Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

föstudagur, janúar 31, 2003

var að koma heim úr söngtíma. hún sylvie er algjört yndi...lætur mann alltaf anda svo mikið að mann fer bara að svima. hrikalega góð slökun í leiðinni.
ég labbaði svo langleiðina heim frá henni...tók mig rúman klukkutíma bara. gott hjá mér *klappábak*

það eru örugglega þrjár vikur síðan valentínusardót kom í búðir hérna. þessir montrealingar eru rosalegir. yfir allt heila sumarið eru þvílíku hátíðarnar og partý alla daga (comedy festival, formula 1, jazz festival, film festival...o.s.frv), svo þegar fer að hausta kemur halloween skrautið út um allt og um leið og sú hátíð er á enda fer fólk að smátína jólaskraut upp úr kössum og setja upp...má eiginlega segja að það vaxi línulega frá miðjum nóvember og til jóla og svo er þetta jólaskraut bara ekkert tekið niður fyrr en svona í lok janúar. það má ennþá sjá jólaseríur um allt niðri í bæ.
mér finnst þetta einkar skemmtilegt...góð leið til að gera veturinn bjartari og skemmtilegri. reyndar skín sólin hérna liggur við á hverjum degi svo ég kvarta ekki undan birtuleysi.

ég var að röfla um það í kommentadótinu hjá henni björgu hversu léleg stafsetning er orðin hjá fólki...eða kannski hefur hún alltaf verið það. mér finnst alveg ótrúlega algengt að sjá þvílíku "y" villurnar og bara skringilegar villur almennt. ég á það nú til að gera kjánalegar villur sjálf og nota ekki stóra stafi og kommur og punkta eins og bókin segir en það telst eiginlega til svona "bloggmáls" eða "chatmáls". ég sletti líka hrikalega mikið og skrifa oft ensk orð á íslensku. samt sem áður. mér finnst fólk vera alltof latt að vanda sig. mér finnst líka ótraustvekjandi að sjá rosalega mikið af villum í texta hjá fólki...sérstaklega ef það er að skrifa eitthvað á opinberum vettvangi. sumir eiga reyndar mjög erfitt með að læra stafsetningu...tengist eitthvað sjónminninu og öðru slíku en ef fólk er svoleiðis statt getur það alveg látið lesa yfir textann fyrir sig. og hananú!

nú er ég svo lonely hérna ein heima og allt...og í tilefni af því ætla ég að skella inn mynd af okkur tomma frá því síðasta sumar í kaliforníu...



hver er fyrstur að giska hvar þetta er og hvaða borg er skýjum vafin...

fimmtudagur, janúar 30, 2003

það hefur nú ekkert gengið hjá mér að setja upp myndasíðu. nenni því eiginlega ekki...myndavélin okkar er líka biluð og allar gömlu myndirnar eru sko héddna ummm...ehhh...skoo...

mig langar eiginlega frekar að vera með svona tónlistarsíðu. kannski skella inn lögum sem við tökum upp hérna og e.t.v skella upp lista af lögum sem ég er búin að æfa...hehh...kannski hallærislegt veit það ekki. annars langar mig alveg hrikalega mikið að búa til mína eigin tónlist. það er á stefnuskránni allavega. keypti meira að segja bók um það einn daginn *roðn*

tommi er farinn til hull. er að fara að spila á þorrablóti íslendinga þar. og ég fékk ekki að fara með...buhuuuu...
þess í stað sit ég hér í rólegheitunum og hef íbúðina fyrir sjálfa mig yfir helgina...spurning um að taka til og gera fínt á meðan gæinn er í burtu. þá get ég allavega haft fínt hérna í tvo daga. :-|

west side story æfingarnar byrja á sunnudaginn. verður gaman að sjá hvort þetta verða algjörir lúðar eða eitthvað skemmtilegt lið.

ég er reyndar núna að safna lögum til að geta sungið við öll tækifæri. er að spá í að markaðssetja okkur tomma sem svona brúðkaupsdúett...dinner tónlist og rokk ef fólk vill. við erum svo fjölhæf! endilega sendið inn pantanir...hehehe...ef þið búið í montreal...ehhh...hehehe...ímeiladressuna má finna hér

jess...var verið að hringja frá west side story dótinu. mér var tjáð að "they'd love to have me in the production". húrra fyrir því. hehhh...ég þarf reyndar að borga fyrir þetta...er sko námskeið. en samt, gleðileg tíðindi. stefnir sumsé í sýningar í júní. veiveivei.

miðvikudagur, janúar 29, 2003

hey, ég fann mig í verkfræðingalistanum hjá viðskiptaráðuneytinu. hahaha...ég hef sumsé fengið löggildingu til að kalla mig verkfræðing.

jææææææææææææææja...nú er blogger kominn í lag...var eitthvað bögg í gær og í dag.

skellti mér í audition fyrir west side story í gær. þetta er eins konar námskeið sem endar með átta sýningum í júní. ég söng nú bara eitthvað lag og gerði eitthvað...veit ekki alveg hvernig það gekk en ég skemmti mér allavega ágætlega. :-) svo fæ ég að vita í dag hvernig gekk og hvort ég fæ að taka þátt.

ég er svo svöng að ég gæti borðað sjálfa mig...ætla því að skella mér inn í eldhús og gúffa eitthvað hollt og gott.

mánudagur, janúar 27, 2003

nýjustu fréttir.

við létum sverja okkur í nokkurs konar sambúð (common-law) í morgun við tómas. það fór einkar skemmtilega fram, fórum á einhverja lögfræðiskrifstofu og fylltum út form, skrifuðum undir og stóðum svo með hægri hönd í höfuðhæð og sögðum "I DO". við flissuðum reyndar dáldið mikið af því að þetta var eitthvað svo svakalega mikið formsatriði og lögfræðingakonan hló líka og sagði að henni fyndist þetta alltaf jafnkjánalegt.
við hefðum tekið myndir en við áttum engan kubb...

atvinnuleyfisumsóknin er komin í póst ásamt skjölunum sem við skrifuðum undir í morgun...nú er bara að vona að ég fái þetta opna atvinnuleyfi sem fyrst (opið þýðir að ég má sækja um vinnu hvar sem er, venjulega þarf fólk að vera komið með atvinnutilboð).

við verðum sumsé skráð í samband og sambúð hjá því opinbera þegar skjölin berast til þeirra. húrra fyrir því...

það snjóaði í nótt. það er líka frekar kalt úti núna, -25°C.

við fórum í afmælisboð í gær...tristan sonur þeirra yvonne og sigga (siggi vinnur með tomma) varð sjö ára í vikunni. þar fengum við góðan mat og pokemon köku! ég gæddi mér á pokemonlæri með bláu og gulu kremi...fékk meira að segja bláa tungu eftir lostætið. hehehe...

ég hef nú eiginlega bara ekkert að segja...við lágum dálítið í leti yfir helgina þannig að ekki hefur mikið merkilegt gerst síðan síðast.

gengur bara betur næst.

laugardagur, janúar 25, 2003

og í dag á tooooooooooooommi bró afmæli! tiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiil hamingju tommi bró. því miður á ég enga mynd af honum en það verður nú að segjast að hann er einkar myndarlegur drengur, enda bróðir minn!

fórum í labbitúr í plateu hverfinu í dag. svakalega skemmtilegt hverfi, mikið af börum og kaffihúsum og litlum sætum búðum. mjög mikið um sérverslanir. t.d eru tvær verslanir þarna á st. denis sem sérhæfa sig í miðaldadóti. þar er sumsé hægt að kaupa klæðnað sem var í tísku á miðöldum og annað tilheyrandi. og búðirnar eru tvær!!! ég er farin að halda að harry potter búi ekkert í englandi.

skemmtileg tíðindi af maurunum mínum. í morgun þegar ég kom fram voru tveir stórir og vængjaðir maurar á gólfinu hjá einni gólfrifunni. "hmmm...hvað ætli þessir maurar geri og af hverju eru þeir svona stórir og með vængi" hugsaði ég og fór náttúrulega og fletti upp á netinu fróðleik um maura. ég komst að því að þessir tilteknu maurar eru fullorðnir karlmaurar og voru líklega að hefja hið svokallaða "brúðarflug". þegar maurabú er í útrýmingarhættu taka þessir karlmaurar á flug og makast við verðandi drottningar á stað sem þær velja. ég fylgdist með þessum stað í dag og þeir hafa verið að tínast upp úr rifunni en dáið jafnóðum...og ef þeir hafa ekki dáið strax sjálfir ryksuga ég þá og svo er ég líka búin að setja smá eitur þarna í rifuna.
samkvæmt þessum upplýsingum má vænta að búið hérna undir gólfinu sé að eyðast og von mauranna á clarke 335 sé svotil úti um hamingjusamt líf. snökt fyrir þeim en hlakk fyrir mér.

föstudagur, janúar 24, 2003

bóndadagur!
húsbóndinn á heimilinu var vakinn með blómum og beyglu (þá er ég ekki að tala um mig)...og heitu kakói í morgun. ég lét hann ekki einu sinni hoppa í kringum húsið á annarri skálminni...eiginlega of kalt til þess. hann hefði líklega ekki snúið aftur.

ég, verkfræðingurinn og kvenmaðurinn á heimilinu náði sem sagt að kynda þessa íbúð almennilega...meyjarhitinn dugði ekki í þetta skiptið. núna get ég sumsé verið léttklædd innandyra og sofið í svefnherberginu. þökk sé verkfræðinni og kvenlegu innsæi! eða þannig...

fimmtudagur, janúar 23, 2003

mig langar í pUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUlsu!
helst skal hún vera ss, og að minnsta kosti íslensk.
takk fyrir.

búin að finna útúr því hvernig ofnarnir virka og nú er sko verið að kynda...vonandi að það verði hægt að sofa í svefnherberginu í nótt!
það virðist vera eins konar barnalæsing á ofnunum...sem eru nú komnir til ára sinna. maður þarf sko að ýta hitastillinum niður til að geta skrúfað.

ég er orðin alveg uppiskroppa með lög til að syngja. vantar eitthvað stuðlag og eitthvað rólegra til að syngja hjá henni sylvie. einhverjar hugmyndir?

fór í saumaklúbb í gær... eða bitch'n'stitch eins og yvonne kallar það. ágætis tilbreyting.

þegar ég kom heim í gær var mér nú slatti kalt úti og slatti kalt frammi á gangi en þegar ég opna hurðina inn í elskulegu íbúðina okkar þá bara blés á móti mér kaldur gustur. brrrrrrrrr... ofnarnir eru ekki búnir að vera í gangi almennilega síðan vetur konungur gekk í garð og við vorum bara að taka hitunarvöldin í okkar eigin hendur í gærkveldi. skoðuðum og skrúfuðum og náðum að hita upp eitt herbergi almennilega. mauraherbergið!!! við skelltum bara dýnu á gólfið og sváfum þar í nótt í hlýjunni. allir maurar dauðir held ég bara. þeir hljóta að hafa frosið í gær. reyndar er hitinn á baðinu alltaf ágætur...sem betur fer!!!

miðvikudagur, janúar 22, 2003

jedúddamía...það er -29°C frost úti og með vindkælingu er þetta víst eins og -40°C!!! kaldasti dagur ársins í dag enn sem komið er og skólar eru lokaðir í dag og allt! tommi fór út í dag með grímuna sína og ég ætla að gera slíkt hið sama. mér finnst tölvan vera eitthvað sló...hmmm...ætli hún sé nokkuð að frjósa...hahaha...ehhh...

hey, við sáum neonustu úlpu í heimi í fyrradag. kona sem hljóp úr station volvo inn í the real bagle...úlpan var svo neonbleik að það varð bara að kalla hana neonustu (sumsé lýsingarorð í efsta stigi) úlpu í heimi. og þá varð maður náttúrulega að prófa að stigbreyta neon...neon, neonari, neonasta...ef maður segir þetta svona saman er þetta ótrúlega sannfærandi japanska.

svo á hún mormor (amma á sænsku) afmæli í dag! tiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiil hamingju mormor!

þriðjudagur, janúar 21, 2003

bara svona til að fræða fólk um maurana sem búa hérna...líka af því að sindri stuð var að hafa áhyggjur af þessu...

þetta eru bara svona litlir vinnumaurar sem gera manni ekki mein. eru afskaplega litlir og auðdrepnir...hehehe. það er reyndar alveg stórkostlegt að fylgjast með því hvernig þeir vinna. þeir geta borið svo stóra hluti að það er hlægilegt. og þeir senda út svona njósnara eða könnuði og skilja eftir sig einhvers konar slóð þannig að hinir geti fundið mat og annað. svo er líka alveg merkilegt hvað þeir gera við aðra dauða maura. þeir bera þá á ákveðna staði. ef slatti af maurum drepst einn daginn en nokkrir eru ennþá lifandi og maður kannski fer að sofa og heldur að maður hafi nú endanlega losnað við þetta þá er kannski búið að bera fullt af dauðum maurum út í eitt horn næsta morgun og maður rekur augun í einhverja ofurþreytta maura að rogast með dauðan vin sinn í þetta sama horn. furðulegt!

ég bendi nú bara á þessa frétt til að útskýra hvað er kalt úti núna...hehhh...

jæja. skellti mér bara til læknis og fékk einhver mígrenilyf. ætla að prófa það núna og sjá hvort virkar. er orðin þokkalega þreytt á þessum hausverk. púff!

það er sérlega kalt í henni könödu í dag. reyndar er ég alltaf svo vel klædd úti að ég bara svitna frekar en að vera kalt. einkennileg tilfinning þegar maður fer út, nefið og andlitið dofið úr frosti en allur líkaminn vel heitur og jafnvel aðeins of heitt bara. hef aldrei upplifað þetta á íslandi. þar er manni bara alltaf kalt. sama hvað. ég gæti til dæmis ekki hugsað mér að vera bíllaus í reykjavík en hér finnst mér það bara alveg þolanlegt. enda eru almennar samgöngur hér ekki bara fyrir eldri borgara og börn.

mánudagur, janúar 20, 2003

jæja...búin að vera að slátra maurum á fullu. efast um að þá langi upp úr gólfinu aftur...spreyjaði slatta á "hang out" staðina þeirra og setti eitthvað spes eitur í rifurnar í gólfinu.

ég er búin að vera með hausverk í fjóra daga núna.
kvart og kvein.

það eru komnir maurar í íbúðina...AFTUR!!! arg!!! það voru maurar hérna í sumar, og er það víst frekar venjulegt í svona eldri húsum hér. ég náttúrulega ryksugaði eins og mófó og alltaf með mauraeitrið á lofti (veit ekki hversu heilsusamlegt það er) en þessir gaurar eru alveg hrikalega útsmognir. maður hamast og hamast við að útrýma þeim einn daginn, svo mætir maður næsta morgun og þá er svoleiðis búið að taka mann í bakaríið með krókum og útsmugum. ég var eitthvað búin að ræða þetta við hana nídu...sumsé janitorinn...hehh...maðurinn hennar heitir dong og saman eru þau nída dong...en allavega, hún sagði að þetta væri nú ekkert mál, maður bara spreyjaði þar sem þeir væru. ég held ég þurfi að fara og kvarta meira bara!

sunnudagur, janúar 19, 2003

keypti munnhörpu í gær á þrjúhundruðkall. frábært hljóðfæri alveg. maður getur spilað lög og allt! ég er byrjuð að safna litlum og fyndnum hljóðfærum. komin með munnhörpu, kazoo og litla eggjahristu. ekki stórt safn en hey, ágætis byrjun bara.

við fórum á tónleika í gærkvöldi með tony levin. alveg þrusugóðir hljóðfæraleikarar...enda er tony sjálfur bassaleikari á heimsmælikvarða. þeir spiluðu blöndu af fusion, rokki og jazz...tóku meira að segja sína útgáfu af tekíla og gamlan led zeppelin slagara. ég var með munnhörpuna í vasanum og spilaði eins og þrjá tóna með einu laginu, bara upp á stuðið.

föstudagur, janúar 17, 2003

ég var að finna skemmtilega myndaseríu frá því við tommi tókum upp jólalagið okkar. fyrsta myndin er þegar ég gríp míkrafóninn. svo hef ég að syngja ljúfa tóna og litlu síðar tilfinningaþrungna. þá er stuðið orðið ógurlegt og tónarnir orðnir heldur rokkaðir. og í lokin er ég bara búin að fá ógeð á þessu öllu saman og tommi greinilega komin með nóg fyrir löngu síðan!

svanhildur anja vinkona mín og sigurður ágúst voru að gifta sig í gær. til hamingju elsku brúðhjón!
mér finnst mjög sniðugt hjá þeim að gera þetta bara í rólegheitunum í danmörku þar sem þau búa. engin stórveisla í giftingunni sjálfri en stefnan hjá þeim er að hafa veislu á íslandi í sumar. ég held bara að dagurinn verði innilegri og persónulegri fyrir bragðið.

ég hef mjög gaman af því að fara í búðir eins og margir vita. hér er það einhvern veginn þannig að í langflestum tilvikum lendi ég á kjaftatörn við starfsfólkið. fólk spyr mjög oft hvaðan maður sé af því að maður talar ekki frönsku...og ef maður segist vera frá evrópu þá er manni sýndur þessi líka rosalegi áhugi. sérstaklega skemmtilegt.

svo er líka ferlega fyndið að sjá skilti sem á stendur "european style" eða "new model from europe" eða bara "european". þetta á að þýða að hlutirnir séu æðislega hip eða flottir...af því að þeir eru frá evrópu! eins og evrópa sé bara eitt land og einn stíll!!! ótrúlega fyndið. ég hef einhvern tímann sagt við sölumenn sem ætla að selja manni þennan evrópufaktor að það vilji nú bara svo skemmtilega til að ég sé frá evrópu og ég sjái barasta alls ekki í einni svipan hvað sé svona evrópskt við hlutinn. þá verður fólk oft á tíðum vandræðalegt og veit ekki sjálft hvað þetta evrópudót þýðir. og ef maður segist vera af sænsku bergi brotinn (ég er jú einn fjórði sænsk) þá kemur alltaf einhver skrýtinn svipur á fólk og svona glott eiginlega ...ahaaaaaaa ...jahááááá..."sumséljóshærðmeðbláauguogflétturogrosalegalauslát" svipur. en svo er ég ekkert ljóshærð með blá augu eða lauslát!!! fyndnar þessar steríótýpur sem fólk er með í hausnum.

fimmtudagur, janúar 16, 2003

já. ég held að ég þurfi að fara að setja upp svona myndasíðu. geri það við gott tækifæri...sem þýðir þegar ég nenni.

við fórum í bíó í gær. sáum "adaptation". stórfín mynd. ekki þessi týpíska hollívúddþvæla. meril stríp og nikkolas keidsj eru náttúrulega vön... myndin hafði bara þónokkur áhrif og eitthvað situr eftir...sem er ekkert sérlega algengt nú á dögum. við fórum líka á "gangs of new york" um daginn. hún var alveg ágæt...flottar senur í henni en var einhvern veginn ekki það sem maður bjóst við. díkapríó er alltaf svo reiður eitthvað.

miðvikudagur, janúar 15, 2003

haaaaaaaaaaaaaaaaaaaallllllllllllllelúja!!!

fjárfesti í brauðrist rétt áðan og búin að rista mér beyglu og allt! ótrúlegt að hafa enst svona lengi án brauðristar samt...reyndar er margt sem okkur vantar ennþá í eldhúsið til að geta talist almennilegt heimili...hehh...þetta kemur. ég er allavega farin að elda mun meira en ég gerði. batnandi manni er best að lifa eins og einhver sagði.

hey, hér eru smá myndir af tomma gunn og stínu fínu. við erum sko í jólagjöfunum okkar á þessum myndum.


ennþá svakafrost í henni könödu. sem er bara allt í lagi, ég á svo góða dúnúlpu :-)

tommi fer að spila á þorrablóti í hull 1. feb og ég fæ ekki að fara með *grenj*... og strax eftir það fer hann til kaliforníu að hlýja sér í silicon valley. ætli hann verði ekki bara þar á sjálfan valentínusardaginn...svekk
stefnir annars í svakapartý þarna í hull...og ekki sakar að hafa rotnandi íslenskan mat...ehhh...ég var með í fyrra þarna í hull og man bara að fötin mín lyktuðu hræðilega eftir þetta. en hótelið var rosalega flott...kastali með sundlaug og tilheyrandi. ég fæ kannski að fara með næst bara...

spurning um að fara að rifja aðeins upp sönginn...byrja í tímum aftur hjá henni sylvie á morgun. hef ekkert sungið í lengri tíma, var með hrikalegt kvef í jólafríinu...alveg raddlaus og ómöguleg.

þriðjudagur, janúar 14, 2003

kræst...það er -19°C úti en rakt þ.a. það er sambærilegt við -30°C!!! ekki nema von að það sé kalt hérna inni núna.

oooooooog þá er kominn þriðjudagur. seventís sjó í kvöld jess!
tók heljarinnar ósköp til í gær...og nútímahúsmóðirin ég versla alltaf á netinu líka. nenni ekki að burðast með pokana heim svo ég bara panta stöffið hjá iga og læt senda heim. það kostar pínöts að láta senda þetta og maður eyðir miklu minna í mat í leiðinni...lætur ekki freistast af einhverju girnilegu og dýru stöffi. mæli eindregið með þessu!

í dag verður farið í gymið og tekið á því. við tommi byrjuðum í september síðastliðnum og tókum ágæta skorpu fram í desember en slökuðum svo alveg á í jólafríinu og þar í kring. nú verður sko pumpað þokkalega fyrir sumarið. við verðum orðin hriiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyykaleg áður en bikini season byrjar. :-)

nú bíð ég bara eftir umsóknum um atvinnuleyfi...þegar það er orðið klárt ætla ég svo að láta taka myndir af mér og fara með á nokkra staði og reyna að verða extra í bíómyndum. það er alveg þess virði að prófa...ég meina...eru ekki allir að reyna að meika það. þess á milli get ég sótt um í einhverja skóla og svona líka...hehhe...ég verkfræðingurinn. kemur í ljós, kemur í ljós.

mánudagur, janúar 13, 2003

hmmm...smá öppdeit fyrir þá sem hafa misst úr hinni stórskemmtilegu sögu um ferðir og ævintýri okkar tomma gunn.

við vorum sumsé í london frá maí 2001 til maí 2002 að vinna hjá Kudos. á þeim tíma gerðist margt og náðum við meira að segja að skoða parís og feneyjar örlítið. við fórum líka til hull þar sem tommi var að troða upp á þorrablóti íslendinga þar í sveit. ég var nú ekki sérlega heilluð af vinnunni og fór því aðeins að líta í kringum mig að einhverju skemmtilegra...fann eitt söngnámskeið hjá vocal-tech og eitt ballettnámskeið hjá rambert dance company. þegar dansnámskeiðið var hálfnað ákváðum við tommi að flytja bara til montreal í kanada...hann fékk skemmtilegt atvinnutilboð og ég alveg komin með nóg af london og vinnunni þar. og nú erum við búin að vera hér í rúmt hálft ár og ég ennþá að reyna að finna útúr því hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór...verkfræðin er ekki alveg að virka fyrir mig...hehhh...ég læt vita þegar ég kemst að niðurstöðu.

vöknuð og allt!
fórum á skíði í gær. hehh...
ég hef ekkert stundað skíði um ævina og er ekkert sérstaklega mikið gefin fyrir hraða þegar ég hef ekki almennilega stjórn á hlutunum. sumsé ég var ekki alveg að brillera þarna í brekkunum. hélt mig bara á lúðabyrjendasvæðinu þar sem ekki var einu sinni lyfta og maður þurfti að labba upp 10 metra brekku...hehhh...jæja. fór svo með tomma tvisvar í einhverja t-lyftu og panikkaði í fyrra skiptið þar sem ég náði ekki taki á lyftunni og rann í burtu og í seinna skiptið fórum við svo hátt að ég ætlaði ekki að þora niður. svona er það að reyna að læra á skíði kominn yfir unglingsaldurinn...maður þorir ekki neinu!!! næst ætlum við að fara á svæði þar sem eru betri byrjendabrekkur.
það er reyndar ofsalega fallegt í kringum þessi skíðasvæði...ég veit ekki hvað þau voru mörg á leiðinni en það er sumsé allt morandi í skíðasvæðum með svona húsum eins og í vídeóinu við "last christmas" með wham. alveg idyllisch!
örn sem vinnur með tomma og sigrún kærastan hans voru með okkur. þau eiga líka þennan ótrúlega kagga og komast hvað sem er á honum...eru nefnilega með "on the road kit" í honum. hehhe...

það snjóaði í nótt...og orðið ansi jólalegt bara. jólaljósin eru ennþá á húsum og trjám hér. einstaklega huggulegt bara.

britta komst heil á höldnu til íslands. þurfti að skipta á boston flugvelli sem er hugsanlega leiðinlegasti flugvöllur í heimi. það gekk bara vonum framar og fékk stúlkan þrjú sæti fyrir sig...ekki nóg með það heldur voru megapoppstjörnurnar land og synir í sömu vél!!!


föstudagur, janúar 10, 2003

úff...svakalega er ég löt að skrifa þessa dagana.

britta fer í dag...og ennþá er hún veik stelpan. algjörlega búin að missa röddina og með bakveiki...god damn. erum samt búnar að gera ýmislegt...fórum í nærfataverslunarmaraþon í gær. skoðuðum nærföt í þrjá klukkutíma!!! það eru svo góðar útsölur hérna...alveg 70% afsláttur af mörgu. jess!

ég ætla að sækja um atvinnuleyfi hérna og sjá til með einhverja vinnu. reyndar var mér bent á að gerast bara extra í bíómyndum...fékk nokkur símanúmer hjá agencium hérna. ég læt vita ef úr því verður...hehehe...maður fær allavega borgað fyrir það.

svo fer nú söngurinn að byrja aftur. spurning um að finna sér kannski einhvern kór eða eitthvað. hmmm...einhverjar uppástungur?

þriðjudagur, janúar 07, 2003

ok. smá pæling. ég er oft með svitalykt á öxlunum og jafnvel framhandleggjum líka. ástæðan fyrir þessari svitalykt eru faðmlög karlmannsins á heimilinu...sumsé hann er með svitalykt, eins og sönnum karlmanni sæmir, og svo smitar hann henni yfir á mig með því að faðma mig og knúsa. hvað er til ráða? hvernig losnar maður við svitalykt á öxlunum? eru til axlasvitalyktarvarnir? þetta getur verið vandræðalegt ef maður hefur ekki uppgötvað lyktina sjálfur og kannski lendir í því að labba framhjá einhverjum eða eitthvað.
ég var að spá í að semja kannski lag og texta um þetta...til að vekja athygli á þessu miður skemmtilega vandamáli...hehehe

oooooooooooog þá eru jólin búin.

við systurnar skelltum okkur bara á snyrtistofu í dag og létum aðeins dútla við okkur...engar stórbreytingar, bara smá nauðsynjar. fengum okkur svo ágætis hádegisverð rétt hjá og komnar heim aftur.

ég fer líklega að byrja í söngtímum aftur og kannski á teikninámskeiði...svo var ég að frétta að maður getur sótt ókeypis frönskunámskeið ef maður er nýfluttur hingað. þarf að tékka á því.

mánudagur, janúar 06, 2003

í dag á maggi bró afmæli. til hamingju með það! við britta hringdum í hann áðan og sungum undurfagurt afmælislagið fyrir hann en vorum nú ansi svekktar að heyra að hún þóra litla frænka væri lúllandi! við töluðum heldur ekkert við sindra stuð en frést hefur að hann hafi sést í sloppnum einum fata langt eftir hádegi...hehhe...meiri aumingjabragurinn!

sunnudagur, janúar 05, 2003

ollræt! meira stuðið á þessum bænum. tommi með einhverja pest og britta litla systir bakveik. :-/

við náðum þó að gera slatta túristalegt í dag. fórum í 3 klst sightseeing um borgina við britta og sáum bara fullt af flottu stöffi. t.d. þrjú eða fjögur troðfull skautasvæði, fólk á gönguskíðum og hestasleða. ekki amalegt!
svo fórum við aðeins í verslunarleiðangur og tékkuðum á jólaskrautinu niðri í bæ. fengum okkur líka sniglapizzu...algjört möst þegar maður kemur hingað. mér fannst hún reyndar ekki alveg jafngóð og venjulega en samt sem áður mjöööööööööööööög ljúffeng.
svo var horft á bekk tú ðe fjútsjúr númer eitt af því að britta fjárfesti í pakka af trílógíunni á þrjúþúskall.

jæja...kominn tími til að huga að sjúklingunum. hehh...

laugardagur, janúar 04, 2003

komin heim í heiðardalinn og tók litlu systur með mér...hehehe...nenni eiginlega ekkert að skrifa þessa dagana en ætla að skella inn einhverjum myndum þegar við finnum útúr því hvað er að myndavélinni. blessámeðan

miðvikudagur, janúar 01, 2003

Gleeeeeeeeeeeðileeeeeeeeeeeeeeeeeegt ár!!!

annars held ég að það lesi þetta ekki nokkur maður þessa dagana. bæði er ég ekki að gera nein stórvirki hér á skjáinn og svo er fólk almennt liggjandi á meltunni og hefur lítinn áhuga á netinu.

ég er nú bara nokkuð ánægð að vera að fara út aftur...fínt að vera á hótel mömmu en samt betra að vera bara heima hjá sér. :-)

við tommi fórum bara ekki í neitt partý í gær...boðið í eitt í grindavík að ég held en ákváðum frekar að fara bara rúntinn í reykjavík og skoða mannlífið. það var ekki af verri endanum...sáum strípilinga hlaupa niður laugarveginn og ég gaf þeim kórónuna mína...einhverju seinna sáum við þá aftur hlaupandi sem aldrei fyrr nálægt lækjartorgi og enn með kórónuna. svo sáum við inn í öll partýin sem okkur var ekki boðið í og leist bara ekkert svo vel á. fannst bara fínt að fara í granaskjólið og slaka á og taka nýja árinu í rólegheitum en ekki í fyllerískös að drepast úr sígarettureyk.

eníveis. það er bara ágætt þetta 2003. stefnir í stuðár.