ég bendi reykingamönnum á að lesa þetta. það er nú ekkert voðalega kúl að reykja...hvað þá viturlegt. ég er líka stundum svo hissa á að fólk skuli nenna þessu...þetta er svo mikið vesen. og ég skil heldur ekki hvernig er hægt að blanda saman mat og reykingum. af hverju þarf að leyfa reykingar á veitingastöðum??? hver þarf að reykja og borða um leið? það er líka bara ekkert svo einfalt að koma í veg fyrir að reykurinn berist á "reyklausu" borðin. ég verð alltaf jafnpirruð og hissa þegar fólk byrjar að reykja þar sem aðrir eru að borða. það ætti að hanna svona reykingakúlu...svona kúlu úr plasti sem fólk getur bara dúsað í þegar það þarf endilega að reykja. þá pirrar það ekki okkur hin.
föstudagur, febrúar 28, 2003
komtúþeinkofitt...ég held að ég hafi sagt "ómægoooooooood" rosalega oft á myndinni í gær. ég meina...að binda steypudót við ")#/$&%&& og henda svo "/#/%() hehehe...ég mæli með þessari mynd...
á morgun er kominn nýr dagur...
sá einhver viðtalið við hann sadda húsa um daginn? ég var alveg skelkuð yfir því hversu vel maðurinn kom fyrir og hvað svörin hans voru dönnuð og vel orðuð. mér leist ekkert á bússj í ljósi þessa...geri ráð fyrir að illa færi ef kæmi til kappræðna á milli þeirra tveggja. maður er bara hálfhræddur við að hafa skoðun á þessu...maður veit jú aldrei hver er að fylgjast með manni...hehh...verandi í norður ameríku.
við fórum í bíó í gær á stórskemmtilega mynd. old school. ég hef ekki hlegið svona mikið leeeeeeeeeeengi og hlæ ég nú töluvert miðað við hinn staðlaða jón. hló svo hátt að tommi fékk örugglega í eyrun. þetta er svona fíflalátamynd með leikara úr castinu í saturday night live. annars er nokkuð af góðum leikurum þarna...meira að segja snoop dog...jeeeeeeeee...
fimmtudagur, febrúar 27, 2003
hér er sól og hið fallegasta veður. ég sit á skrifstofunni hjá tomma og skoða atvinnuauglýsingar á netinu. hrikalega er mikið til af leiðinlegum störfum. úff. langflest sem er auglýst eru sölu- eða markaðseitthvaðstörf...get ekki ímyndað mér að sitja á einhverri skrifstofu með dress code að hringja í fólk sem vill ekkert tala við mig. úff. mér finnst nóg að þurfa að vera í nælonsokkabuxum til að segja nei takk! það er ekki séns að ég fái mér vinnu þar sem ætlast er til að ég sé í ljótum og óþægilegum fötum. ef ég get ekki verið í bleikum fötum og berfætt þá bara nei takk! vonandi á ég einhvern tímann eftir að finna eitthvað sem hentar mér. maður er orðinn dauðþreyttur á að vera ekki orðinn eitthvað meira en verkfræðingur...hehh...
ég er svöng. á eftir að borða morgunmat...klukkan orðin kortér í ellefu og ég glorhungruð. þá vitiði það.
fór í jóga í gær. algjört yndi bara...ótrúlega gott að teygja svona vel á og anda djúpt. ég er að hugsa um að gera þetta bara að venju. fara í jóga kannski tvisvar í viku eða svo. þá verð ég kannski eins og madonna...hahaha
það verður þorrablót hér 8. mars. kannski ekki alveg hægt að kalla það þorrablót í miðri góu en við gerum það nú bara samt. það eiga allir að taka eitthvað með sér matarkyns þangað. hvað getur maður tekið með sem er séríslenskt og auðvelt í tilbúningi? mér datt í hug að baka pönnukökur en ég á ekki pönnu í það...veit að aðrir hér eiga það. ekki kann ég að gera kleinur. hmmm...
miðvikudagur, febrúar 26, 2003
þetta er nú dáldið klént...maður skiptir um kommentakerfi og þá bilar það bara líka!!! frat!
nú ætla ég að sökkva mér í bók sem ég náði mér í um raddbeitingu o.fl. maður verður að halda áfram að þróa þetta og gerast brúðkaupshæfur. er það ekki?
ég bið fólk afsökunar á þessum leiðindum með kommentakerfi og annað. og ég ætla að breyta litnum á síðunni þegar ég nenni líka.
ok. þetta er nú ekki hægt! alltaf eitthvað rugl á síðunni minni...buhuuuuuuu...og ég svaf yfir mig í morgun fyrir jógatíma! fer bara í hádeginu í staðinn.
nú ætla ég að reyna nýtt kommentakerfi eins og þau eva og torfi eru með. vonandi að það virki eitthvað. bara leiðinlegt að vera ekki áfram með gömlu kommentin úr hinu...skiptir kannski ekki máli þar eð haloscan er alltaf bilað. reikningurinn minn er samt ennþá geymdur þar og ef fólk vill endilega skoða gömul komment má örugglega komast í það einhvern veginn...in the unlikely event!
þriðjudagur, febrúar 25, 2003
hvahh....bara ekkert verið að blogga? hvurslags eiginlega leti er þetta í manni!
ætlaði að fara í jóga í dag en var enginn tími. bömmer.
fór í göngutúr upp á og í kringum fjallið í dag með henni sigrúnu. sérlega góð heilsubót enda fallegt veður þó skítakuldi sé. gengum í meira en klukkutíma bara og nutum útsýnisins.
ég fjárfesti svo í flipflops fyrir sumarið. fékk þessa líka rosafínu flojo's sandala á slikk. um að gera að hressa sig við í kuldanum með svona. það reyndar gæti komið sumar eftir þrjár vikur eða eitthvað...eins gott að vera undirbúinn...hehehe
nú sit ég í vinnunni hjá tomma og skemmti mér í tölvunni...hehehe...sendi reyndar resjúmið mitt í blómabúð í dag líka...hohoho...aldrei að vita nema gamall draumur rætist og ég fari að vinna við að afgreiða blóm og pakka inn!
mánudagur, febrúar 24, 2003
mér finnst eiginlega dáldið líklegt að þeir þrír eða fjórir sem venjulega lesa þessa síðu séu hættir því eftir að tölvan bilaði...en ég læt það ekki á mig fá...ég bara skrifa ótrauð áfram. skrifa eins og vindurinn og geispa um leið.
við erum að fara á tzjillípepperstónleika í maí!!! jíhaaaaaaaaaaaaaaaaa...held að það sé meira að segja lönguuppselt á þá og við fengum ekkert bestu sætin sko. það verður án efa stuð á þessum. alltaf gaman að sjá stuðbönd á tónleikum.
jæja...tölvan up and running loksins...hrundi fyrir helgi og tommi er búinn að hamast við að koma henni í lag aftur. meira vesenið!
en allavega...helgin var bara fín. fórum aftur í keilu og nú tók tommi mig alveg í nefið...vann fjóra leiki af fimm...skoraði miklu fleiri stig en síðast...reyndar gerði ég líka betur en síðast en það var bara ekki nóg til að hafa í við keilumeistarann tomma gunn! við verðum bara að fara aftur og ég kannski að laumast til að æfa mig í einrúmi...hahaha...það væri reyndar ótrúlega fyndið að fara ein í keilu.
ég fór svo á west side story æfingu í gær...rosastuð. mér finnst bara allt í lagi að leika karlhlutverk. maður lærir ágætlega á sjálfan sig og í rauninni er þetta ansi gott challenge ef þannig má að orði komast. svo er þetta skemmtilegur hópur líka og mikið af brandaraköllum og kellingum. afskaplega hressandi bara. :-)
laugardagur, febrúar 22, 2003
ég frétti að bashir, gæinn sem sveik mækúl hafi hætt við að mæta á brit verðlaunahátíðina sökum morðhótana! jahérna.
tölvan er í einhverri fýlu þessa dagana. verð að reyna að sleikja hana upp einhvern veginn.
mér finnst kók alltof gott! ég er háð því. hrikalega slæmt. eða hvað? má maður ekki bara drekka kók? ég geri nú ekki mikið annað slæmt...
föstudagur, febrúar 21, 2003
jæja...horfði á hluta af þætti um mækúl djakkson...hin hliðin á síðasta viðtalsþætti. mækúl lét annað tökulið láta vélar ganga á meðan allt þetta fór fram og í þættinum í kvöld...á annarri sjónvarpsstöð...var hin hliðin sýnd. þessi spyrill þarna...breski bjáninn er bara einhver asni. hann lofsamara mækúl alveg í bak og fyrir þegar hætt er að taka upp hjá honum og tekur í hendurnar á honum og segir honum hvað hann sé yndisleg mannvera og talar við meiköppkonuna hans og þau eru rosalega góðir vinir öll saman!!! svo var talað við barnsmóður mækúl og virðist hún bara vera hin besta kona og ber augljóslega tilfinningar til popgoðsins. þessi spyrill úr fyrri þættinum kom útúr þessu eins og algjör svikari og tækifærissinni. hann segir meðal annars við mækúl hversu samband milli hans og barna hans sé yndislegt og alúðlegt og ég veit ekki hvað og hvað en það var klippt út og í staðinn les hann inn eftirá að honum hafi ekki staðið á sama og blablabla...ferlega lélegt af manninum að koma svona fram við fólk!
tommi er ótrúlegur! hann var að skoða póstinn sinn í outlook áðan og fann ekki einhverja skipun eða takka á toolbarnum sem hann þurfti að nota. lét það ekki á sig fá eftir mikla leit (líklega vantar þennan takka í þessari útgáfu af forritinu)...hann bara bjó til takkann eins og ekkert væri...!!! skrifaði bara lítinn forritsbút og smellti honum inn. jahérna!
fimmtudagur, febrúar 20, 2003
vá hvað það er gaman að syngja lagið "at last" með etta james. algjör snilld. mikil útrás í þessu lagi. alveg tilvalið í tilfinningaþrungin brúðkaup...hahha...þeir sem vilja ekki vera með hallærisleg celine dion lög...hohoho.
nú ætla ég út í göngutúr að redda smáhlutum og e.t.v kaupa dagblöð fyrir atvinnuleit. jess.
fimmtudagsharðsperrur. aftan á lærum, allt bakið, hendur, magi, hliðar, brjóst og hendur. ég ætla aftur í power yoga!
mikið svakalega er ég hamingjusöm fyrir hönd svanhildar vinkonu og sigurðar ágústs. þau eru búin að eignast lítinn dreng og eru sumsé orðin foreldrar.
jæja, nú þarf ég að finna mér vinnu. leiðist svona atvinnuleit alveg hrikalega mikið reyndar. en ég ætla ekki að finna mér eitthvað svona corporate verkfræðistarf. langar bara í eitthvað auðvelt og beisík hlutastarf svo að ég hafi tíma og þrek til að syngja og dansa. :-)
einhverjar hugmyndir?
miðvikudagur, febrúar 19, 2003
svanhildur vinkona og sigurður ágúst eru að öllum líkindum búin að eignast lítinn strák! frábært alveg hreint. til hamingju svanhildur og sigurður!
ég er orðin þreytt á amerískum barbídúkkutýpum með ljóst hár, siliconvarir, siliconbrjóst og sjálflýsandi tennur. mér finnst þetta vera keypt fegurð og óspennandi. sömuleiðis er ég orðin þreytt á kentýpunum. þetta er eitthvað svo karakterlaust fólk.
og hvað er þetta með andlitslyftingar??? kellingarnar í westmount eru alveg hrikalegar. maður veit stundum ekki hvort maður er staddur innan um helling af geimverum eða bara fríkí lúkkíng óld vimmen ðett dónt vont enníboddí tú nó ðei ar nott tventí ení mor. konur sem geta ekki lokað augunum eða brosað eru bara fríkí...ekki unglegar!
lakúkaratsja, lakúkaratsja...dadadadadaaaaaaaaaaaaaaaa....
búin að fara í jógatíma. vá. laaaaaaaaaaaaaangbesti jógatími sem ég hef farið í. yfirskriftin var power yoga. alveg hreint stórkostlegt fyrir uppgjafarballerínur eins og mig.
hér hefur hlýnað til muna og jafnvel hægt að spóka sig á götum montreal í dag húfulaus! ég skildi louis garneau eftir heima og allt!
í fyrradag var joe millionaire, í gær var american idol og í kvöld verður seventís sjó og bachelorette. jahérna. þetta er rosalega stíft sjónvarpsprógram.
þriðjudagur, febrúar 18, 2003
asnalegasti þáttur sem ég hef séð í sjónvarpi var á skjánum í síðustu viku. hugmyndin á bakvið þáttinn er þetta "hot or not"-dæmi eins og síðan margfræga um emæhottornott. nema hvað...þátturinn gengur fyrir sig í stórum dráttum eins og ameríkanædol. fólk tekur þátt í inntökuprófum um alla ameríku og kemst áfram í riðlum...og þeir sem koma í sjónvarpinu eru búinir að komast í gegnum tvö inntökupróf. ok. það eru þrír dómarar, ein kona og tveir karlmenn. konan er svona súpermódeltýpa...einhver fræg kelling og karlarnir eru jafnkvenlegir og hún ef ekki kvenlegri. eníhú. strákarnir sem komust áfram í næsta inntökupróf voru ágætir...vel vaxnir og svona. stúlkurnar hins vegar voru mjög vafasamar. mér fannst ein þeirra bera af...sumsé vera hot. dómurunum fannst hún of feit!!! tvær af þeim sem komust alla leið í bíkíníprófið voru alveg greinilega með lystarstol...þær voru það langt leiddar að manns fyrstu viðbrögð voru "ahhhhhhæææææææhúneralvegsvakalegahoruðúffþettaeróhugnanlegt" og það er ekki séns að líkamsstarfsemi þessara kvenna sé í lagi...snýst þetta ekki annars að miklu leyti um að vera tilvalinn til undaneldis? það er nú vitað mál að þessar horrenglur á tískusýningum víðs vegar um heim eru ekkert sérlega hentugar til þess og þeir karlmenn sem ég þekki hafa ekki mikinn áhuga á konum án brjósta og mjaðma. eru ekki þessar "ofurfyrirsætur" týpur sem skapaðar eru af konum og hommum. því hverjir eru það aðrir en ofsalega hinsegin tískuhönnuðirnir og þeirra fylgilið sem setja staðlana í þessum málum?
mér fannst þessi þáttur alveg einstaklega bjánalegur og þessir dómarar höfðu greinilega ekki hundsvit á því hvað er eggjandi og hvað ekki. enda er það náttúrulega smekksatriði. ;-)
fékk atvinnuleyfið sent í pósti í dag. ég get sumsé farið að leita mér að vinnu...er reyndar með starf í blómabúð í huga...part-time bara. svo ég geti fjármagnað sönginn og annað sem mér dettur í hug að gera.
reyndi að fara í jóga í morgun en gekk ekki þetta skiptið. sjoppan bara lokuð og engar útskýringar. reyni aftur á morgun og held að það sé sniðugt að hringja á undan sér. fór þess í stað bara í hádegismat með sigrúnu og kjaftatörn. og náttúrulega aðeins í búðir. hér er komið páskasúkkulaði í einstaka verslanir. sérdeilis skemmtilegt.
mánudagur, febrúar 17, 2003
mánudagur til matar. hehehe...
helgin var róleg. fór á west side story æfingu í gær. stórskemmtilegt alveg. ég er alveg að komast inn í gengjafílinginn...æfðum tvær senur í gær og í annarri þeirra er ég buffuð. það var bara hið mesta stuð.
nú tekur við jógavika. við sigrún ætlum að fara í jógatíma þessa vikuna og sjá hvort við höfum áhuga á því að halda áfram. sumsé prufuvika.
ég bíð enn eftir atvinnuleyfinu mínu og tilboðum í kvikmyndabransanum...hahahaha...það hefur enginn hringt ennþá. skrýtið.
sunnudagur, febrúar 16, 2003
kommentakerfið er í fýlu. bíðum bara átekta og sjáum til hvort það róist ekki.
gerðum ekkert í gær. algjör rólegheit.
ég held að bandaríkjamenn séu að ganga af göflunum. það snýst allt um stríð og aftur stríð í fréttunum og núna síðast voru þeir eitthvað að hóta þjóðverjum að hætta samstarfi við þá ef þeir héldu ekki kjafti. mér líst ekkert á þetta! það stefnir allt í óefni í þessum málum. make love not war...
laugardagur, febrúar 15, 2003
björg vinkona talaði um ungverska nafnadaga í gær á sinni síðu. þetta er mjög skemmtilegur siður finnst mér að halda upp á ákveðin nöfn á hverjum degi. í svíþjóð er þetta svona og ég fann einmitt síðu þar sem maður getur flett upp á nafninu sínu eða ákveðnum degi. minn dagur er 24.júlí. allir að senda mér gjafir þá. og líka 7. október af því að þá er dagur birgittu. jibbíkóla!
í gær var góður matur og góður eftirréttur og góð bíómynd í imbanum. ég bakaði fyllt skinkuhorn...og nóg af þeim. frysti bara flest og hin bíða eftir því að verða étin.
það er alveg hrikalega kalt hérna þessa dagana...núna eru -22° en í nótt náði frostið næstum niður í -30° og á að vera eins næstu nótt. það er líka örlítill vindur. brrrrrrrrr... samt verður manni ekkert voðalega kalt ef maður fer út mjööööööööööög vel klæddur. ég er t.d. alltaf í louis garneou gammosíunum mínum og dúnúlpunni minni, með húfu, trefil um andlitið og vettlinga. eina berskjaldaða svæðið eru augun og efst á nefninu og kinnunum. manni verður óneitanlega kalt þar og tárast eins og ég veit ekki hvað en annars staðar er manni bara hlýtt og ég á það jafnvel til að svitna örlítið ef gengið er hratt.
föstudagur, febrúar 14, 2003
það hlaut að koma að því að jón ólafs yrði böstaður! samkvæmt þessari frétt eru vanframtaldar fjárhæðir gæjans um 3.2 milljarðar!!! og þetta er bara síðan '96!!! það væri löngukomin tvöföld reykjanesbraut og fleiri göngustígar ef þessi peningur hefði leitað á réttan stað. skammskamm. mér finnst þetta mál hreint stórfurðulegt. ég man þegar í fréttum var verið að tala um að maðurinn hefði talið fram 70-90 þús í tekjur á mánuði. fannst honum það eitthvað voðalega sniðugt? kannski ekkert voðalega mikið að fela það að hann væri að svíkja undan skatti. ég bara skil ekki hvernig þetta gat gengið svona langt. íslenska þjóðin ætti að vera stórmóðguð yfir þessu. og hananú!
þá er valentínusardagurinn kominn. ég var vakin í morgun með kossi og mjúkri konfektmolaöskju....svona rauð og hjartalaga með mjúku loki frá godiva. ekki amalegt...og ekki nóg með það heldur var aðalgæinn búinn að velja handa mér þennan fína náttkjól líka. og hann smellpassaði. ;-) nú vantar bara bleiku flöffskóna og þá er þetta fullkomið...tommi ef þú lest þetta...æ lööööööööööööööööööööööööööv jú. sko maður á að vera æðislega væminn í dag.
fimmtudagur, febrúar 13, 2003
finnst ykkur nýju litirnir ekki skemmtilegir? mér fannst alveg nauðsynlegt að vera með aðeins meiri bleikan og breyta hinum litunum til að vera ekki með eins síðu og næstum allir sem nota blogger.
hvert fór eiginlega restin af arkævinu? hmmm...þessi heimasíðubissness er stundum svo furðulegur. ef maður breytir lit á einhverju litlu dóti dettur út alls konar stöff. hmmm.... ég hélt ég hefði lært nóg af því að möndla vef kudos saman!!!
það er allt að sturlast í valentínusaræsingi hérna í montreal og líklega allri norður ameríku. það eru hjörtu á öllum auglýsingum alls staðar og nú er meira að segja hægt að kaupa lampa og örbylgjuofna á valentínusartilboðum. jahérna. ætli maður taki sig ekki til og baki eða föndri kort í tilefni dagsins en maður er ekki alinn upp við þetta og finnst því ekki rétt að demba sér í þennan fíling eins og landinn. mér finnst líka ótrúlega fyndið að fara í hallmark kortabúðirnar...amerískustu kort í öllum heiminum og skilgreining á væmni. þar eru kortin flokkuð eftir viðtakanda eins og gengur og gerist í svona kortabúðum en flokkarnir eru bara svo hrikalega langsóttir...liggur við að maður geti keypt kort sérhannað fyrir einfætta svarta lesbíu eða eitthvað álíka sjaldgæft.
ég fór ásamt sigrúnu vinkonu hérna að skoða jógastúdíó í gær. okkur leist svakalega vel á staðinn og ætlum að fá að prófa í eina viku. kostar ekki nema $20 að prófa þetta í eina viku...sem er um þúskall íslenskar. jóga ætti að vera ágætisleið til að losa um spennu í öxlum og hálsi.
miðvikudagur, febrúar 12, 2003
púff. var að koma heim úr nuddi. þessi hausverkur er nú ekkert fyndinn lengur...reyndar var hann aldrei fyndinn. nuddkonan teygði og togaði í hausinn á mér og það var bara ágætt.
það er alveg ótrúleg samkeppni hjá sjónvarpsstöðvunum hér núna...líklega í usa líka. lokaþættirnir í fullt af seríum eru í næstu viku. maður verður líklega bara að taka upp einn þátt og horfa á annan og missa af þeim þriðja...hehehe. annars er þetta nú flest endursýnt.
jæja svo er ég líka byrjuð að æfa tvö ný lög sjálf..."as long as he needs me" úr oliver og "people" úr funny girl. sérlega skemmtileg lög. ég er líka búin að skella saman lista yfir lög sem ég ætla að reyna að æfa næstu mánuðina. jess fyrir því.
nágrannarnir sem búa fyrir ofan okkur eru aðalráðgátan í lífi okkar tomma þessa dagana. yfirleitt heyrist mjög lítið í þeim á daginn og alveg fram á kvöld. þá byrja lætin...og oft byrja mikil læti um miðnætti eða þar eftir. þetta eru ekki svona venjuleg nágrannalæti eins og hátt stillt tónlist eða sjónvarp eða mikið mas. það virðist vera að þetta fólk fái einhverja svakalega þörf fyrir að flytja húsgögn á nóttunni...og labba hratt fram og aftur. í nótt var hávaðinn orðinn það mikill að okkur tomma tókst ekki að sofna og brugðum við því á það ráð að berja kústskafti upp í loftið. tommi tók það áhættusama verk að sér og með þvílíkum afköstum að það heyrðust rosalegar drunur. þá hætti hávaðinn smám saman en í staðinn heyrðust öskur í einhverjum kalli...það sem við heyrðum var: "go away, leave!" og "go to sleep now"...hmmm...þetta er allt mjög undarlegt og við erum alveg hrikalega forvitin...hvað ætli gangi á þarna á nóttunni...er þetta listamaður sem er að búa til skúlptúra? er þetta smiður sem er að gera upp íbúðina og vinnur best á nóttunni? er þetta maður með redecorating áráttu? eða fer fram risaskák þarna á nóttunni? mig langar eiginlega bara að banka upp á og fá að kíkja aðeins inn...þessi óvissa er að gera mig brjálaða!
þriðjudagur, febrúar 11, 2003
smá tilbreyting. vil ekki vera eins og allir hinir.
ég er ennþá að drepast í lærinu eftir keiluna. og ég er með harðsperrur í hægri höndinni...eins gott að ég vann tomma!
ég er alveg sammála björgu í dag...hverjum finnst kakósúpa góð??? ég hef heldur aldrei skilið þetta. eins og þykkt kakó sem maður borðar með skeið og mylur tvíbökur útí. hljómar allt í lagi kannski en það er þessi skán sem gerir þetta svo ósmekklegt eitthvað. ég man þegar ég var að vinna í bifreiðaskoðun sem unglingur og oft á föstudögum var framreidd kakósúpa. það virtist vera heitara en heitar lummur því fólkið flykkjaðist í mötuneytið og sötraði súpuna sem aldrei fyrr. ég stóð bara utangátta og horfði á. aldrei hafði ég fengið kakósúpu á mínu heimili. mamma eldar bara gúrmeimat á sænska vísu. ég hef því ekki alist upp við kakósúpu, bjúgu, saltkjöt og slátur. mun frekar nyponsoppa, korv, köttfärslimpa og blodpudding.
ég ráðlegg fólki að horfa ekki á fræðsluþátt um sníkjudýr sem lifa á mannslíkamanum. ég horfði á þennan viðbjóð á discovery channel í gær. þvílíkt magn sem til er af alls kyns ormum og viðbjóði sem tekur mannskepnuna sér til hýsingar. ég er ekki söm eftir þennan þátt.
mánudagur, febrúar 10, 2003
annars var helgin bara ágæt. við tommi skelltum okkur út að borða á laugardaginn...og fórum eftir máltíðina í bíó og sáum just married. allt í lagi bíómynd svo sem...fórum aðallega útaf gæjanum sem leikur kelsó í seventís sjó. eftir bíóið tókum við upp á því að skoða aðeins þetta "entertainment centre" sem bíóið er í og fundum þennan líka fína keilustað. skelltum okkur bara í keilu og ég náttúrulega burstaði tomma...jeeeee. það var nú bara heppni...ég hef farið þrisvar sinnum í keilu áður og tommi eitthvað álíka. ég er hins vegar alveg að drepast í vinstra aftanverðu lærinu eftir þetta.
jæja...búin að fara á west side story æfingu. þetta verður skondið held ég. það voru svo miklu fleiri stelpur sem fóru í audition og strákarnir svo lélegir að castið samanstendur af mun fleiri stelpum en strákum og því verður að breyta hlutverkunum töluvert. og þar sem í sögunni sjálfri er meira af strákum en stelpum kemur þetta dálítið skringilega út. ég var sett í hlutverk "pepe" en það er einmitt strákanafn!!! sé bara til hvernig þetta verður...fólkið sem var valið í "aðalhlutverkin" (maður veit ekki hver aðalhlutverkin eru fyrst það er búið að breyta þessu öllu) hafði verið í söngleikjum áður...mér fannst ég samt syngja miklu betur en þau ;-) þetta var samt þrusustuð.
föstudagur, febrúar 07, 2003
mál málanna í dag virðist vera mækúl djakkson og heimildarmyndin um hann. ég sá þessa mynd í gær. maður fékk bara sting í magann yfir því hvað hann á bágt hann mækúl. og þessi spyrill var nú ekki í lagi. hann hélt að þetta viðtal snérist um hann sjálfan...alltaf með einhver komment inn á milli, hálfhvíslandi eitthvað um að honum liði æðislega illa yfir þessu og eitthvað. og kellingin hún barbara volters í tventítventí sem hefur sjálf farið í alltof margar andlitsstrekkingar var alltaf með einhver leiðindakomment líka inn á milli. ég bara sárvorkenndi honum mækúl, greyið átti ömurlega æsku og hefur aldrei prófað að vera bara venjulegur.
honum finnst hann vera pétur pan...ég held að það sé bara rétt hjá honum. hann er ekki orðinn fullorðinn, hann er nær því að vera fantasíufígúra en venjuleg manneskja...það eina sem vantar upp á er að hann geti flogið.
áfram mækúl! jú nó æm bed, æm bed jú nó itt!
jæja, best að skella sér út að setja umsóknir og ýmislegt skemmtilegt í póst. jíha. svo er líka föstudagur.
fimmtudagur, febrúar 06, 2003
sko mig. búin að velja lög til að syngja hjá henni sylvie:
"all that jazz" úr chicago söngleiknum
"midnight at the oasis" sem brand new heavies gerðu frægt
"there's nothing like this" með omar nokkrum
fyrsta lagið er reyndar dáldið erfitt...sé bara til hvort ég get sungið það.
miðvikudagur, febrúar 05, 2003
jæja...þetta er nú eitthvað að skána þetta kommentakerfi. ojæja. maður getur ekki beðið um fullkomna þjónustu ef hún er ókeypis. hehehe
nú er ég búin að klára cv-ið mitt og búin að bæta inn "performing arts experience" hehehe...komið að því að senda stöffið út til casting agencies og vonast til þess að fá að vera "lifandi bakgrunnur" í bíómynd. ég er bara ekki viss um að passamyndirnar sem ég tók um daginn í svona sjálfsala séu nógu góðar...hehehe...það er bara svo dýrt að fara í myndatöku...hehe. annars ætti ég að tékka á því betur.
fólk hefur kannski tekið eftir því að kommentastöffið virkar ekki. haloscan síðan er líka niðri þessa stundina.
fór í söngtíma í morgun en var bara send heim eftir hálftíma kennslu. sylvie fannst ég of kvefuð og lasleg til að vera eitthvað að rembast. hún var líka sjálf þreytt og morkin eftir kvikmyndaupptökur í nótt.
ég hef nú ekki mikið að segja þetta skiptið. er bara eitthvað slöpp og kvefuð...farin að hósta líka. god damn! spurning um að hvíla sig bara almennilega.
þriðjudagur, febrúar 04, 2003
allright! komin heim frá lækninum. gellan lét mig bara hafa vöðvaslakandi og nefsprey og sagði mér að tzjilla. jeeeeeeee...
torfi segir mér að það séu til strætóstrippstöðvar. hmmm...af hverju hef ég aldrei komið á svoleiðis?
jæja...nú er ég komin með nóg af hausverkjum. ætla að fara aftur til læknis og nöldra í honum þangað til hann finnur lausn á málinu. og hananú!
stelpurokk með todmobile er snilldarlag. og stereolab er snilldarhljómsveit.
ok. horfðum á "joe millionaire" í sjónvarpinu í gær. þetta er svona ríalitísjó eins og "the bachelor" nema það að stúlkunum var sagt að gæinn væri $50 milljóna virði...sem er svo bara lygi. hann vinnur á gröfu og fær skitna $19þús á ári. þær fá svo ekki að vita sannleikann fyrr en í síðasta þættinum.
þetta er alveg ótrúlegur þáttur. gæinn er í hrikalegum mínus yfir því að vera að ljúga að grey stúlkunum og þær eru svo innilega á höttunum eftir peningunum. nú er bara einn þáttur eftir og tvær stúlkur eftir. önnur þeirra hefur víst leikið í einhverjum pornmyndum...einhverjum "foot fetish" myndum...ferlega fyndið.
mánudagur, febrúar 03, 2003
alveg er nú lagið civil war með guns'n'roses frábært lag. jess.
var finna geisladiska frá því ég var hjá kudos. á þeim mátti finna fullt af skemmtilegri tónlist. t.d er ég núna að hlusta á hava nagila með harry belafonte. snilld.
hey, hvaða lög eru oft sungin í brúðkaupum? bæði á íslensku og ensku...spurning um að skella saman lista yfir heppileg lög.
mánudagur og tommi kominn heim. jess!
ég afrekaði það í gær að ræða við mann á frönsku á strætóstoppistöð. og meira til. ég hlustaði á fimm mínútna samtal á milli hennar melissu og konunnar sem vinnur í insomniac bookcafe (þar sem west side story æfingar verða) um að við ættum bara að bíða og sjá hvort einhver kæmi...á frönsku! ég er ekki frá því að frönskuhreimurinn minn sé bara fínn.
við vorum að spá í að skella okkur á carnaval de quebec. það er ótrúlegt magn af hátíðum hérna í quebec...það má til dæmis skoða þessa síðu. alls kyns keppnir og skemmtilegheit.
sunnudagur, febrúar 02, 2003
það er tveggja stiga hiti hérna!!! ég fór út áðan og leið bara eins og það væri komið sumar!
núna er ég bara útgrátin eftir að hafa horft á ghost. hriiiiiiiiiikalega væmin en samt sem áður getur maður ekki haldið aftur af sér.
fer á fyrstu west side story æfinguna í kväll. verður gaman að sjá hvernig þetta verður og svoleiðis. spennó
hey, og ég er ótrúlega ánægð með hana björgu. hún bara tók út leiðindakomment frá einhverjum lúða sem var að dissast á síðunni hennar. ég var farin að gera honum til geðs að svara...bara gat ekki setið á mér. en allavega...ef einhver er með lúðadiss á minni síðu mun ég gera slíkt hið sama. hallelúja!
föndraði helling um helgina. tók upp á því að fletta í gegnum kellingablöðin sem ég á og klippa útúr þeim það sem mér fannst flott og líma það á stóóórt blað. sérdeilis skemmtilegt. svo umrammaði ég og færði til myndir í íbúðinni.
er búin að horfa slatta á sjónvarpið hérna um helgina. tók chocolat og cabaret (með liza minelli) og svo horfði ég á gamla mynd frá feneyjum á einhverri stöð hérna...veit ekki hvað hún heitir en það er eitthvað movie marathon á mountain lake pbs og núna er ghost í sjónvarpinu. gvöð hvað þetta er sorgleg mynd eitthvað.
laugardagur, febrúar 01, 2003
var að horfa á chocolat. ohhhhhhhhhhhhh...þetta er nú bara með skemmtilegri myndum sem ég hef séð. maður verður svo glaður og ljúfur eitthvað eftir að hafa horft á hana. rosalega falleg mynd og bara yndisleg í alla staði. og auðvitað var ég með súkkulaði við höndina þegar ég horfði...annað er ekki hægt!



