er eitthvað svo mikill rembingur. maður fær á tilfinninguna að konurnar þarna séu á móti strákum og ekki er það nú sniðugt. ég skil ekki alveg hvernig stelpur fá það út að það verði meira jafnrétti ef búnir eru til tveir hópar...stelpur annars vegar og strákar hins vegar. væri ekki sniðugra að reyna bara að hafa þetta einn stóran hóp þar sem einstaklingurinn skiptir máli, án tillits til kyns? af hverju þurfa stelpur endilega einhvern sér flokk? ég skil ekki alveg þessa lógík hjá þeim.

er annars einhver þarna úti með vinnu fyrir mig? ég er búin að sækja um í nokkrum blómabúðum, skoða atvinnuauglýsingarnar daglega og senda cv-ið mitt útum allt. ekkert gengur. ég held að ég sé ekki nógu aggressív. svo grunar mig líka að fólk vilji ekkert ráða verkfræðinga til að vinna í blómabúð... god damn!

svo er annað sem mér finnst ansi skrýtið...ungir vinstri grænir voru að halda "che guevara" kvöld í vikunni. er þetta fólk virkilega svona miklir kommúnistar? jahérna! er fólk ennþá að halda að kommúnismi gangi upp? sumt fólk lætur bara ekki segjast. þeim finnst kannski bara líklegt að þeim takist að gjörbreyta hugarfari og lífsskoðunum meirihlutans á íslandi.

æi er ekki nóg komið af þessari ópólitík hjá mér? það er bara eitthvað mikið í gangi á íslandi...fólk virðist vera alveg komið með nóg af davíð.