ég fór í smá partý í gærkvöldi með innanhúshönnunarbekknum mínum. þar voru um átta konur og einn karlmaður (kennarinn). allar konurnar komu með svakaflottan mat með sér, mjög metnaðarfullt allt saman og bragðaðist eftir því. ég bakaði skinkuhorn og skildi eftir slatta handa tomma (hann borðaði þau í kvöldmat þessi elska). ágætis samkoma alveg hreint.
það er komin rigning úti! fyrir tveimur dögum síðan snjóaði svo mikið að það eru risasnjófjöll fyrir utan og ég get ekki ímyndað mér hvernig þetta er orðið núna. slabb og aftur slabb geri ég ráð fyrir. bjakk.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home