Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

mánudagur, mars 31, 2003

í gær dansaði ég í þrjá tíma og fíflaðist svo í west side story í fjóra tíma! í dag er ég með harðsperrur og gífurlega lúin. kominn tími til að koma sér í almennilegt form held ég bara.

á föstudaginn fórum við í keilu með erni og sigrúnu (örn er vinnufélagi tomma og sigrún er konan hans). ég tapaði alveg. var neðst öll skiptin. en ég held samt að mín skot hafi litið flott út, stællinn var alveg í lagi...flott sveifla og hægri löppin vel sveigð til vinstri. hjá mér er það sko lúkkið sem skiptir öllu og fagnið ef vel gengur er líka mjög mikilvægt.

það snarkólnaði í gær. fór úr tíu stiga blíðu í tíu stiga frost á einni nóttu. núna er sumsé snjór og frost úti. svekk fyrir því. þetta vor ætlar að koma í bylgjum eins og í fyrra.

ég óska björgu og ólöfu til hamingju með bróðurdótturina og jafnframt óska ég birgi og frú til hamingju með dótturina!

föstudagur, mars 28, 2003

við sváfum illa í nótt. nágrannarnir fyrir ofan okkur...sem eru víst tveir karlmenn... héldu fyrir okkur vöku í alla nótt! þetta byrjaði líklega um miðnætti og engin smá læti. það heyrðust öskur, slagsmál, hlaup, húsgögnum ýtt um allt, eitthvað misst í gólfið...og þetta gekk á með hléum í alla nótt. þetta hljómaði ferlega óhugnanlega. við heyrðum annan þeirra segja "no, no, no" einu sinni en heyrðum ekki orðaskil heldur bara raddir. ef þetta heldur áfram verðum við bara að hringja á lögregluna. það gengur eitthvað mikið á þarna uppi, eitthvað slæmt. við vorum alveg á taugum yfir þessu í nótt, og ég stoppaði tomma þegar hann ætlaði að nota kústskaftið...mér líst ekkert á þessa nágranna, hvað ef þetta eru einhverjir fylliraftar sem gætu farið að vera með leiðindi? ég ætla að kvarta undan þeim í dag. ég bara efast um að hún nida litla geti sagt þeim að þegja. hugsa að það þurfi meira til en það.

fimmtudagur, mars 27, 2003

ætlar enginn að fara að koma í heimsókn til okkar hérna í montreal??? við erum búin að búa hér í næstum ár og bara britta búin að heimsækja okkur. ég minni fólk bara á að formúlan verður hérna í sumar, fullt af tónleikum og hátíðum...stanslaust stuð, bongóblíða og skemmtilegar búðir. jíha.

í morgun þegar við tommi vorum að skríða úr rúminu mættu landlordinn og aðstoðarmaður hans til að gera við vaskinn inni á baði...aumingja mennirnir að þurfa að athafna sig í þessu drasli okkar...hehehe. allavega, ég nennti ekki að vera þarna og þurfa að halda uppi samræðum og bjóða upp á kaffi því ég á jú ekkert kaffi þannig að ég dreif mig bara í vinnuna með tomma. þegar við fórum út voru þeir búnir að rífa vaskinn frá veggnum og voru að skoða hann...hehhh...

það er greinilega komið vor hér í montreal...næstum allur snjórinn er bráðnaður og eftir standa götur og gangstéttir fullar af sandi og drasli. en mikið svakalega eru göturnar breiðar eitthvað svona þegar snjórinn er farinn. maður fær bara víðáttubrjálæði. ekki er nú enn komið brum á trén en ég bíð spennt eftir að sjá gróður og menn lifna við eftir vetrardvalann.

mér tókst að skipuleggja pappíra heimilisins í gær. ég fann ýmislegt merkilegt og henti öðru ómerkilegu. eins gott að vera búinn að koma þessu í lag. mikill léttir og klapp á bakið á sjálfri mér.

við tommi göngum iðulega inni í öndergrándinu leiðina á lestarstöðina...sumsé förum inn í westmount square (verslunarmiðstöð) og göngum sem leið liggur á atwater neðanjarðarlestarstöðina (þokkalega langt orð). á þessari leið er einn mjög langur gangur sem innréttaður er að mestu leyti af múrsteinum einskonar og er mjög hljóðbært þar inni...minnir hálfpartinn á hljóminn inni á baðherbergjum. þarna er reitur fyrir skemmtikrafta sem standa þarna nokkra klukkutíma í senn og spila ýmist eða syngja. maður þarf að sækja um hjá borginni til að mega standa þarna og manni er þá úthlutað vöktum o.s.frv. í dag var "hippakonan" svokallaða að syngja og spila á gítar. þetta er kona á miðjum aldri með sítt, grásprengt hár...skipt í miðju og slegið. hún stendur brosandi og syngur lög um ást og frið og þegar fólk gengur framhjá er það hennar markmið að fá vegfarendur til að brosa með henni. alveg yndislegt. hún syngur líka bara nokkuð vel. í dag var hún að syngja lagið "heart of gold"...

miðvikudagur, mars 26, 2003

og eitt í viðbót...

tommi sæti....smússj!

gleymdi einu...

MAKE LOVE, NOT WAR!

góð þýðing á íslensku væri kannski "ríðum en ekki stríðum"...hehhh...var þetta of gróft...hehehe...

ókei. hvað er í gangi hérna?

í gær var ég svona rétt að ná mér úr hálsbólguflensuhóstsnýtufíling...komin með hóstsperrur og allt (harðsperrur í hóstvöðvana), skrapp rétt út í búð að kaupa skjalaskipulagsmöppur og bar þær heim. í þann mund sem ég stíg inn um dyrnar ígerast hóstsperrurnar svona hrikalega að ég er komin með krampa í bakið handan hægra herðablaðs. ég svona ætla að hrista þetta af mér og byrja að skipuleggja pappírana sem legið hafa í vídeótækispappakassa í hátt í ár...krampinn í bakinu verður bara verri og verri og á endanum er ég bara gjörsamlega óhreyfanleg án töluverðs sársauka. ég átti meira að segja erfitt með að anda og allra verst var að hósta. skipulagssessjónin fór út um þúfur og ég endaði í rúminu í hóstbindindi. svekk.
ég er orðin miklu betri núna og er að íhuga að takast á við pappírsbunkann aftur í dag.
byrjaði reyndar daginn á því að horfa á easy rider í sjónvarpinu. mér finnst hippar svalir. þeir segja bara "far out, man" og brosa. mig vantar smá af því attitúdi...bara slaaaaaaaaaaaka á og sjá lífið í bleikrauðum soft focus. mann langar bara í kandífloss af því að hugsa um það.
"stína hippi" hvernig hljómar það? pabbi er nú ennþá með skegg og sítt að aftan á góðum degi. mamma vill hafa hlutina natúral og helst ræktaða í garðinum...er það ekki dáldið hippa eitthvað? þau eru nú af '68 kynslóðinni... ég hlýt að hafa þetta í mér. :-)

peace man!

þriðjudagur, mars 25, 2003

ekkert merkjó hjá mér að gerast. er svona að ná mér eftir pestarfnus...alveg búin að hósta nóg fyrir minn smekk. ég held að ég sé komin með harðsperrur í bakið eftir hóstið allt saman. undir hægra herðablaði. hmmm...sérkennilegt.

í dag er ofsahlýtt. 12°C takk fyrir! welcome spring! eitt hóst í tilefni af því...hóst.

spurning um að taka örlítið til svo að það sjáist smá í gólfið hérna...hehehe. hú kers annars! ekki dettur mér í hug að fólki finnist gaman að lesa hugleiðingar mínar um það hvort ég eigi að taka til eða ekki! ég barasta hef EKKERT að segja í augnablikinu.

veit ekki fólk um einhverjar skemmtilegar síður að skoða? eru ekki einhverjir fleiri farnir að blogga?

mánudagur, mars 24, 2003

var að koma af upplestri á handriti fyrir "a chorus line". ég fæ að segja tvö "no" og eina setningu...jei. og er með í fyrstu senunni og líklega þeirri seinustu líka, er samt ekki alveg viss. svo getur verið að maður fái að vera understudy fyrir einhvern og það eru jafnvel líkur á að það verði ein sýning fyrir understudies...alltaf smá sjéns.
ég skráði mig á ballettnámskeið í dag og annað dansnámskeið. beið í biðröð í klukkutíma til að komast á þetta. sveitarfélagið westmount er með svona niðurgreidd námskeið sem maður getur skráð sig á og allir í westmount held ég bara mættu þarna í dag til að skrá sig. ég kynntist slatta af fólki í röðinni á meðan. allir til í að kjafta alltaf...alveg ótrúlegt. og allir hafa áhuga á íslandi. sem er mjög skemmtilegt. manni finnst jú alltaf svo gaman að tala um sjálfan sig :-)

ekki mikið gerst hjá mér síðan síðast. er jú búin að hósta samfellt í tvo daga núna. orðin þokkalega leið á því.

horfði á óskarinn í gærkveldi. hin mesta skemmtun. var reyndar hissa á því að chicago hafi fengið svona mörg verðlaun...myndin er alls ekki jafngóð ef maður hefur séð söngleikinn á sviði með góðu casti. mér fannst gangs of new york heldur ekki jafnofboðslega góð og hún á að vera. lord of the rings 2 fannst mér hins vegar ótrúlega flott. var alveg eftir mig eftir bíóferðina á hana. the hours var alveg ágæt. frekar átakanleg. nú á ég eftir að sjá the pianist en hún á að vera mjöööööög átakanleg. ég á bara svo bágt með að horfa á svoleiðis myndir. tek þær svo nærri mér að ég er leið næstu vikuna eftir svoleiðis upplevelsi.

sunnudagur, mars 23, 2003

jú, það var eitt sem ég ætlaði að skrifa en gleymdi áðan.
sá þátt í sjónvarpinu í gær sem heitir "sexual secrets"...mjög áhugaverður þáttur, fjallar ekkert endilega um kynlíf heldur um mannlega líkamsstarfsemi og ýmislegt tengt því. í gær var t.d fjallað um svita. það eru víst til tvær mismunandi tegundir af svita, annars vegar plein saltvatn og hins vegar einhver stera- og hormónablanda...sem má finna í nára og undir höndum. og í þessari blöndu eru einhverjir sterar sem fólk skynjar á annan hátt en venjulega lykt...ehhh. eníveis. sömu stera má svo finna í munnvatni svína og þau skilja lyktina af þessu sem mökunarundirbúning. sumsé í svitanum undir höndunum okkar eru svona turn-on sterar. það var nefnt dæmi um að við mennirnir skynjuðum þessa lykt á svipaðan hátt og svínin. þegar napóleon sendi bréf til sinnar heitt elskuðu jósefínu um að hann væri að koma heim innan nokkurra daga sagði hann henni að þvo sér ekki. líklega hefur honum fundist svitalyktin svona æsandi...hehehe. svo var gerð tilraun í bíói nokkru þar sem þessir sterar voru settir á hluta sætanna í bíóinu og atferli fólks rannsakað og það síðan spurt. í ljós kom að konunum fannst lyktin góð en karlarnir voru ekki hrifnir. fyndið.

það var annað mjög merkilegt sagt í þættinum. þegar konar upplifir pms eða fyrirtíðaspennu þá er besta ráðið að fá faðmlag frá einhverjum sem manni er annt um. kona framleiðir víst vellíðunarhormón (efedrín eða eitthvað) þegar hún er snert af karlmanni sem hún ber tilfinningar til. læknirinn sem skýrði frá þessu sagði jafnframt að allir þeir karlmenn sem væru að horfa á þáttinn ættu að taka þetta til sín. sumsé ef konan er pirruð og fúl þá er besta ráðið að gefa henni bara gott knús. kúr er hreinlega ekkert ofmetið!

ég er ennþá lasin!!! hóst, hóst...glatað!

það er ekkert búið að gerast síðan í gær. við horfðum á "maid in manhattan" á dvd í gær...voðalega sæt mynd bara.

hvað getur maður annars gert sér til skemmtunar þegar maður er lasinn? ég er komin með leið á sjónvarpinu og tölvunni.

laugardagur, mars 22, 2003

og svo bíð ég ennþá eftir heillaóskaskeytum og gjöfum...

hnerr...hóst...snýt...úff. ég er hrikalega kvefuð og slöpp. búin að vera í rúminu í þrjá daga!!! orðin þokkalega leið á því! er búin að horfa á stríð í beinni meira en hollt er. ég vona bara að þetta standi stutt yfir og vorkenni fólkinu sem býr í írak.

hér er byrjað að hlýna...spáin segir 12° í næstu viku. jess! ég hef reyndar varla farið útúr húsi síðustu daga.

það kom gæi að gera við leka undir vaskinum hérna í gær. hann blótaði stöffinu í bak og fyrir á meðan á því stóð og gafst svo upp...og núna er lekinn tíu sinnum verri og ekki hægt að nota kranann eða vaskinn. við bíðum eftir frekari aðgerðum. algjört drasl.
svo hafa nágrannarnir fyrir ofan okkur verið með ótrúlega skringilegan hávaða síðustu nætur. eins og hávaði í þvottavél eða þurrkara en stanslaust yfir alla nóttina og er ennþá í gangi. ótrúlega pirrandi. kominn tími á að kvarta undan þessu drasli.

fimmtudagur, mars 20, 2003

hlaut að koma að því..."a chorus line" fólkið hringdi...ég má vera með en bara sem "cut dancer" sumsé ekki talandi hlutverk heldur bara dansari sem kemur í byrjun og kemst ekki áfram (sjóvið fjallar um dansara sem eru í inntökuprófi). en það versta er að æfingartímarnir skarast kannski á við west side story. ég ætla allavega að mæta á fyrstu æfinguna. ég er nú samt bara slatti ánægð. nú þarf ég bara að koma mér í form...hehehe...
er nokkuð lúðalegt að taka þátt þó að maður sé í aukahlutverki?

kvöl og pína. sit hér lösuð...með hálsbólgu, stíflað nef og líklega hita. hundleiðinlegt. ætli þetta tengist eitthvað stríðinu í írak? kannski er ég svona svakalega viðkvæm fyrir ójafnvægi í heiminum...

við horfðum á sjónvarpið hér langt fram á kvöld, fylgdumst með á cnn og nbc og bbc... alveg frá niðurtalningu til deadline og svo eftir það, fyrstu árásirnar. núna er verið að tala um að þetta hafi ekki verið saddam á þessu vídeói sem var sýnt í morgun. jahérna.

ég er ekki ennþá búin að fá svar frá þeim þarna með "a chorus line". ég geri því ráð fyrir að hafa ekki fengið hlutverk þar af því að okkur var sagt að það yrði hringt næstu daga. óvell...það verður bara að hafa sig. inntökuprófið var hins vegar skemmtilegt og ég stóð mig bara vonum framar. :-)

ég ætla bara að vera veik í dag. svekk. heillaóskaskeyti og gjafir vel þegnar. t.d. langar mig alveg óstjórnlega mikið í íslenskan lakkrís, nóakropp, ópal, draum o.s.frv.

miðvikudagur, mars 19, 2003

jæja...þá er þetta stríð byrjað. maður er að fylgjast með þessu í beinni á cnn. maður fær nú bara í magann af því að hlusta á þessar sprengingar. ég vorkenni bara íbúum bagdad að þurfa að standa í þessu. maður getur ekki slitið sig frá skjánum. þetta er ferlega súrealískt...að horfa á þetta svona í sjónvarpinu... eins og bíómynd.

hálsbólga í dag. svekk! ég sem ætlaði að fara á kóræfingu í kvöld og slá í gegn. held að sex tíma inntökuprófið hafi gert útslagið. púff!

þriðjudagur, mars 18, 2003

ég er ekki búin að fá svar ennþá...well...ætli það sé jákvætt eða ekki? hmmm...

í dag er sólskin og æðislegt veður. ég byrjaði daginn á því að skella mér í inntökupróf í leiklistarskóla!!! býst nú ekki við að komast áfram í þessu...jeræt. en ég reyndi allavega.

horfði á ræðuna hans bush í gær. ræðan var nú bara allt í lagi. betri en það sem hann hefur sagt hingað til verð ég að segja. eftir ræðuna var sýndur þáttur um saddam og hans líf hingað til. það er viðbjóður hvernig maðurinn komst til valda. animal farm all over. hann er náttúrulega snarklikkaður þessi gæi!
svo fór ég í vax í dag og konan sem var að pína mig er frá íran. hún sagðist vera ósátt við hvernig múslimsku löndin eru sýnd í fréttum hérna (fólk að kasta steinum og með byssur beisiklí)... en var hins vegar alveg á því að saddam væri snarruglaður og það væri ofboðslega erfitt að búa þarna. fólk er líka farið að flýja írak...sumir fara til íran og það skapar náttúrulega vandræði þar. hún sagði að þegar afganistan var í stríði hafi fullt af fólki komið til íran þaðan og átti náttúrulega ekkert...flóttamenn...sem stálu og nauðguðu og guð veit hvað. jæja...mér finnst þetta bara ömurlegt eiginlega...stríð er ömurlegt.

mánudagur, mars 17, 2003

ég eyddi öllum gærdeginum í inntökupróf og æfingu fyrir west side story. sá auglýsingu í blaðinu um daginn að það yrðu inntökupróf fyrir "a chorus line" sem er söngleikur sem fjallar um dansara og ég ákvað bara að skella mér í gær...var svona á báðum áttum. tommi sagði mér bara að drífa mig og ég hlýddi bara...hehehe. mætti þarna um tólf og beið ásamt slatta af fólki eftir því að þurfa að gera eitthvað fyrir framan þrjár alvörugefnar manneskjur. fólkið sem var að bíða var annaðhvort ofboðslega kvenlegir karlmenn eða dansaragellur að gera splitt og spíköt eins og þær ættu lífið að leysa. mér leist ekkert ofsalega vel á þetta...fannst ég vera hálfútundan og örugglega elst ef eitthvað væri! allavega...inn kemur kóreógrafinn sem er stelpa á mínum aldri og segir okkur að nú skuli dansað. hún er ekkert að draga þetta og kennir okkur rútínu 1, 2 og 3. hröð rútína við hraða tónlist úff...ég næ að læra þetta og einhvern veginn fer heilinn og líkaminn að því að komast í gegnum þetta...meira að segja þegar þrír og þrír áttu að dansa fyrir dómarana. gekk bara vonum framar. og viti menn...ég fékk call-back. þá byrjaði seinni hluti inntökuprófsins og þeir sem höfðu verið í prófi yfir vikuna og fengið call-back mættu líka. býst við að þetta hafi verið um fjörtíu manns eða svo, kannski aðeins minna. nú áttum við að læra lagið "what i did for love" úr söngleiknum, fengum nótur og svona 10 mín til að læra lagið. ég hafði heyrt þetta lag svona tvisvar áður en kann að lesa nótur þannig að ég var bara ágætlega stödd. hópnum var skipt niður í fjögurra manna einingar og svo var maður kallaður inn með sinni einingu. fyrst sungu allir fjórir saman og svo einn og einn. mér gekk bara fínt í þessu, thank god. eníveis...nú þurftum við að dansa aftur! ég var nú nógu þreytt eftir fyrri dansumferðina og þeir sem höfðu tekið prófið í byrjun vikunnar voru náttúrulega búnir að æfa sig heima...gekk ágætlega þrátt fyrir þreytu, held að ég hafi tekið þetta á adrenalíninu. á meðan á þessu stóð var alltaf verið að tína fólk úr og senda það heim...og maður veit ekkert hvort það var þá búið að fá hlutverk eða ekki. ég var þarna allavega ennþá. þá var komið að því að lesa yfir samtal sem við fengum og allir sem eftir voru fengu að stilla sér upp í röð eins og í söngleiknum og lesa eina línu c.a. ég fékk ekkert æðislegt hlutverk en komst allt í lagi frá því held ég. veit annars ekkert um það. svo voru fleiri sendir heim og eftir voru um 20 manns. allir fengu eintal til að lesa yfir...sumir eitt, sumir tvö...ég fékk að lesa yfir hlutverk "val" og "maggie". svo voru hlutverkin kölluð inn og ég held að við höfum verið svona sex sem lásum yfir fyrir "val" og mér fannst ég ekkert komast sérstaklega vel útúr því. gekk betur með "maggie" hjá mér. við þurftum að syngja aftur einhvers staðar þarna inn í og gekk það bara ágætlega. þegar öllu þessu var lokið var klukkan orðin rúmlega sex!!! ég var sumsé í inntökuprófi í sex klukkutíma!!! ég náði að fara að fá mér hálfan subway og svo í lestina á æfingu fyrir west side story. úff. og í dag er ég að drepast í líkamanum.
ég fæ líklega að vita í dag hvort ég fékk eitthvað hlutverk eða ekki. ég er eiginlega frekar á því að ég komist ekki inn...gekk ekkert svakalega vel í leiklistarhlutanum. ojæja. ég er allavega ánægð með að hafa fengið call-back og verið svona lengi. hlýt að hafa gert eitthvað rétt. :-)

laugardagur, mars 15, 2003

jæja...hausverkurinn er farinn! ráðið við svona hausverk virðist vera að sofa með tvo kodda í staðinn fyrir einn...sumsé að liggja ekki alveg láréttur. ég ákvað nefnilega að nota bara svona "trial and error" leið til að nálgast lausnina...það virkaði ekki að nota einn kodda, ekki heldur að nota engan kodda þ.a. næst var bara að prófa tvo og viti menn...það virkaði!

myndin í gær var bráðfyndin. steve martin er ótrúlegur... og queen latifah var ansi góð líka.

það er farið að hlýna...jess! spáin fyrir næstu viku er bara yfir núllinu. jeeeeeeeeeebeibí! þegar vorið kemur þá ætla ég að rjúka út á götu og syngja lagið "vorið er komið" hástöfum.

föstudagur, mars 14, 2003

hausverkurinn er sko ekki farinn ennþá...auglýsi eftir ráðum til að losna við streituhöfuðverk...er búin að prófa allar þessar hefðbundnu! god damn!

við ætlum í bíó í kvöld...á grínmynd með steve martin, bringing down the house. treilerinn er dáldið fyndinn og ég nenni ekki að fara að sjá eitthvað þungt og erfitt. hallelúja!

ég söng illa í dag. fnus! leiðinlegir svona syngjailladagar.

ég mæli með gæja sem heitir corneille og syngur m.a. lagið "avec classe"...flottur tónlistarmaður...svo er vídeóið við "avec classe" tekið í montreal á góðum degi :-)

ég er ennþá með hausverk! og er illa sofin. hrmpfh!

fimmtudagur, mars 13, 2003

skellti mér á kóræfingu í gær. fann þennan líka fína kór sem æfir ekki svo langt frá mér. hann heitir "yellow door choir" og er stjórnað af eleanor stubley sem er prófessor við mcgill háskóla. hún þjáist af ms sjúkdómnum og er þess vegna í hjólastól. mjög áhugaverð kona og ábyggilega góður stjórnandi...enda hefur hún slatta reynslu...hehh...
ég ætla að skella mér í inntökupróf fyrir kórinn næsta miðvikudag og sjá til hvort það verði ekki allt í góðu. held að þetta séu bara formlegheit...allavega gat ég alveg sungið með á þessari æfingu í gær án mikilla vandkvæða og hún stjórnandinn sagði mér að læra einn kafla fyrir næstu æfingu...mér skildist að ég yrði ein með efstu röddina í þessum kafla...hún er líka töluvert há þessi rödd og ég á tiltölulega auðvelt með það. :-) byrjar sumsé bara ágætlega.

núna sit ég og bíð eftir matnum sem ég pantaði á netinu...hann á að koma á milli ellefu og tólf. keypti mat fyrir um fimm þúsund íslenskar krónur og það er þokkalega mikið í mínum huga...býst við að það komi fjórir eða fimm stórir bréfpokar, enda keypti ég meira núna en vanalega...verið að fylla á ýmsar birgðir. starfsfólkið er svo elskulegt þegar maður pantar svona...hringir í mann og lætur vita ef eitthvað er ekki til og hvort maður vilji eitthvað í staðinn o.s.frv. og maður getur beðið um ráð og spurt hvað er vinsælast og svona. í morgun hringdi stúlkan og sagði mér að jarðarberin væru ekki falleg í dag...mér fannst það ofsalega elskulegt af henni því mér þykja ljót jarðarber ekkert spes.

á sunnudaginn er spáð 8 stiga hita!!! í dag er 17 stiga frost þannig að það verður mikið um bráðnun og slabb næstu daga býst ég við. ætli vorið sé kannski að laumast til okkar hér?

miðvikudagur, mars 12, 2003

jess! var að finna ballettnámskeið sem er styrkt af westmount borough...sem þýðir að það er svakalega ódýrt...einungis rúmur þrjúþúsundkall fyrir tvo og hálfan mánuð...reyndar einu sinni í viku en samt. mjög gott verð og ég veit að kennarinn er góður. spurning um að vera snemma í því að skrá sig svo maður fái pláss. það virðist vera fullt af námskeiðum sem er hægt að sækja svona ódýrt. sniðugt.

í gazettunni í dag má finna grein um þorrablótið sem var haldið hér síðustu helgi. þarna er líka fjallað um íslenskan mat og hvaða matarhefðir vesturíslendingar hafa haldið upp á síðustu öldina eða svo. á myndunum má sjá grafinn lax og rúllupylsu og ég held meira að segja að það sjáist aðeins í skinkuhornin mín á graflaxmyndinni...jess...núna get ég sagt að það hafi verið fjallað um baksturinn minn í einu stærsta morgunblaði montreal...hahahaha...

þriðjudagur, mars 11, 2003

vaknaði með brjálaðan hausverk í morgun. svaf með kodda...sem er ekki gott, fæ alltaf hausverk af því að sofa með kodda. glatað.

fékk senda mynd í pósti frá ljósmyndara hjá gazettunni sem er stærsta enskumælandi morgunblaðið hér í montreal. myndin var tekin á þorrablótinu sem var á laugardaginn...ég veit ekki alveg hvaða svipur þetta á að vera...held að það hafi verið "égersvohrikalegahvítogdruslulegaðéggetekkieinusinnibrosað" svipurinn...
það kemur grein um þorrablótið í þessu blaði á morgun eða hinn eða eitthvað...sjáum til.

í gær sendi ég cv-ið mitt útum allar trissur og bíð spennt eftir svari. svo ætla ég að skella mér í fleiri audition einhvers staðar (segi frá því seinna) og vonast eftir að meikaða einhvers staðar...hehehe...jeræt!

mánudagur, mars 10, 2003

búin að syngja í allan dag. fór yfir lagið "ribbon in the sky" eftir stevie wonder...rosalega gott og fallegt lag. alveg fullkomið í brúðkaup...hehehe...svo náttúrulega "all that jazz" og lög úr jesus christ superstar. jess. röddin bara í fínu stuði í dag og allt. stevie wonder er algjör snillingur. þvílíkt magn af flottum lögum sem maðurinn hefur samið! hann hlýtur líka að vera rooooooosalega ríkur...ótrúlega mörg lögin hans sem hafa verið spiluð af fleiri tónlistarmönnum og orðið vinsæl aftur...

enduðum daginn í gær á að fara að hlusta á sylvie söngkennara og hljómsveit skemmta fólki á klúbb sem heitir "le sofa". þau spiluðu jazz...hún söng, tom walsh á básúnu, sílofón- og bassaleikari og trommuleikari... ég held að það megi alveg segja að ég þurfi að æfa mig í svona 20 ár í viðbót til að ná henni...hehh...!
á leiðinni heim lentum við í tómum lestarvagni í metróinu og lét ég því gamlan draum rætast...hljóp um vagninn endilangan og sveiflaði mér í súlunum. ahhhh...gott að hafa lokið því af. tommi sat og horfði á. ekkert jafnáhugasamur og ég um þetta stórskemmtilega athæfi.

það er ekki hægt að kveikja á sjónvarpinu hérna nema að hitta á umræðu um stríð við írak og hryðjuverkamenn. ég skil ekki alveg hverjir það eru sem eru með þessu stríði aðrir en runninn og hans menn. ég hef ekki hitt eina manneskju sem er með stríði ennþá. þó er ég stödd í norður ameríku. hmmm...

ég furðaði mig á því í gær á west side story æfingunni hversu fólk getur platað mann. ég stóð í þeirri trú að vissir einstaklingar þarna kynnu eitthvað að dansa...voru búnar að segja manni að þær hafi jú verið í ballett og jazzballett og hinu og þessu og létu eins og þær væru bara prófessjónal. ég náttúrulega bara dró úr öllu sem ég hef gert og var ekkert að taka mig of alvarlega...svo kemur bara í ljós að þetta fólk kann ekki einu sinni einföldustu spor og hreyfingar! ég var alveg hlessa. varð nokkurs konar "súkkulaðikúla" þarna af því að kennaranum fannst hálfvandræðalegt að vera að kenna þessum byrjendum allt og láta fólk með meiri reynslu bíða eftir því. eníveis...mér finnst bara merkilegt hvað fólk getur þóst vera meira en það er.

sunnudagur, mars 09, 2003

helgin svotil á enda. fín helgi alveg. þorrablótið var þrusustuð og söngurinn sló alveg í gegn! fólk var alveg furðu lostið yfir því að við hefðum bara æft þetta einu sinni :-)
á þorrablótinu mátti finna alls konar fólk, gamla vesturíslendinga, nýja vesturíslendinga, íslendinga og svo ekki íslendinga. almennt samt áhugamenn um ísland og íslenska menningu. alveg merkilegt líka að hitta gamalt fólk sem hefur búið hér allt sitt líf, fæddist hér en ömmur eða langömmur komu hingað í fyrndinni...og þetta fólk kann að búa til rúllupylsu og allt!¨

ég var á dansæfingu fyrir west side story í dag...og ég virtist vera með mesta dansreynslu af öllum þarna. jess! svo gerðum við fullt af sjönei hringjum og ég fékk hausverk og hann er ekki farinn ennþá.


föstudagur, mars 07, 2003

svona leit ég út fyrir ári síðan...jahérna...þá vitiði það!

föstudagar eru skemmtilegastir!

í gær komu hingað fjórar hressar stúlkur og æfðu sönglög fyrir "þorrablót" sem verður á laugardagskvöldið. þangað munu flestir íslenskir montrealbúar mæta býst ég við og þeir vesturíslendingar sem vilja enn halda í ræturnar. æfðum við nokkur hefðbundin íslensk lög og tókst það bara gífurlega vel. var þetta hin mesta skemmtun!

í dag er bjútífúl veður. það er þykkt lag af púðursnjó úti, heiðskírt og algjört logn. þvílík blíða! ætli maður fari ekki bara í göngutúr upp á fjall í dag til að njóta fegurðarinnar. mér tókst líka að taka smá til í gær og líður þar af leiðandi ósköp vel í húsmóðurtilfinningunum. :-)

fimmtudagur, mars 06, 2003

fimmtudagur! hvar endar þetta eiginlega...ég var ekki viss hvort vikan væri byrjuð...hehhh...

jæja...er að hlusta á prince í græjunum og reyna að gera smá fínt. það er ótrúlegt hvað við erum fljót að drasla til hérna. ég bara hef ekki tiltektargenið í mér! skil ekki hvernig er hægt að hafa allt hreint og fínt alltaf án þess að verða geðveikur. mér finnst t.d. rosalega erfitt að setja föt aftur inn í skáp þegar ég er búin að fara einu sinni í þau...og mér finnst alveg svakalega erfitt að hafa öll blöð uppröðuð í bunkum eða skjalaskápum. kannski hef ég bara sleppt því að venja mig á þetta af því að ég hef alltaf staðið í þeirri trú að ég yrði orðin milli um tvítugt...hehehe...hvað ætli kosti annars að fá einhvern til sín á hálfsmánaðar fresti að þrífa? á meðan lýsi ég eftir tiltektargeni á útsölu...

miðvikudagur, mars 05, 2003

ahhh... nú líður mér betur!

mér finnst tíminn líða alltof hratt. var ekki febrúar að byrja í gær...? allt í einu kominn mars og vel það.

það snjóaði slatta í nótt. allt hvítt og flöffí úti. það snjóar meira að segja ennþá svolítið. ekki kemur vorið í dag.

af hverju á enginn þetta lag? á enginn "óskalög 5"...hehehh...ætti kannski bara að biðja múttu eða brittu um að fjárfesta í þessum disk. fyrst enginn virðist eiga þetta. hmmm...

þriðjudagur, mars 04, 2003

á einhver geisladisk með laginu "tunglið, tunglið taktu mig" með ljósunum í bænum??? mig bráðvantar þetta lag. strax í dag. :-)

bolluhræringur gærdagsins gekk ekki betur en svo að í dag er ég að drepast í úlnliðnum á hægri hönd...komin með sinaskeiðabólgu...!!!
og svo gátum við bara borðað eins og einn þriðja af öllum bollunum...slepptum meira að segja kvöldmatnum til að geta borðað bollur! frekar slakur árangur. en þær voru ljúffengar...allavega fannst mér það.

fór í hriiiiiiiiiiiiiiiiiiyyyyyyyyyyyyykalega erfiðan jógatíma með sigrúnu...svona ashtanga yoga...ég svitnaði svo mikið að það lak á gólfið og titraði og skalf í erfiðustu stöðunum. ég er ekkert hissa á því að madonna sé svona mikill massi! konan sem kenndi var þokkaleg sjálf...lítil og mössuð...

mánudagur, mars 03, 2003

ég var að glugga í íslendingabók á netinu...ástæðan var sú að stúlka sem er að taka þátt í vesturbæjarsögunni með mér á íslenska ömmu og ég var búin að segja henni að allir íslendingar væru skildir a.m.k í níunda ættlið. og viti menn, ég fann langömmu hennar hana dómhildi í einni svipan, rakti ættir okkar saman og við erum skildar! það er ekki á hverjum degi sem maður finnur frændfólk í kanada...hahaha...

ég verð örugglega orðin eins og hulk eftir daginn...er sumsé að baka tvær tegundir af bollum og á ekki hrærivél!!! búin að þeyta rjóma og súkkulaðirjóma og búa til vatnsdeigsbollur...sem er ansi mikið að hræra líka! púff! ætli maður verði ekki að fá sér hrærivél einhvern tímann...ég er bara með svona "visp" eða hvað það nú heitir...hmmm...þeytieitthvað...svona áhald með vírum...ehhh...ég sit hérna lafandi móð og sveitt!

ég vil bara koma því á framfæri að ég verð ekki strákur í west side story heldur strákaleg stelpa... takk fyrir.

hér er þrusukalt núna...-27°C og rok!!! veðrið er eitthvað voðalega mikið að sveiflast núna, í gær var hlýtt og í fyrradag líka...hitinn breyttist um c.a 15 gráður á tveimur tímum í gærkvöldi. mjög róttækt.

við erum komin með prentara...jeeeeeeeeeeeeeessssssssssss...og hann kostaði bara um 2500 isk!!! litaprentari og allt. reyndar var þetta mjög fyndið af því að snúran fylgdi ekki með og ef maður ætlaði að fá snúruna líka hefði þetta kostað 4000 eða eitthvað! eins gott að við áttum aukasnúru...hehehehe...núna getum við sumsé prentað og prentað eins og vindurinn. print like the wind...það er það sem ÉG er að tala um.

sáum rosalega áhugaverðan þátt í gærkvöldi (eiginlega í nótt). fjallaði um tvær konur og tvo menn sem áttu að skipta um hlutverk...sumsé konurnar breyttu sér í menn og mennirnir í konur. eins konar dokkjúmentarí...fólkið gat svo tjáð sig í einhverju herbergi með myndavél og þau voru með þjálfara til að hjálpa þeim að tala rétt og ganga rétt og svo framvegis. það sem var svo áhugavert við þennan þátt var hversu vel kvenfólkinu tókst að líkjast mönnum útlitslega séð en hvað þær voru fastar í einhverjum steríótýpum..."menn vilja bara sofa hjá etc." og karlarnir áttu rosalega erfitt með að vera útlitslega trúverðugir og upplifðu hræðslu og höfðu áhyggjur af útlitinu og hvaðeina...þeir höfðu gert sér hugmyndir um hvernig konur þeir vildu vera og voru búnir að klippa út myndir úr blöðum og pæla í persónuleikanum en þegar þeir voru komnir í gervið og út á götu leið þeim ekki þannig. hugsa að þetta væri fín reynsla fyrir alla. konur sem karla. hehhh...

sunnudagur, mars 02, 2003

ég þakka guðrúnu og svanhildi kveðjur í gestabókinni :-) það er nú kannski hálflúðalegt að biðja fólk um að skrifa...hehehe...

ég er nú svotil nýstigin úr rúminu (klukkan er ellefu...ehhhh) og lítið hefur gerst síðan ég skrifaði síðasta innlegg...ég man meira að segja ekki hvað mig dreymdi. það eina fréttnæma í augnablikinu er að það er spáð 2°C hita í dag! og jafnvel rigningu! ætli vorið sé kannski að lauma sér hingað?

jæææææææææææja...við fórum í rooooosagöngutúr í dag. gengum niðrí bæ fyrst og svo upp á fjall og svo hringinn í kringum það og upp á topp, niður aftur og norð-austur á bóginn...enduðum í almenningsgarði þar sem fólk renndi sér á sleða og spókaði sig á gönguskíðum. reyndar gengum við framhjá stórri brekku þar sem aldnir sem ungir renndu sér á öllu mögulegu niður brekkuna...dekkjum, sleðum, brettum og hvaðeina...og fyrir neðan brekkuna var skautasvell þar sem borgarbúar skautuðu í hring eftir hring í sólskininu. veðrið var alveg yndislegt...sól og blíða og hlýrra en síðustu daga. alveg nógu hlýtt til að vera húfulaus og með rennt niður á bringu...hehehe. uppi á fjalli er útsýnispallur og þar getur maður horft yfir borgina og liggur við inn í gluggann á skrifstofunni hans tomma. í dag sá maður næstum því til bandaríkjanna en á góðum degi má eygja landamörkin í fjarska. gangan mikla endaði á grískum veitingastað í austurhlutanum þar sem við skötuhjú snæddum ljúffengan kvöldverð við sérdeilis skemmtilega gríska júrópopptónlist. fyrir um þúskall fengum við súpu, salat, nautasteik, humarhala, risarækju, skelfisk, hrísgrjón, kartöflur og optional te eða kaffi...það kalla ég ansi gott. og einmitt í þessari litlu göngugötu eru veitingastaðirnir þannig að maður getur komið með sitt eigið vín og drukkið þar...ég spurði ekki hvort maður mætti koma með sitt eigið gos en það hentaði mér e.t.v betur...hehehe...maturinn er ekki dýr en góður...alveg einstaklega vel heppnaður dagur. sól og blíða í hjörtum líka :-)

laugardagur, mars 01, 2003

hey, hvað er með fólk? af hverju kommentar enginn? svo hefur enginn nýr skrifað í gestabókina mjöööööööööööööööööög lengi...svekk...ég veit samt alveg hverjir skoða síðuna...hehehehemúhahahahaha...

club tropicana, drinks are free, fun and sunshine, there's enough for everyone...yeahhh....!

björg vinkona býst við vorinu í ungverjalandi á hverri stundu. ég hugsa að það sé ennþá smávegis í það hér...held reyndar að veðurfar í montreal og debrecen sé frekar svipað. en mikið svakalega hlakka ég til sumarsins! við ætlum að reyna að fara á tónleikahátíð með metallicu, linkin park, deftones og fleirum...bara fyrir tomma! svo á ég eftir að taka þátt í sýningum í júní á west side story og syngja á tónleikum í maí. það er það skemmtilegasta sem ég veit!