Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

mánudagur, desember 08, 2003

og skór dagsins eru frá donald j pliner og kosta einungis $413...doldið svona tacky en hey, ef ég væri milli myndi ég ábyggilega líka eiga svona skó. til að geta verið dáldið mafíósaleg...hehehe.



við tommi fórum að sjá the elf í gær og skemmtum okkur ágætlega. mér finnst hann will farell svo fyndinn eins og margir aðrir úr saturday night live genginu. við horfum yfirleitt á mad tv fyrst og svo snl hér á laugardagskvöldum.

í gær var annar í aðventu og í tilefni af því fengum við okkur piparkökur og restir af kanilsnúðum úr ikea. kveiktum á tveimur kertum í aðventustjakanum okkar og höfðum það huggulegt. svo fórum við í bíltúr upp í westmount og skoðuðum jólaljósin hjá ríka fólkinu. það snjóaði fullt í gær og fyrradag og orðið alveg svakalega jólalegt. við gerðum svo smá rannsókn á muninum á jólalaskreytingum hjá ríka fólkinu og ekki svo ríka fólkinu. við komumst að því að ekki svo ríka fólkið er með miklu fleiri liti í skreytingunum og meira af blikki og uppblásnum fígúrum. ríka fólkið er oftast bara með hvít ljós, stundum rauð og mikið af perum og jafndreift yfir trén. ætli þjófar viti þetta og fari eftir skreytingum hjá fólki?