byrjaði daginn á að fara í funk/hiphop danstíma í victoria hall. svo fékk ég mér göngutúr um sherbrooke verslunargötuna hérna í westmount og reyndi að koma auga á halle berry eða robert downey jr (þau voru víst að spóka sig þarna í fyrradag). ég sá því miður engar stjörnur en fékk mér chocolat chaud to go og kjúklingasamloku á kaffihúsinu sem hún halle sást í fyrradag. bara upp á fílínginn. svo fékk ég mér sæti í garði sem heitir westmount park og snæddi nestið í sólinni. einstaklega huggulegur morgunn.
miðvikudagur, apríl 30, 2003
þriðjudagur, apríl 29, 2003
rafmagnið er búið að fara tvisvar á síðasta sólarhring og þess vegna hefur síðan legið eitthvað niðri...veit ekki hverju er um að kenna. kannski síðbúið aprílgabb?
það er blessuð blíðan hér...vor í lofti og fuglasöngur. loksins fer að koma lauf á trén og peysuveður. æ, já ég sem ætlaði að kaupa mér svona drumstick ís...namm. jæja, geri það seinna.
ég er ennþá með einhverja pest í mér, óþolandi. ég held ég þurfi að fara að fordæmi hennar bjargar minnar og gerast heilsudreki til að viðhalda hraustu ónæmiskerfi. svona ferðalög og lítill svefn verða alltaf til þess að ég leggst niður í einhverja pest. alveg glatað.
hefur annars einhver skoðað og pælt í stefnuskrá samfylkingarinnar? ég mæli með að fólk geri það til að forða landinu frá glötun... það er ekki heil brú í þessu hjá fólki. öfundar- og svartsýnisáróður notaður í kosningabaráttunni og auglýsingum. eins og t.d. ungir jafnaðarmenn sem fóru að veiða á tjörninni í dag til að vekja athygli á því að ungt fólk gæti ekki hafið starfsemi í sjávarútvegi í dag... og ráð samfylkingarinnar við því er að kollvarpa sjávarútveginum eins og hann er í dag til að þetta unga fólk eigi séns. ekki er það nú sérdeilis gáfulegt.
veit fólk annars af því að sjávarútvegsfyrirtæki borga meira en helmingi meiri skatt en önnur fyrirtæki? og að um 80% af kvótanum hefur skipt um eigendur síðan þessu kerfi var komið á?
svo er þessi blessaða stefna þeirra í jafnréttismálum alveg ótrúleg. ég las þetta yfir á síðunni þeirra um daginn. hér má finna þetta. það virðist sem þetta atriði sé orðið aðalatriði í kosningabaráttunni hjá þeim. auðvitað er mikilvægt að jafnrétti sé á íslandi en er ekki nær að einbeita sér að mikilvægari málum eins og heilbrigði og peningamálum? af hverju þarf t.d. að taka þetta fram: "rannsóknir verði auknar á heilbrigðisvandamálum kvenna"? hvað með karlana? ég skil ekki alveg hvar jafnréttið er í þessari setningu.
þetta verða án efa hrikalega spennandi kosningar. og úrslitin gætu haft áhrif á áhuga manns að flytja til íslands aftur í framtíðinni...t.d. er stefna samfylkingarinnar í skattamálum ekkert sérlega spennandi fyrir metnaðargjarnt fólk.
mánudagur, apríl 28, 2003
æm só sorrí fyrir að hafa auglýst úrslit úr einum ameríkan ædol þættinum hérna á netinu...en það er búið og gert og verður líklega ekki tekið til baka. reyndar finnst mér líklegt að fólk hafi ekki orðið of sjokkerað þar sem þessi carmen er jú alveg hrikalega léleg og e.t.v margir óþolinmóðir að bíða eftir að henni yrði sparkað.
nú bíð ég bara eftir að hann tommi minn fari að koma. reyndar nokkrir klukkutímar í það ennþá en ég bíð samt óþreyjufull. ótrúlegt hvað tíminn líður hægt stundum þegar maður er lasinn og hefur ekki orku til neinna stórræða.
ég var að skoða einhverja spjallþræði á bitrar konur.is og uppgötvaði að meirihlutinn þarna er með samfylkingunni! ég bara á ekki orð yfir sumum skrifunum þarna. bitrar konur í svakalegri vörn og eru æðislega fúlar út í karlmenn. ég er einmitt með kenningu um þetta.
sumar konur hafa barasta aldrei umgengist karlmenn af neinu ráði. þær eiga bara vinkonur frá barnæsku og eru e.t.v ekki í góðu sambandi við bræður eða eiga enga. þær hafa þar af leiðandi ekki hugmynd um hvernig þeir virka. svo byrja þær í samböndum og alltaf óánægðar með "kallinn"...fara út að skemmta sér með vinkonunum og ræða hvað "kallarnir" þeirra eru vondir og guð má vita hvað.. svo endar þetta rosalega oft í skilnaði og þá eru "kallarnir" náttúrulega alltaf óvinurinn og illmennið. þessar konur hópa sig svo saman og nöldra og stofna flokka og hópa til að kvarta yfir köllunum og vilja kvenréttindi en ekki jafnrétti.
tók próf til að komast að því hversu snobbuð ég er... þetta var útkoman:
74% SNOB.
Good job Kristin, you're safely out of super-
snob territory. But watch yourself - a couple
more sun dried tomatoes here and a few more
trips to Dean & DeLuca there and you might be
veering dangerously towards the stuck-up.
Best go and touch some grubby sick people to
keep your inner snob at bay.
...jahérna. ætli veran í westmount hafi haft þessi áhrif á mig?
kannski ekki skrýtið samkvæmt þessari grein í blaðinu í dag!
thank god að carmen var köttuð í american idol! loksins!!! ótrúlegt hvað hún komst langt þessi stúlka. hún söng alveg hörmulega miðað við hina þarna.
ekki nóg með að koma heim með þrjú ofurkláðabit er ég hálflasin bara í dag. bömmer.
fór á west side story æfingu í gær...hér er ein mynd frá æfingunni. ég minni fólk á að ef það vill kaupa miða þá er ég með slatta til sölu... :-)
sunnudagur, apríl 27, 2003
hvernig er það, bloggar fólk almennt ef það er í vondu skapi? ætli fólk haldi ekki bara fýlunni fyrir sjálft sig? ég veit að ég geri það.
laugardagur, apríl 26, 2003
æm bekk inn ðe ussr...nei ég meina montreal.
ég var nú bara að vakna. var í rútu í alla nótt og vel það. brjáluð stemmning. flaug til boston í gær og tók rútu þaðan sem keyrði í gegnum saratoga springs, albany og plattsburgh. skiptir kannski ekki miklu þar sem það var dimmt alla leiðina. ég þurfti að skipta um rútu í albany, NY, og jafnframt bíða í klukkutíma á meðan. af hverju þarf alltaf eitthvað leiðinlegt fólk að koma að tala við mann þegar manni líður bara ágætlega að vera einn? það kom einhver gæi til mín, maður á miðjum aldri. hann byrjaði náttúrulega að spyrja hvenær rútan færi og svo losnaði ég bara ekki við hann. mér var eiginlega ekkert sama þegar hann spurði "you like guys"...ég var nefnilega að lesa rauða ástarsögu...hahaha. svo klukkutíminn þarna fór í að reyna að losna við hann. þegar rútan átti að fara reyndi hann að vera á eftir mér, örugglega til að geta sest við hliðina á mér en ég sá við honum og vesenaðist með passann minn aðeins til að hann yrði að fara á undan. hjúkk!
annars er nú voðalega gott bara að lúlla í sínu rúmi og hafa allt draslið manns innan handar. borta bra men hemma bäst!
ferðin til íslands var sérdeilis góð. reyndar hitti ég ekkert alla sem mig langaði að hitta en maður er bara alltaf svo busy eitthvað og latur að gera eitthvað sem þarfnast skipulagningar. ó vell. gengur bara betur næst.
fimmtudagur, apríl 24, 2003
jææææææææææja. það er komið sumar...sólin ekki skín...blablabla...
hér í grindavík er ekkert rok. það hlýtur að þýða að það sé komið sumar...hehehe.
stefnan er að gera eitthvað gífurlega sumarlegt í dag. jafnvel fjárfesta í eins og einum ís. ís með hrífu og dís. jafnvel bara nóakroppi.
ég er búin að kjósa! við tommi skelltum okkur til sýslumanns og fylltum út eins og tvo kjörseðla til að gera okkar skyldu og forða landinu frá glötun. hehehe. manni er nú barasta ekkert sama. mér fannst t.d. þessi auglýsing með ingibjörgu sólrúnu og "áfram stelpur" slagorðinu algjörlega út í hött og hrein og bein niðurlæging fyrir kynsystur mínar. hvað er alltaf verið að búa til einhverja hópa..."strákar á móti stelpum"? fattar fólk ekki að það býr bara til eitthvað ójafnrétti. ekkert er verra fyrir jafnréttisbaráttuna en nöldrandi kellingar úti í horni sem vilja ekki vera með strákunum af því að þeir eru svo vondir. ég skil ekki hver tilgangurinn með þessari auglýsingu átti að vera. hverjum finnst þetta sniðugt? höfðar þetta til einhverra kvenna? kannski kvenna sem finnast við eiga óskaplega bágt að hafa átt fyrsta kvenforsetann...æ dónt nó! mér fannst þessi auglýsing vera nógu mikið törnoff ein og sér til að kjósa ekki samfylkinguna (ég ætlaði nú reyndar ekki að gera það en hvað um það). takk fyrir það!
mánudagur, apríl 21, 2003
maður hefur bara ekkert skrifað! engin frammistaða. ég er hins vegar búin að standa mig í lakkrísáti og leti.
og enn sem fyrr nenni ég barasta ekkert að segja frá neinu. held að of mikið súkkulaði og lakkrís hafi sljóvgað heilann svo mikið að það væri líklega ekkert sniðugt heldur. hehh...
fimmtudagur, apríl 17, 2003
ísland, fagra ísland...
nú erum við á íslandi í rok(na) stuði. búin að japla á lakkrís og kaupa sterkan brjóstsykur. alltaf furða ég mig jafnmikið á því hvers vegna útlendingum finnst ekki saltlakkrís og sterkur brjóstsykur góður. með útlendingum á ég við fólki utan skandinavíu...og líklega hollands líka, þeir eru nefnilega ansi miklir lakkrísátsmenn. hvað er annars með þetta rok? við erum jú í paradís rokelskenda, grindavík og það hefur bara ekki hætt að blása síðan við komum. held reyndar að það verði betra í dag en síðustu daga. sýnist sólin vera eitthvað að gera sig líklega til stórverka.
við britta og mamma fórum í búð í gær að kaupa páskaegg. þvílíkt og annað eins! við byrjuðum náttúrulega á að reyna við bónus en þegar þangað var komið lentum við fyrst í stappi við að finna kerru, allar uppteknar. svo þegar kerran var fundin stigum við inn í búðina og við okkur blöstu lengri biðraðir en augað eygði og fólk með fýlusvip. ókei, við bjuggumst reyndar við því þarna í "uppáhalds" versluninni okkar en héldum áfram nokkuð bugaðar þó. þegar við komum loksins að páskaeggjastandinum þá voru þar nokkur tætt egg í asnalegum stærðum frá enn asnalegri fyrirtækjum. það voru til bónusegg og einhver egg númer sjö frá nóa og síríus en ekki það sem okkur vantaði. við panikkuðum náttúrulega og reyndum að bakka með þessa stóru kerru en ekki gekk það nú vel. við tókum þá á það ráð að kalla yfir fólkið þarna hvort einhvern vantaði kerru og viti menn okkur tókst að gera góðverk í leiðinni, létum góðláta konu fá kerruna okkar fegins hendi.
við brunuðum svo í hafnarfjörðinn þar sem ódýr páskaegg voru auglýst. fjarðarkaup, fjarðarkaup, fk, fjarðarkaup! þar var alveg jafnmikið af fólki en lengra á milli hillanna þannig að okkur tókst að komast mun hraðar áleiðis en í bónus. ekki var úrvalið af páskaeggjum mjög gott og urðu nóa og síríus páskaegg númer fjögur...með strumpi... fyrir valinu. við gerðum dauðaleit af einhverjum sniðugum strumpum, opnuðum þá kassa sem voru þarna og vönduðum valið. á endanum vorum við bara nokkuð sáttar og náðum að klára innkaupin án þess að missa vitið í allri örtröðinni. britta reyndar varð frá sér af örvilnan á lokasprettinum þegar verið var að setja í poka og missti salsakrukku í gólfið en það var allt í lagi bara... einhver elskuleg kona kom og þurrkaði það upp.
mánudagur, apríl 14, 2003
nú sit ég hér og bíð eftir að tommi komi og sæki mig. við erum að fara til íslands. verðum þar yfir páskana...að tzjilla með nóa páskaegg í annarri og lakkrísdraum í hinni!
það er nú annars ekkert merkilegt að frétta. og mér dettur ekkert skemmtilegt í hug að segja. held að ég segi þetta bara gott í dag. blogga bara eitthvað stuð seinna.
laugardagur, apríl 12, 2003
það var gífurlega fallegt veður í gær. sól og allt að 11° hiti. allt í einu var líka troðfullt af léttklæddum unglingum niðri í bæ. allir að sýna nýju vortískuna...hehehe.
við fórum í bíó í gær og sáum þrívíddarmynd. fórum í spes sal sem heitir imax og er svona extra stór skjár, extra mikið af hátölurum og extra sterkir geislar. myndin sem var sýnd fjallaði um titanic og maður fór í svona þrívíddarleiðangur um skipið sjálft á hafsbotni. við fengum svona spes gleraugu sem voru mun flottari en þessi týpísku þrívíddargleraugu (pappaspjöld með grænu og rauðu plasti), þau voru með hátölurum í og allt. mér varð pínulítið flökurt eftir þetta ævintýri enda mikið af sjó í þessari mynd. þetta er samt í fyrsta skipti sem ég sé svona mynd og mér fannst þetta mjög spennandi. á stundum fannst manni hlutir í myndinni vera alveg við nefið á manni. ég veit ekki hvort ég myndi þora að fara á þrívíddarhryllingsmynd.
föstudagur, apríl 11, 2003
ég held að vorið sé loksins komið hérna í konunglega fjallinu. það eru heilar átta gráður úti og sól.
ég var að koma úr hrikalega erfiðum danstíma. gellan sem kennir er með öll múvin á hreinu náttúrulega og maður er barasta ekkert að ná þessu almennilega, þá meina ég ekki sporunum heldur hvernig maður ber sig og svona. vorum að hrista okkur við "let me work it" eða hvað það nú heitir með missy elliot og hitt lagið hennar þarna og svo nelly og justin timberlake og ég veit ekki hvað og hvað. mann langar svakalega að "work it" en ég bara er ekki komin með þessar hreyfingar í kroppinn takk fyrir...ég er alltof ballettuð og jazzballettuð eins og stendur. myndi ekki vilja eiga vídeó af mér í þessum stellingum.
og svo er komið á hreint að við flytjum í lok júní. flytjum í annað hverfi en verðum þess í stað með rosalega góða aðstöðu og flottari íbúð. jess!
fórum aðeins á höbbann í gær (St. Hubert kjúklingastaðurinn, stolt Montrealbúa...) og þar var drukkinn bjór og borðaðir kjúklingavængir. við vorum þarna innan um eitthvað oz fólk... svo enduðum við á ítölskum veitingastað á crescent stræti um hálfellefu og snæddum þar kvöldverð. þokkalegt stuð bara!
miðvikudagur, apríl 09, 2003
horfði á síðustu cher tónleikana í gær. ekkert smá rosalegt show maður! búningarnir voru náttúrulega fabulous og dansararnir æði en cher sjálf var strekkt að vanda. hún sagði reyndar eitt mjög fyndið. eftir að hafa skipt svona fimm sinnum um búninga og sungið nokkra slagara skellti hún sér í jakka og náði sér í svipu og útskýrði að þetta væri síðasta showið hennar og að hún ætlaði að gera þetta almennilega...það væru komnar margar ungar konur fram í sviðsljósið sem tækju við, en sko ekki af henni...hehehe...svo nefndi hún nokkur nöfn, britney, jlo, etc. og sagði svo "follow this bitches!"...hohoho. og já, hahahaha, svo sagði hún "i've been a friggin diva for forty friggin years." ég hef nú aldrei verið cher aðdáandi en þetta var þokkalega flott sýning.
svo er maður að fylgjast með american idol á fullu. ég held með ruben studdard. hann syngur best og er ekki britney spears mjóna eða boy band tzjokkó.
hey, ég á að syngja "all that jazz" í place des arts 7. júní...en það versta er að west side story er tvisvar sama dag. ég ætla að reyna að ná þessu öllu af því að place des arts er aðalleikhúsið hérna og rosaflott að hafa sungið þar....oooooooooog það verður tekið upp fyrir sjónvarpið. sylvie bað tomma líka um að spila undir hjá einum af nemendunum hennar en það á eftir að ákveða það betur. þokkalegt prógram!
halló allir saman...long tæm nó ræt.
ég á ennþá eftir að laga þær myndir sem voru á síðunni (eru sumsé í archives) en nöfnin á þeim fóru í rúst á gömlu tölvunni... tomma tölvugæja tókst samt að bjarga því verðmætasta af tölvunni thank god. en hann þurfti að eyða töluverðum tíma í þetta allt saman...þvílíkt vesen!
var að koma úr danstíma...fór á æfingar um helgina og í fyrradag og svo erum við búin að vera að skoða íbúðir líka.
það lítur allt út fyrir að við flytjum í sumar...fundum æðislega íbúð sem er reyndar í mun lélegra hverfi en það er bara svo margt sem bætir það upp. góð aðstaða, nýrri íbúð og alls kyns lúxusdót hehehe...
svo auglýsi ég miða til sölu á west side story, 6., 7. og 8. júní. annars vegar kl 2 og hins vegar kl 8.
þriðjudagur, apríl 08, 2003
laugardagur, apríl 05, 2003
það snjóaði helling í nótt og snjóar enn! búist við 25cm af snjó!!! ég er orðin of óþolinmóð að bíða eftir vorinu takk fyrir. fnus!
föstudagur, apríl 04, 2003
hér er ennþá skítakuldi og hávaðasamir nágrannar. reyndar sá ég vorlauka vera eitthvað að gægjast upp úr moldinni í gær, sem er óneitanlega merki um vorkomu. ég talaði við nidu litlu í gær og spurði hana út í gæjana fyrir ofan. sagana segir að leigjandinn sjálfur vinni á hóteli á vöktum...komi oft heim um nætur og þurfi stundum að fara í vinnuna á nóttunni, þess vegna heyrist oft í honum á ókristilegum tíma. inn til þessa manns flutti síðan eldri maður sem nida segir að sé "like his father" og hefur sambúðin greinilega gengið eitthvað illa hjá þeim miðað við rifrildi og hávaða. nú er hins vegar svo komið að hótelstarfsmaðurinn er bara fluttur út og bíður eftir að sá gamli (þ. der alte) fari að hypja sig. nida talaði við manninn og sagðist hann skilja angist okkar nágrannanna og að mikill misskilningur hafi verið á milli þeirra "feðga". nú sit ég hér og klukkan er rétt um tólf og frá því snemma í morgun hefur annar hvor þeirra verið að draga húsgögn um allt og labba mjög hratt til og frá. mig grunar að þetta sé annað hvort sá gamli að flytja sitt dót til og frá og er á leiðinni út eða sá ungi að taka sitt dót saman. ég vorkenni bara parketinu.
ég ætla svo að skella mér í klippingu í dag...ekkert alvarlegt, bara viðhald.
miðvikudagur, apríl 02, 2003
nú skal dansað!
fór í ballettíma í gær og rifjaði upp hvernig á að nota hina ýmsu vöðva. það gekk alveg vonum framar, ég hélt út allan tímann og komst svotil skammlaust frá þessu öllu saman. húrra fyrir því.
í morgun fór ég svo í funk/hip-hop tíma þar sem dansað var með rappi og öðru slíku. það gekk svona ágætlega líka bara, mér fannst ég líta ágætlega út í speglinum. mikið af nýjum hreyfingum sem ég hef ekki prófað áður en þetta verður stuð og ég verð farin að dansa eins og gert er í mtv áður en langt um líður.
ætla að tékka á fleiri íbúðum í dag. það verður áhugavert. vonandi að maður finni eitthvað fínt.
þriðjudagur, apríl 01, 2003
nú erum við tommi aðeins að tékka á íbúðum í kringum okkur. það sem bráðvantar í þessa íbúð eru betri svalir fyrir sumarið og stærra baðherbergi. við ætlum að skoða nokkra staði í vikunni og sjá til. ég fór og skoðaði eina íbúð í morgun. gekk í klukkutíma upp á fjall og endaði í frekar ljótu hverfi og húsið sem íbúðin var í var ferlega skakkt og asnalegt og íbúðin sjálf var hreinn viðbjóður! hún lyktaði svo illa að ég kúgaðist en samt var þetta dýrari íbúð en við erum í hérna. glatað alveg hreint.
mér tókst að plata tomma smávegis...sagði honum að vaskurinn væri byrjaður að leka aftur og viti menn, hann kom og kíkti. mjög góðlátlegt grín enda er ég ekkert mikið fyrir að gabba fólk. finnst það hálf nastí eiginlega.



