nýjustu fréttir! ég fékk A í frönskunni. húrra fyrir því. hæsta einkunn af því það er ekki hægt að fá A+. stuð og stemmning bara.
ég var að koma úr skólanum, fór í dag að reyna að klára skúlptúrinn minn. náði að steypa hann og ná honum úr mótinu en á eftir að pússa. nú vantar mig vatnsheldan sandpappír númer 320. bjarga því í canadian tire. hehehe.
á morgun verður "krítík" í hópnum mínum í skólanum og ég þarf að fara með allt stöffið mitt í skólann í fyrramálið. eftir það er svo smá jólapartí og ég á víst að mæta með eitthvað matarkyns. ég sem er lasin í dag. þyrfti að baka eitthvað. sjáum til.
hey, nýjasta jólaskreytingasnilldin eru díóðujólaljós. á einhver svoleiðis? ég sá það í búð um daginn. ljósið á víst að vera meira "intense" og ef maður kaupir litaðar perur eru litirnir fallegri en þetta týpíska. sniðugt af því að þetta endist svo svakalega lengi og notar ekki nema 15% af orkunni sem fer í venjulegu ljósin. kúlíó.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home