ekki mikið að frétta af mér. ég sit bara ein hérna heima, æðislega trúlofuð. tommi er í kalifonja (eins og arnold segir það) að vinna með gb. hann kemur heim á laugardagsmorguninn. mér finnst hann búinn að vera alveg nógu lengi!
hér er komið ískalt vetrarveður. í gær var 16 stiga frost! núna eru það sjö stig. brrr... fyrir því!
ég er að reyna að peppa mig upp í að taka til. það er bara ekkert svo hrikalega skemmtilegt. sérstaklega ekki ef maður er einn að því. það væri kannski góð bissnesshugmynd að vera með svona tiltektarböddí. skemmtilegt fólk sem finnst gaman að taka til og getur verið dj í leiðinni. hehh..."skemmtilegt fólk sem finnst gaman að taka til" gengur e.t.v ekki upp þegar ég hugsa um það. ojæja.
í kvöld er síðasti málitíminn fyrir jól. ég ætla að reyna að klára self portrait sem ég byrjaði á fyrir skömmu. dáldið fríkuð mynd.
þetta blogg er nú ekki upp á marga fiska. hmm...hvað get ég talað um. sjónvarp. ég horfi stundum á stöð sem heitir much more music. þar eru þættir eins og "behind the music", "mmmprofile" o.fl. sumsé þættir sem fjalla um tónlistarmennina sjálfa. það er alveg ótrúlegt hvað fólki er alltaf stillt upp sem yfirnáttúrulegum dýrlingum sem byrjuðu að syngja áður en það byrjaði að skríða o.s.frv. sömu klisjurnar aftur og aftur. "i always wanted to be a star", "i always knew music was what i wanted to do" etc. svo er líka merkilegt að skoða muninn á amerískum stjörnum og evrópskum. þessar amerísku hafa margar hverjar verið í hæfileikakeppnum og svona "pageants" frá því þær voru fjögurra en þessar evrópsku oftar verið bara í skólanum þangað til þeim leiddist og hætt og reynt að meikaða í tónlist í staðinn.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home